Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ljósleiðarinn sem liggur vestur í Ólafsvík er
í túnfæti bæja í Hnappadal og á sunnanverðu
Snæfellsnesi. Eigi að síður hefur fólk sem
býr í sveitunum ekki aðgang að þessari lífæð.
„Við náum bara sjónvarpsútsendingum RÚV
og hlustunarskilyrði fyrir útvarp eru ekki
nógu góð. Þá er gsm-samband gloppótt og
slakt netsamband stendur hér ýmsu fyrir
þrifum,“ segir Margrét Björk Björnsdóttir í
Böðvarsholti í Staðarsveit. Hún er sveita-
kona og atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveit-
arfélaga á Vesturlandi. Hún heldur utan um
verkefnið Sveitaveginn sem miðar að sterk-
ari byggð á sunnanverðu Snæfellsnesi – frá
Hítará að Hellnum. Á þessu svæði eru þrjú
sveitarfélög; Borgarbyggð, Eyja- og Mikla-
holtshreppur og Snæfellsbær.
„Hér búa um fjögur hundruð manns og
góðu heilli hefur heldur fjölgað að und-
anförnu. Sérstaklega munar um að hingað
komi ungt fólk með börn. Það er framtíðin
holdi klædd,“ segir Margrét Björk.
Sveitasími nútímans
Miðlun upplýsinga, virk samskipti og
þátttaka íbúa eru kjaraatriði í Sveitaveg-
inum. Á vefsetri verkefnisins, Sveitasiminn-
.is, er vitnað til rannsókna og segir þar um
nýsköpun í atvinnumálum „að virkni og já-
kvæður samfélagsandi skipti miklu máli þeg-
ar horft er til íbúaþróunar og uppbygg-
ingar“.
Nafn vefsetursins, Sveitasíminn, hefur
tilvísun. „Sveitasíminn hafði þann kost að
fólk vissi betur hvað var um að vera í sveit-
inni og það var auðveldara að ná til allra í
einu,“ segir Margrét Björk og heldur áfram:
„Í gamla daga var fundahringingin fimm
langar og þá svaraði fólk á öllum bæjum. Nú
er oft erfiðara að ná til fólks og miðla upp-
lýsingum. Facebook er nokkurs konar sveita-
sími nútímans, en fólk er misjafnlega tölvu-
fært. Því viljum við skapa grundvöll fyrir
fólk að hittast til að efla samfélagsandann og
vinna saman.“
Að undanförnu hefur Margrét unnið
með fólkinu í sveitinni að ýmsum verkefnum.
Þar má nefna verkefnið Sögufylgjur &
sagnaþuli, sem miðar að því að efla heima-
fólk til að taka á móti gestum. Útgangs-
punkturinn er sá að ferðafólk geti komið
heim á bæi, heilsað upp á sagnabændur og
fengið fréttir, fróðleik og leiðsögn. Einnig
hafa matgæðingar af svæðinu komið saman
til að auka þekkingu sína og vinna að
vöruþróun. Þá er sveitamarkaður tvisvar á
ári.
„Hér eru mörg tækifæri, þessi sveit
liggur milli fjalls og fjöru. Hér eru nánast öll
svipbrigði náttúrunnar; Ísland alveg í hnot-
skurn og merk saga við nánast hvert fótmál
og því margt að sýna og segja frá. Þessi arf-
ur getur svo sannarlega styrkt ferðaþjón-
ustuna, sem er stór þáttur í uppbyggingu á
atvinnulífi hér,“ segir Margrét Björk í Böðv-
arsholti og heldur áfram:
Við þurfum samband
„Við sem á þessu svæði búum þurfum að
sækja á í ýmsum málum. Þegar netið liggur
niðri þarf ég jafnvel að keyra í ofboði út í
Ólafsvík eða í Borgarnes til að geta sinnt
minni vinnu. Bókanir hjá ferðaþjónustunni
geta við þessar aðstæður dottið niður og
þess eru dæmi að fólk sem hefur haft áhuga
á að flytja hingað vestur og sinna störfum í
fjarvinnslu hafi snúið við af þessum sökum.
Úr þessu þarf að bæta. Við verðum að kom-
ast í samband.“
Unga fólkið er framtíðin holdi klædd
Sveitasími á sunnanverðu Nesinu Verkefni sem miðar að efldri byggð á víðfeðmu svæði þar sem
um 400 manns búa Tækifæri milli fjalls og fjöru Sögufylgjur á bæjunum og sveitamarkaður
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjarskipti Við náum bara sjónvarpsútsendingum RÚV og hlustunarskilyrði fyrir útvarp eru
ekki nógu góð. Þá er gsm-samband gloppótt,“ segir Margrét Björk, bóndakona í Böðvarsholti.
SNÆFELLSBÆR
DAGA
HRINGFERÐ
Arnarstapi eða Stapi er lítið þéttbýli á sunnanverðu Snæfellsnesi, á milli
Hellna og Breiðuvíkur. Þar er nokkur byggð, fjöldi sumarbústaða og smábáta-
höfn, þaðan sem gerðir eru út dagróðrarbátar.
Arnarstapi er vinsæll viðkomustaður ferðamanna, enda eru þar mörg þekkt
náttúruundur. Þeirra á meðal er Gatklettur sem er leifar af berggangi sem
sjórinn hefur rofið gat á. Á Arnarstapa er mikill steinkarl eftir Ragnar Kjart-
ansson myndhöggvara; stytta af Bárði Snæfellsás, en það er trú margra að
hann vaki yfir svæðinu.
Morgunblaðið/Ómar
Stæðilegur Í Bárðar sögu Snæfellsáss er hann sagður hollvættur Snæfellsness.
Steinkarl stór vakir yfir Stapa
Í sumar hefur verið unnið að ýms-
um rannsóknarverkefnum innan
marka þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.
Fornleifafræðingar hafa verið vestra
og grafið upp og rannsakað minjar
gamallar verbúðar. Að þessari rann-
sókn hefur verið unnið mörg und-
anfarin ár og alltaf kemur eitthvað
spennandi upp úr jarðveginum.
Þá voru jarðvísindamenn á vegum
Veðurstofu Íslands fyrir vestan í
sumar og settu upp jarðskjálftamæla
sem vakta hreyfingar í og við hinn
fræga Snæfellsjökul sem er talin virk
eldstöð þótt um 1.750 ár, að því er
talið er, séu liðin frá síðustu elds-
umbrotum þar. sbs@mbl.is
Rannsaka
rústir og
mæla skjálfta
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jökull Ber við loft, sést mjög víða að
og setur sterkan svip á umhverfið.
Næsti viðkomustaður hring-
ferðar Morgunblaðsins er
Stykkishólmur.
Á morgun
Snæfellsbær
Upplýsingamiðstöð Snæfellsbæjar – Tourist information centre – Kirkjutún 2 - Ólafsvík,
Snæfellsbær - ( 433 6929 - info@snb.is – www.snb.is - www.facebook.com/snaefellsbaer
Þar sem jökulinn ber við loft...
Fjölbreytt tjaldsvæði...
Ævintýri líkast...
Undi
rheim
ar...
leiðin
að m
iðju
jarða
r?...
Frábæra
r göngul
eiðir...
Frábær
ar fjör
ur í Sn
æfellsb
æ...
Öðr
uvís
i la
ug m
eð h
eitu
ölke
ldu
vatn
i...
Ótrúlegt
útsýni...
Fékk þann stóra...