Morgunblaðið - 29.08.2013, Page 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Ég ákvað að nota tækifærið og halda rosaafmælispartí núna ámorgun. Ég ætla bara að láta vaða, bjóða mínum nánustu ogbestu og halda ærlega upp á þetta. Við vorum að flytja í
stærra hús þannig að þetta verður innflutningspartí í leiðinni. Það
var tilvalið að nýta tækifærið þegar það er nóg pláss,“ segir Erla
Björg Káradóttir óperusöngkona um fyrirhuguð hátíðahöld um
helgina í tilefni af 35 ára afmælisdegi hennar í dag.
Erla segist vera mikil afmælisstelpa og er þeirrar skoðunar að
maður eigi alltaf að halda upp á afmælið til að þakka fyrir hvert ár
sem maður fær. Í minningunni sé gaman að eiga afmæli á þessum
tíma árs því skólinn sé að byrja. „Ég fékk eiginlega alltaf skóladót
og eitthvað sem tengdist haustinu í afmælisgjöf og fannst það gam-
an. Það er alltaf tilhlökkun í haustbyrjun því ég tengi það við afmæl-
ið,“ segir hún.
Sönglistin á hug Erlu Bjargar allan en hún syngur mest með
sönghópnum Ópi. Síðasta vetur stóð hópurinn meðal annars fyrir
sýningum um óperusöngkonuna Maríu Callas auk þess sem hann
setti upp litla kvennaóperu. Nú í byrjun nóvember heldur hópurinn
tvær sýningar í Salnum í Kópavogi í tilefni af 200 ára afmæli tón-
skáldsins Verdis. „Við erum á fullu núna að undirbúa tónleikana. Líf
mitt snýst um söng,“ segir Erla Björg. kjartan@mbl.is
Erla Björg Káradóttir er 35 ára í dag
Fjölhæf Auk þess að syngja sjálf af miklum móð er Erla Björg að
læra til söngkennara. Þá sér hún um æskulýðsstarf í Vídalínskirkju.
Tilhlökkun í byrjun
hausts fyrir afmæli
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Gabríela
Rún fæddist 31. desember
kl. 22.20. Hún vó 3.570 g
og var 52 cm löng. For-
eldrar hennar eru Dagný
Sif Snæbjarnardóttir og
Axel Rodriguez Överby.
Nýr borgari
Viktoría París Sabido, Ævar Kristjánsson, Saga Guðrún og Bryndís Gunnlaugs-
dætur héldu tombólu við Nóatún í Kópavogi. Þau seldu alls konar dót og söfnuðu
10.705 kr. sem þau gáfu til styrktar SOS-barnaþorpum.
Hlutavelta
Þ
órður fæddist í Reykjavik
og ólst þar upp, fyrst við
Grettisgötuna en síðan í
Hlíðunum. Þá var hann í
sveit í Flatey á Mýrum í
Hornafirði í sex sumur og vann síðan
í vegavinnu og við brúargerð á sumr-
in í Austur-Skaftafellssýslu.
Þórður var í Austurbæjarskól-
anum og Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, lauk verslunarskólaprófi frá
VÍ 1962, stundaði nám í rafvirkjun
við Iðnskólann í Reykjavík og var á
námssamningi hjá Íslenskum aðal-
verktökum, lauk sveinsprófi í raf-
virkjun 1967, öðlaðist síðan meist-
araréttindi í greininni og hefur sótt
fjölda námskeiða hjá Danfoss í Dan-
mörku og hjá Philips í Hollandi.
Eftir vega- og brúarvinnu hjá
Vegagerðinni hóf Þórður störf hjá Ís-
lenskum aðalverktökum við rad-
arstöðvar bandaríska hersins á
Stokksnesi, Hellissandi, Langanesi
og í Keflavík þar sem hann sinnti
mastravinnu og rafvirkjun.
Þórður var sölu- og markaðsstjóri
hjá Vélsmiðjunni Héðni 1968-78 og
vann þá mikið að markaðssetningu
Danfoss-hitakerfa hér á landi, og var
sölu- og markaðsstjóri yfir flóknari
raftækjum hjá Heimilistækjum 1978-
85.
Þórður stofnaði, ásamt þremur fé-
lögum sínum, fyrirtækið Hátækni ár-
ið 1985. Fyrirtækið sérhæfði sig upp-
Þórður Guðmundsson, fyrrv. framkvæmdastjóri – 70 ára
Við kaffiborðið Talið frá vinstri: Synir Guðmundar og Svanhildar, Kristófer Orri og Benedikt Máni; Guðmundur
Örn; afmælisbarnið; Inga; Brynja Sól, dóttir Guðmundar; Gunnar Þór og Hekla Björk, dóttir Gunnars og Ingu.
Í framvarðarsveit
farsímabyltingarinnar
Í laxveiði Þórður og Gunnlaug með tvo myndarlega laxa við Gljúfurá.