Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Sandgerði | Bæjarhátíðin Sandgerð-
isdagar 2013 var sett formlega í
gærkvöldi. Fjölbreytt dagskrá er í
boði út vikuna, eða alls 75 atriði
sem höfða til ungra sem aldraðra.
Í dag fer fram hin vinsæla
Lodduganga sem er eingöngu fyrir
20 ára og eldri. Á morgun er knatt-
spyrnukeppni milli Norðurbæjar og
Suðurbæjar, sem endar með salt-
fiskveislu. Helgi Björns og reið-
menn vindanna verða í Samkomu-
húsinu á föstudagskvöldið og
hljómsveitin Sín leikur föstudags-
og laugardagskvöldið á Vitanum.
Vísna- og safnakvöld verður í Efra-
Sandgerði, þar sem lesið verður
upp úr verkum Ingibjargar Sig-
urðardóttur skáldkonu. Allir eru
velkomnir á Sandgerðisdaga en
frítt er á tjaldsvæðið alla dagana.
Hátíð í bæ í
Sandgerði
næstu daga
Alls 75 atriði á
fjölbreyttri dagskrá
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sandgerði Gestir í garðveislu
hljómsveitarinnar Hljóp á snærið.
Ólína Þorvarð-
ardóttir, fyrrver-
andi þingmaður
Samfylking-
arinnar, hefur
verið ráðin sviðs-
forseti hug- og
félagsvís-
indadeildar Há-
skólans á Ak-
ureyri. Fékk hún
flest atkvæði í
stöðuna og atti þar kappi við Sig-
rúnu Stefánsdóttur, fv. dagskrár-
stjóra RÚV, að því er fram kemur á
vef Akureyrar vikublaðs. Segir þar
að Sigrún hafi fyrirfram verið talin
líklegri til að fá stöðuna. Ólína er
þjóðfræðingur, en auk þingstarfa
áður fyrr vann hún einnig við
kennslu og fjölmiðla, var um tíma
skólameistari Menntaskólans á Ísa-
firði.
Ólína sviðs-
forseti við HA
Ólína
Þorvarðardóttir
Rangt nafn
Í viðtali við Kristin Guðjónsson í
Morgunblaðinu í gær, í tilefni af 100
ára afmæli hans, var hann rang-
nefndur í undirfyrirsögn og mynda-
texta. Er beðist velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
Olíufélögin hér á landi hækkuðu
eldsneytisverð um fjórar krónur lítr-
ann í gærmorgun. Er ástæðan sögð
átökin á Sýrlandi og fregnir um yf-
irvofandi loftárásir vestrænna ríkja
á landið. Varð töluverð hækkun á ol-
íu á heimsmarkaði í gær vegna
ástandsins í landinu.
„Miðað við þá reynslu sem við höf-
um af fyrri átökum í heiminum skilar
það sér fljótlega inn í verðlag,“ segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB. Mbl.is greindi frá því í
gærmorgun að mikil viðbrögð hefðu
verið á mörkuðum við fréttum um að
ríki á Vesturlöndum væru að und-
irbúa loftárásir á Sýrland. Einnig
féll gengi gjaldmiðla hratt.
Runólfur segir að bein tenging sé
á milli frétta af hugsanlegum loft-
árásum á Sýrland og hækkunarinn-
ar. Bensínlítrinn var í gærkvöldi
ódýrastur hjá Orkunni, 254,3 krónur
og var lítrinn af dísil einnig ódýr-
astur þar og kostaði hann 251,3
krónur. Önnur félög voru þar nokkr-
um aurum ofar. „Þegar ólga er hefur
það áhrif til hækkunar,“ segir Run-
ólfur og tekur átökin í Líbíu sem
dæmi. „Jákvæðar fréttir eru aftur á
móti seinar að skila sér til lækkun-
ar.“
Hinn 1. mars sl. kostaði lítrinn af
bensíni 259,9 krónur og fór hann
lægst niður í 237,6 krónur í byrjun
maí á þessu ári. Dísillítrinn var 1.
mars sl. í 256,7 kr. og fór lægst niður
í 236,5 kr. í maíbyrjun.
larahalla@mbl.is
Hækkuðu um 4 krónur
Olíufélögin íslensku brugðust hratt við átökum á Sýrlandi
Þróun eldsneytisverðs síðustu mánuði
Heimild: Félag Íslenskra bifreiðaeigenda
1. mars 2013 28. ágúst 2013
260
255
250
245
240
235
Sjálfsafgreiðsla 95okt.
Sjálfsafgreiðsla Dísilolía
259,9
256,7
254,8
251,8
237,6
236,5