Morgunblaðið - 29.08.2013, Síða 39
haflega í búnaði loftræstikerfa en
1986 tók það við umboði Mobira-
bílasíma sem þá voru ráðandi á
NMT-fjarskiptamarkaði. Er það fyr-
irtæki sameinaðist Nokia varð Há-
tækni umboðsaðili þeirra hér á landi.
Þórður var framkvæmdastjóri Há-
tækni til 2005. Þá seldi hann sinn hlut
í fyrirtækinu en starfaði þar áfram til
2008.
Að loknu farsælu starfi hjá Há-
tækni starfaði Þórður fyrir hönd
íbúðakaupenda í þriggja manna eftir-
litsnefnd með byggingaframkvæmd-
um á stóru 58 íbúða húsi fyrir Sam-
tök aldraðra á Sléttuvegi í Fossvogi.
Í Flugbjörgunarsveitinni og
Lionsklúbbnum Frey
Þórður hefur starfað með Flug-
björgunarsveitinni frá 1962 og var
sæmdur gullmerki sveitarinnar 2011.
Hann hefur verið félagi í Lions-
klúbbnum Frey um langt árabil, hef-
ur setið þar í stjórn, verið gjaldkeri,
ritari og formaður klúbbsins og er
Melvin Jones-félagi hreyfing-
arinnar. Þá sat hann í stjórn Versl-
unarráðs Íslands (síðar Við-
skiptaráðs Íslands) á árunum
1996-2010.
Þórður hefur verið aðalræð-
ismaður Finnlands á Íslandi frá
2001.
Er forseti Finnlands var hér í op-
inberri heimsókn í maí sl. sæmdi
hann Þórð foringjastigi Finnsku
ljónsorðunnar fyrir störf hans í þágu
finnska lýðveldisins. Sendiherra
Finna á Íslandi, Irma Ertman, hefur
beðið Morgunblaðið fyrir heilla- og
árnaðaróskir til Þórðar í tilefni orðu-
veitingarinnar og sjötugsafmælis
hans í dag.
Fjölskylda
Eiginkona Þórðar er Gunnlaug
Jóhannesdóttir, f. 17.5. 1950, hár-
snyrtimeistari. Hún er dóttir Jó-
hannesar Oddssonar, f. 15.3. 1928, d.
26.1. 2005, glerskurðarmeistara í
Reykjavík, og k.h., Sigríðar Lárettu
Tryggvadóttur, f. 19.7. 1926, d.
12.10. 1993, húsfreyju.
Synir Þórðar og fyrri konu hans,
Erlu Gunnarsdóttur, eru Gunnar
Þór Þórðarson, f. 10.3. 1967, við-
skiptafræðingur hjá Fjármálaeft-
irlitinu en kona hans er Inga Hall-
steinsdóttir viðskiptafræðingur og
er dóttir þeirra Hekla Björk; Guð-
mundur Örn Þórðarson, f. 11.3.
1972, viðskiptafræðingur og eigandi
Skeljungs, kvæntur Svanhildi
Nönnu Vigfúsdóttur viðskiptafræð-
ingi, dóttir Guðmundar er Brynja
Sól en synir Guðmundar og Svan-
hildar Nönnu eru Kristófer Orri og
Benedikt Máni.
Börn Gunnlaugar frá fyrra hjóna-
bandi eru Þorgils Gunnarsson, f.
21.11. 1971, leiðsögumaður og bíl-
stjóri og eru dætur hans María Rós
og Sigríður Láretta; Agnes Hrönn
Gunnarsdóttir, f. 1.11. 1979, hár-
snyrtir en maður hennar er Svein-
björn Magnússon forritari og er
dóttir þeirra Tanja Rut.
Bróðir Þórðar er Finnbogi Guð-
mundsson, f. 17.11. 1946, pípulagn-
ingameistari og starfsmaður hjá A-4
en kona hans er Edda Dungal, fjár-
málastjóri hjá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur.
