Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Hvað er að vera les-
blind(ur)? Hvað er að
vera með lesblindu?
Þegar börn koma í
skóla og skipuleg lestr-
arkennsla er hafin,
kemur í ljós að sumum
þeirra er ekki lagið að
ná viðunandi árangri.
Verði lítil bót á næstu
árin er því slegið föstu
að nemandinn sé les-
blindur – eða með les-
blindu. Foreldrum er þá jafnvel sagt
að lesblinda sé meðfædd – nánast
sjúkdómur, ættgeng og ólæknandi,
en með þjálfun og notkun hjálp-
artækja geti lesblindir þó eignast
þolanlegt líf. Ég ætla að fullyrða að
þetta sé rangt. Lesblinda er ekki
meðfædd, ekki ættgeng, ekki ágalli
eða sjúkdómur og alls ekki „ólækn-
andi“. Tungumál er manngert verk-
færi þróað til samskipta. Lokaáfangi
máltökunnar er að ná valdi á ritun
og lestri, skráningu og aflestri rit-
tákna talaðs máls. Þegar börn koma
í skóla er komið að lokaáfanga mál-
töku með formlegri lestrarkennslu
og öllum ætluð sömu viðfangsefni
með sömu aðferðum. Allir eiga því
að geta náð sama árangri á sama
tíma, en fljótlega kemur í ljós að
uppskeran verður ærið misjöfn.
Einhver barnanna eru þegar læs,
önnur taka vel við, en nokkur eru
ekki tilbúin í verkefnið. Svo eru þau,
sem aldrei verða tilbúin í lestrarnám
með „hefðbundnum“ aðferðum.
Þeim hentar ekki að hefja lestr-
arnám með því að læra nöfn og hljóð
merkingarlausra tákna, jafnvel í til-
tekinni röðun og finna þannig hljóð-
myndir orða. Að nota hið óþekkta til
að finna hið þekkta. Þau eru altal-
andi og hafa þróað talmál sitt, hljóð-
myndir orða, út frá merking-
armyndum sínum, sem vökul og
næm skynjun hefur byggt upp í
huga þeirra. Lífsgleði þeirra og
áhugi á umhverfi sínu hefur gefið
þeim upplifanir sem þau hafa síðan
lært að hljóðsetja, lokaskref máltök-
unnar er síðan að skrásetja. Með
öðrum orðum, að læra
að lesa er það að bæta
ritun og þá lestri við
hljóðmyndir merking-
armynda. Seilast frá
hinu þekkta til hins
óþekkta og gera það
einnig þekkt og þrung-
ið merkingu. Börn læra
af reynslu og festa í
minni hvað sé eft-
irsóknarvert og hvað
beri að forðast.
Reynsluheimurinn er
þekktur og öruggur; að
ferðast á kunnum slóð-
um, kunna skil á eða kannast við það
sem fyrir augu ber þroskar sjálfs-
mynd og eykur sjálfstraust. Með
vexti og þroska víkkar athafnasvið
barna, þau leggja inn í reynslubank-
ann og færa varlega út kvíarnar. Að
leika á heimavelli, takast á við við-
fangsefni sem hljóma við fyrri
reynslu og auðga það sem fyrir er,
það er öllum ánægjuleg og þrosk-
andi reynsla. Að vera svipt út af ör-
yggissvæðinu og þvingað til þátt-
töku í athöfnum að ákvörðun
fullorðinna getur varla gengið vel
upp og í verstu tilvikum bakað börn-
um óbætanlegt tjón. Eigi slík vinnu-
brögð við um lestrarkennslu nefnist
árangurinn lesblinda. Hefðu þeir,
sem stimplaðir eru lesblindir, fengið
að leysa lokaverkefni máltökunnar á
réttum tíma og með réttum aðferð-
um, þ.e. á heimavelli, þá hefði verkið
unnist án vandkvæða. Þegar varð-
veitt og nýtanleg reynsla hefur vax-
ið að gildi með tilkomu hljóðsetn-
ingar og barnið er sagt altalandi
kemur að skráningu talaðra orða.
Að kenna lestur með því að ganga út
frá reynsluheimi og talmáli og bæta
ritun þar við kalla ég nátt-
úruaðferðina. Þú lærir talmál með
því að læra hljóðmynd orðsins sem
heildar. Hljóðmyndin hefur beina
skírskotun til merkingarmyndar
orðsins. Því er eðlilegt að læra lest-
ur, ritun, stafsetningu, með því að
læra sjónmynd orðsins sem heildar.
Með því móti hefur sjónmyndin, rit-
að orð, einnig beina skírskotun til
merkingarmyndar. Það segir sig því
sjálft að minnsta merkingarbæra
eining texta er orðið. Því ætti að
miða lestrarkennslu við orðið sem
minnstu einingu, þ.e. merking-
armynd > hljóðmynd > sjónmynd.
Hefðbundin lestrarkennsla fæst
gjarnan við hljóðun einstakra tákna,
bókstafa, í sjónmynd orða í leit að
eða sköpun hljóðmyndar. Því má
segja að við slíka lestrarkennslu hafi
vinna með sjónmynd, ritað orð,
beina skírskotun til hljóðmyndar en
ekki til merkingarmyndar orðsins.
