Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Auglýsingar birtast
af og til í fjölmiðlum þar
sem fólk er hvatt til að
neyta okkar góða
lambakjöts. Sannarlega
er lambakjötið okkar
best í heimi. En hafa
allir landar okkar efni á
að bjóða upp á lamba-
kjöt fyrir sig og sína?
Nei, það hafa sann-
arlega ekki allir efni á
slíkum íslenskum mun-
aði. Satt best að segja
er ástandið orðið mjög alvarlegt á
þúsundum heimila hér á landi með
slæmum afleiðingum. Hvað þarf til
að vekja upp ráðamenn, að fá ráða-
menn til að gera sér virkilega grein
fyrir ástandinu?
Fréttir eru um að niðurskurð-
arhnífnum verði beitt af fullum
þunga sem mun hafa
áhrif á útgjöld til vel-
ferðarmála í þjóð-
félaginu. Er ekki
mögulegt að skera
niður t.d. hjá opinber-
um stofnunum, ráðu-
neytum og sendiráð-
um, fækka
forstöðumönnum og
verkefnastjórum? Það
virðist vera erfitt verk
ráðamanna að for-
gangsraða í út-
gjöldum úr okkar
sameiginlegum sjóð-
um. Það verður áhugavert hvað
hagræðingarnefndin leggur til í
þeim efnum.
Verða ráðamenn ekki að gera sér
grein fyrir því að hér á landi er mat-
arskortur á þúsundum heimila á
einhverjum tímapunkti í hverjum
mánuði og hefur þannig verið í
nokkur ár. Fátækt fólk á Íslandi
hefur ekki efni á að kaupa grænmeti
og ávexti fyrir börnin sín, hvað þá
okkar góða fisk sem er í raun og
sanni sameign þjóðarinnar.
Ég spyr aftur. Hvenær ætla ráða-
menn vakna? Mann svíður ástandið.
Lambakjöt á diskinn
minn, eða hvað?
Eftir Ásgerði Jónu
Flosadóttur
Ásgerður Jóna
Flosadóttir
» Fátækt fólk á Íslandi
hefur ekki efni á að
kaupa grænmeti og
ávexti fyrir börnin sín,
hvað þá okkar góða fisk
sem er í raun og sanni
sameign þjóðarinnar.
Höfundur er formaður Fjölskyldu-
hjálpar Íslands og hefur starfað að
málefnum og með fátæku fólki á Ís-
landi síðastliðin 18 ár.
ÚTSALA
-20% -50%
allar vörur
Opið: má-fö. 12:30-18 | Dalvegi 16a
Rauðu múrsteinshúsunum | Kóp. 201
S. 517 7727 | nora.is | facebook.com/noraisland
Púðar dúnfylltir, verð nú frá kr. 6.800
Matardiskur,
verð nú kr. 1.672
Stólsessur, verð nú frá kr. 2.632
Skrifborð með hillu, verð nú kr. 103.400
-20%
-20%
-20%
-20%
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD
GRÍPTU
TÆKIFÆRIÐ!
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar eru á aðra miðla.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Landskokkurinn og
lýðskrumið er valda-
mikið embætti. Það
veitir kokkum og öðr-
um sérfræðingum
mötuneyta starfsleyfi
og hefur á sama tíma
eftirlit með því að
þeir matreiði og veiti
matgæðingum viðeig-
andi þjónustu. Sam-
kvæmt lögum verður
landskokkurinn að
vera menntaður kokkur. Það
tryggir að enginn nema kokkar
geta metið meðhöndlun hráefna,
matreiðslu og aðra þá þjónustu
sem matgæðingar um land allt
treysta algjörlega á. Kokkar eru
því mikilvægasta stétt landsins þar
sem allir þurfa jú að borða til að
lifa.
Opinberar tölur segja að um 300
viðskiptavinir reyni árlega að
kvarta yfir mistökum, vanrækslu
eða slæmri hegðun kokka. Jafn-
framt er lauslega áætlað að kring-
um 200 viðskiptavinir látist árlega
eftir mistök starfsmanna mötu-
neyta. Landskokkurinn hefur sam-
kvæmt lögum alræðisvald til að
meta kvörtunarmál og getur ef
hann nennir, áminnt eða svipt
kokka starfsleyfi. Reynslan sýnir
samt að hann tekur iðulega undir
faglegt mat þess kokks sem fær á
sig kvörtun. Af og til fær hann þó
óháða sérfræðinga til að meta mál.