Foreldrar Þórðar voru Guð-
mundur Finnbogason, f. 21.3. 1910,
d. 15.3. 1996, pípulagningameistari í
Reykjavík, og k.h., Olga Dalberg, f.
13.11. 1904, d. 25.11. 1975, húsfreyja.
Úr frændgarði Þórðar Guðmundssonar
Þórður
Guðmundsson
Jóhanna Þorkelsdóttir
vinnuk. á Breiðabóli á Svalbarðsstr.
Björn Jónsson
húsmaður víða
Sólveig Björnsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Einar Jónsson
húsm. víða
Olga Einarsdóttir Dalberg
húsfrú í Rvík
Svanhildur Jónsdóttir
Jón Pálsson
Guðbjörg Bjarnadóttir
húsfrú í Reyjavík
Björn Bjarnarson Björnsson
sjóm.á Bakka í Reykjavík
Björg Bjarnardóttir
húsfrú á Búðum
Finnbogi G. Lárusson
kaupm. og útgerðam.
Guðmundur Finnbogason
pípulagningameistari
Guðrún Danivalsdóttir
vinnukona
Lárus J. Finnbogason Beck
bóndi við Manitobavatn
Í sínu fínasta Þórður og Gunnlaug.
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Margrét Sigmarsdóttir hefur varið
doktorsverkefni frá sálfræðideild Há-
skólans í Kaupmannahöfn. Heiti verk-
efnis er „Evaluation of the treatment
effects and implementation of Parent
Management Training – the Oregon
model (PMTO™) to treat children’s
behavior problems in Iceland“ sem út-
leggst á íslensku sem „Mat á árangri
og innleiðingarferli meðferðarúrræð-
isins Parent Management Training –
Oregon aðferð (PMTO™) til að með-
höndla hegðunarraskanir barna á Ís-
landi. Verkefnið samanstendur af fjór-
um fræðigreinum og hafa þrjár þeirra
þegar verið birtar í alþjóðlegum tíma-
ritum og er fjórða greinin í birtingar-
ferli.
Meginniðurstöður rannsóknarverk-
efnisins eru að PMTO meðferð dró
frekar úr aðlögunarvanda barna en sú
þjónusta sem þessum hópi er almennt
veitt í sveitarfélögum á Íslandi, sem
gefur til kynna að PMTO meðferð sé
árangursríkt meðferðarúrræði til að
vinna með hegðunarerfiðleika barna á
Íslandi. Niðurstöður varðandi innleið-
ingu PMTO á Íslandi sýndu að fylgni
meðferðaraðila við PMTO meðferð og
færni þeirra hélst á milli hópa frá ólík-
um tímabilum. Jafnframt sýndu nið-
urstöður að það dró úr tíðni tilvísana í
sérfræðiþjónustu hjá tilraunasveit-
arfélagi sem innleiddi PMTO aðferðina
en á sama tíma varð fjölgun á tilvís-
unum hjá samanburðarsveitarfélög-
um, sem ekki innleiddu aðferðina.
Formleg kynning verkefnisins hér á
landi fer fram á fræðslu- og fagnaðar-
fundi í Norræna húsinu 29. ágúst.
Margrét lauk kennaraprófi árið 1987, embættisprófi í sálfræði árið 1996
og hlaut sérfræðiviðurkenningu árið 2007. Hún er jafnframt með víðtæka
þjálfun í PMTO meðferð og kennslu og er leiðandi í innleiðingu slíkra með-
ferðarúrræða hér á landi ásamt því að starfa með bandarískri rannsóknar-
og fræðastofnun á sviði hegðunarraskana. Margrét er fædd 29. ágúst 1965
og er dóttir hjónanna Sigmars Þorsteinssonar og Þorbjargar Jónatans-
dóttur. Hún er gift Jóhannesi Þórðarsyni og á börnin Heru, Huga og Emblu
Jóhannesarbörn.