Því fer svo að þegar börn eru sögð
vera orðin læs er það oft áhyggju-
efni hve lesskilningur þeirra er lé-
legur. Stafaföndur og leit að hljóð-
mynd orða út frá hljóðsetningu
einstakra bókstafa, jafnvel þó svo
flestir þeirra séu hljóðlausir, er
varla lestrarkennsla. Þessi vinnu-
brögð geta jafnvel hindrað eðlilegt
lestrarnám sumra barna. Lestur er
það að flytja merkingarmynd frá
einu höfði yfir í annað. Texti er
flutningatæki reynslu, upplifunar,
þekkingar. Ef þú nærð ekki að „af-
ferma“ textann þá ertu í raun ekki
að lesa, hversu hátt og snjallt sem
„upplestur“ þinn kann að hljóma.
Sumir, börn og fullorðnir, hugsa í
þrívíðum myndum og vita af því,
aðrir gera sér ekki grein fyrir því og
margir halda að allir hugsi svona.
Flestir hugsa þó í orðum og vita
ekki að myndhugsun sé til. Þeim,
sem hugsa í myndum, reynist erfitt
að læra að lesa með hefðbundnum
skólaaðferðum. Þeir þurfa að læra
lestur út frá merkingu talmáls, bæta
sjónmynd við merkingarmynd til
hliðar við hljóðmyndina. Annars
eiga þeir á hættu að verða les-
blindir.
Það er ekki sama
hvernig róið er!
Eftir Sturlu
Kristjánsson » Texti er flutninga-
tæki reynslu, upplif-
unar, þekkingar. Ef þú
nærð ekki að „afferma“
textann þá ertu í raun
ekki að lesa …
Sturla
Kristjánsson
Höfundur er kennari, sálfræðingur og
Davis-ráðgjafi. Les.is – www.les.is
Agnes M. Sigurð-
ardóttir, biskup Ís-
lands, hefur sýnt vilja
sinn í verki, einurð og
kjark með því að ætla
að flytja ávarp á
trúarhátíðinni Hátíð
vonar sem haldin
verður í Laugardals-
höllinni í lok sept-
ember og er sam-
starfsverkefni
fjölmargra kirkna og
kirkjudeilda. Með því segist hún
styðja samstarf kristinna safnaða.
En auk þess styður biskup raun-
verulegt skoðana- og trúfrelsi og
lætur ekki undan áróðri þeirra fjöl-
miðla sem ganga erinda trúleys-
ingja í landinu.
Áróður trúleysingja gegn Hátíð
vonar er byggð á því að Franklin
Graham, sonur Billys Grahams, er
ræðumaður hátíðarinnar, en hann
er mótfallinn hjónaböndum samkyn-
hneigðra og hefur talað opinberlega
gegn samkynhneigð.
Áróður trúleysingja gegn Hátíð
vonar er enn eitt dæmi þess, að þeir
– og aðrir andstæðingar kristinnar
trúar og kristinnar kirkju – beita nú
þá, sem ekki eru á sömu skoðun og
þeir, ofríki á sama hátt
og þeir voru áður ofríki
beittir. Þetta er ekki í
samræmi við skoðana-
og tjáningarfrelsi sem
á að ríkja.
Fagna ber auknum
réttindum einstaklinga
hér á landi. Umræðu
um mannréttindi, jafn-
rétti og bræðralag er
þó hvergi nærri lokið.
Ofstæki og áróður
verður hins vegar ekki
til að auka bræðralag,
jafnrétti og mannréttindi. Allir
skulu hafa rétt til að láta í ljós skoð-
anir sínar. Líka þeir sem eru mót-
fallnir hjónaböndum samkyn-
hneigðra.
Hátíð vonar – jafn-
rétti og bræðralag
Eftir Tryggva
Gíslason
Tryggvi
Gíslason
» Fagna ber auknum
réttindum ein-
staklinga hér á landi.
Umræðu um mannrétt-
indi, jafnrétti og
bræðralag er þó hvergi
nærri lokið.
Höfundur var skólameistari Mennta-
skólans á Akureyri.
Viðskiptavinir Kjaran
eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og
prentsmiðjur sem eiga
það sameiginlegt að
gera kröfur um gæði
og góða þjónustu.
bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki
bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum.
Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem
prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit.
Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft
ekki annað tæki en bizhub C35.
Verð: 379.900 kr.
Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir
hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Hádegisseðill • Mánudag til föstudags kl. 11.30-14.00
Njóttu þess að borða
góðan mat í hádeginu
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
- Súpa dagsins með heimabökuðu brauði .......................... kr. 790
- Kjúklingasúpa með grænmeti, chilly og núðlum ........... kr. 1.290
- Sjávarréttasúpa Caruso................................................ kr. 1.350
- Kjúklingasalat m. hunangsgljáðum kjúklingastrimlum .. kr. 1.390
- Tómatsalat m. mozzarella og ruccolasalati í jurtaolíu .... kr. 1.250
- Salat Templada m. hvítlauksristuðum nautastrimlum .... kr. 1.650
- Caruso chef´s salat ...................................................... kr. 1.290
- Caruso kjötlasagna...................................................... kr. 1.390
- Spaghetti carbonara .................................................... kr. 1.390
- Hvítlauksristaðar risarækjur Risotto ............................. kr. 1.450
- Ferskasta sjávarfang dagsins ....................................... kr. 1.670
- Pítsa með tveimur áleggstegundum að eigin vali .......... kr. 1.390
- Pítsasamloka með kjúkling, pepperoni og salati ........... kr. 1.390
- Ristað lambafille með villisveppum og parmesan.......... kr. 2.890
- Blandaður ítalskur krapís með ávöxtum.......................... kr. 950
- Panna Cotta með ávöxtum og jarðarberjasósu................. kr. 950
Hjá okkur
er alltaf
notalegt
bæði í
hádeginu
og á kvöldin