Til að tryggja hlutlausa yfirferð
velur hann þau hráefni og eldhús-
áhöld sem metin eru og sú hefð
hefur skapast að sérfræðingarnir
leggja einungis mat á fyrirliggj-
andi gögn frá landskokknum.
Óánægðir matgæðingar eiga enga
rödd í þessu ferli. Líf þeirra breyt-
ist algjörlega eftir kvörtun til
landskokksins. Þjónustan versnar
til muna og þeir mega
teljast heppnir ef þeir
fá yfir höfuð aftur að
borða.
Landskokkurinn
blæs sem sagt á allar
kvartanir og kærur
sem til hans berast og
fær stuðning innan úr
ráðuneyti mötuneyt-
ismála til þess. Í sam-
einingu hafa embættin
tvö komið þeirri orð-
ræðu af stað, að ekki
eigi að leita að söku-
dólg þegar eitthvað
fer úr böndunum í mötuneytum
landsins. Frekar eigi að tala um
„ágalla í skipulagi þjónustunnar“.
Nú orðið eru matgæðingarnir samt
farnir að sjá að sökudólgurinn er
þá líklega landskokkurinn þar sem
hann veitir forstöðumönnum mötu-
neyta starfsleyfi og eftirlit. Ekkert
gerist samt þar sem landskokk-
urinn sjálfur stýrir allri umræðu
um þessi mál.
Í ráðuneytinu eru fyrrverandi
starfsmenn landskokksins, gamlir
stjórnendur ríkismötuneyta ásamt
nokkrum eiginkonum kokka þar í
lykilstöðum. Má þar nefna að yf-
irmaður gæða og forvarna hjá ráð-
herra er gift yfirkokki eftirlits og
gæða hjá landskokknum.
Milli þess sem þessir ráðuneyt-
ismenn brenna kvartanir óánægðra
viðskiptavina eru þeir í nefndum,
ráðum og á ráðstefnum með lands-
kokknum og forstöðumönnum rík-
ismötuneyta. Mikill vinskapur ríkir
milli stofnana og því gríðarlega
gaman á skipulögðum uppákomum.
Þar er skipst á uppskrifum og
rætt um hvað það væri gaman í
vinnunni ef þessir matgæðingar
væru ekki alltaf að kvarta og
kveina yfir ófaglegum vinnubrögð-
um. Á slíkum gleðisamkomum er
þó vinsælast að tala um byggingu
á risastóru mötuneyti í miðbænum
þar sem yfirkokkar fá loksins
þægilega aðstöðu og miklu betri
eldhúsáhöld en hingað til hefur
þekkst. Þeir eru fullvissir um að
mötuneytið muni vekja aðdáun hjá
útlenskum gæðakokkum og stjórn-
endum þriggja stjörnu Michelin-
mötuneyta. Ef vel er á spöðunum
haldið eru miklir möguleikar á að
ríkismatseðillinn eða jafnvel sjálfur
landskokkurinn vinni heimsmeist-
aramótið í ár en í fyrra náði hann
bara bronsinu á Evrópumótinu
eins og allir vita.
Hinn 3. september verður Sir
Liam Donaldsson, fyrrverandi
landsliðskokkur Breta og núver-
andi sendiherra um öryggi mat-
gæðinga fyrir Alþjóðlegu heil-
brigðismálastofnunina, á ráðstefnu
í Hörpu. Yfirskrift ráðstefnunnar
er How safe are we? Enginn mat-
gæðingur fær að tjá sig á ráðstefn-
unni en vonandi nær samt einhver
að upplýsa Donaldsson um íslensk-
an veruleika og spyrja hvort með-
höndlun kvörtunarmála geti flokk-
ast undir skilgreiningar á
skipulagðri glæpastarfsemi.
Hversu örugg erum við í brengl-
uðu samhengi við sannleikann?
Eftir Hallgrím
Georgsson » Opinberar tölur
segja að um 300 við-
skiptavinir reyni árlega
að kvarta yfir mistök-
um, vanrækslu eða
slæmri hegðun kokka.
Hallgrímur
Georgsson
Höfundur er kokkur.