Doktor
Doktor í sálfræði
95 ára
Regína Guðmundsdóttir
90 ára
Hólmfríður Hafliðadóttir
Hulda Inger Klein
Kristjánsson
Jón Hansson
85 ára
Jóhannes Guðmundsson
Sigurjón Friðriksson
80 ára
Bjarni Elíasson
Eva Þórðardóttir
Guðrún Helga Lárusdóttir
75 ára
Agnar Þór Aðalsteinsson
Eggert Eggertsson
Helgi Þór Jónsson
Jón Þorgeirsson
Ólafur Ragnarsson
70 ára
Birna S. Guðjónsdóttir
Katla V. Helgadóttir
Kristmann Kristmannsson
OddnýSæmundsdóttir
60 ára
Agnar Guðlaugsson
Amalía Árnadóttir
Ásthildur Bjarnadóttir
Hanna Yuranets
Haukur Þór Adolfsson
Jóhann Þórsson
Jón Jóhannsson
Laufey Guðmundsdóttir
50 ára
Bára Heiða Sigurjónsdóttir
Einar Magnússon
Grétar R. Benjamínsson
Hulda Hrönn Jónsdóttir
Jakub Adamczak
Jón Ingi Herbertsson
Jónína Kristjánsdóttir
Jón Magnússon
Reynir Magnússon
Róbert Paul Scala
Wieslawa Przybysz
40 ára
Alma Jónsdóttir
Dagný Ósk Ingólfsdóttir
Elín Rósa Finnbogadóttir
Eva Rakel Allen
Eyrún Dögg Ingadóttir
Friðbjörn Gauti Friðriksson
Gísli Páll Hannesson
Guðlaugur Skúli
Guðmundsson
Guðmundur Sigurðsson
Halldóra Steinunn
Fannarsdóttir
Helga María Símonardóttir
Inga Hrönn Óttarsdóttir
Jacek Niescier
Lilla Wojtal
Óskar Sigurðsson
Ragnar Freyr Ásgeirsson
30 ára
Astrid Fehling
Birgir Baldursson
Davíð Már Sigurðsson
Gunnar Marel Hinriksson
Helga Sjöfn Nielsen
Hjalti Gunnlaugsson
Hrafnkell Rögnvaldsson
Katrín Dröfn Hilmarsdóttir
Kolbrún Helga Árnadóttir
Manuela Ósk Harðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Stefán ólst upp í
Reykjavík, er þar nú bú-
settur og er að ljúka námi
í félagsráðgjöf við HÍ.
Systkini: Bjarghildur
Káradóttir, f. 1971, og Jón
Trausti Kárason, f. 1979.
Foreldrar: Kári Jónsson,
f. 1952, loftskeytamaður
og starfsmaður hjá Isavia,
búsettur í Reykjavík, og
Hermína Guðrún Her-
mannsdóttir, f. 1954, d.
2012, var móttökuritari
við heilsugæslustöð.
Stefán Örn
Kárason
30 ára Jens ólst upp á
Stokkseyri, lauk prófum
frá Margmiðlunarskól-
anum og prófum í klass-
ískri teikningu frá The
Drawing Academy í Vibog
í Danmörku, og stundar
nú nám við Myndlist-
arskólann í Reykjavík.
Maki: Auður Hallsdóttir, f.
1988, MA-nemi í tal-
meinafræði við HÍ.
Foreldrar: Aðalbjörg
Jensdóttir, f. 1963, og Júl-
íus Geir Geirsson, f. 1964.
Jens
Júlíusson
30 ára Jóhann ólst upp í
Hafnarfirði, er við-
skiptalögfræðingur frá
Háskólanum á Bifröst og
vörustjóri hjá Gagnaveitu
Reykjavíkur.
Maki: Hanna Þóra Helga-
dóttir, f. 1988, snyrtifr..
Sonur: Tómas Örn, f.
2012.
Foreldrar: Sigurleifur
Kristjánsson, f. 1956,
flugumferðarstjóri, og
Þórunn Jónsdóttir, f.
1957, móttökustjóri.
Jóhann Sveinn
Sigurleifsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir