Morgunblaðið - 29.08.2013, Side 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Yfirlitssýning á verkum Kjarvals
verður opnuð í Þjóðarsafninu í St.
Pétursborg í Rússlandi 26. sept-
ember nk. og mun forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, opna
hana formlega. Sýningarsalir
safnsins eru í tveimur hallarbygg-
ingum og verður Kjarvalssýningin í
þeirri sem nefnd er Marmarahöllin.
Þjóðarsafnið er fyrsta listasafn
rússnesku þjóðarinnar og var stofn-
að af Nikulási II. keisara árið 1895.
Á sýningunni verða lykilverk eftir
Kjarval, yfir 40 málverk og teikn-
ingar en sýningarstjóri er Kristín
Guðnadóttir listfræðingur. Á sama
tíma verður opnuð sýning á Kjar-
valsstöðum á ljósmyndum eins
merkasta listamanns Rússlands, Al-
exanders Rodchenkos, sem var
brautryðjandi á sviði ljósmyndunar
og grafískrar hönnunar og sam-
tímamaður Kjarvals. Bylting í ljós-
myndun nefnist sú sýning, skipu-
lögð af einum þekktasta sýningar-
stjóra Rússlands, Olgu Sviblovu,
safnstjóra Multimedia Art Museum
í Moskvu. 233 ljósmyndir frá upp-
hafi ferils Rodchenkos til ársins
1935 verða sýndar.
Ljósmynd/Moscow House of Photography Museum
Tröppur Ljósmyndin Stairs eftir Alexander Rodchenko frá árinu 1930.
Kjarval í Rússlandi og
Rodchenko á Íslandi
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Í Þjóðleikhúsinu leggjum við okkur fram um
að laða að leiklistinni og leikhúsinu fólk á ólíkum
aldri með ólík áhugasvið og því er framboð og
úrval sýninga fjölbreytt. Við bjóðum upp á
hvorki fleiri né færri en tíu mismunandi barna-
sýningar í vetur, og opnum m.a. nýtt svið sér-
staklega fyrir brúðusýn-
ingar á Brúðuloftinu,“
segir Tinna Gunnlaugs-
dóttir þjóðleikhússtjóri um
komandi leikár leikhússins.
„Það sem við erum stolt-
ust af er að yfir helmingur
verka á verkefnaskrá leik-
hússins er ný og eldri ís-
lensk sviðsverk, en við tök-
um það hlutverk alvarlega
að leggja rækt við innlenda
leikritun. Fyrsta frumsýn-
ing á öllum sviðum; á Stóra sviðinu, í Kassanum,
Kúlunnni og á Brúðuloftinu, er til að mynda
frumflutningur á nýjum íslenskum verkum.“
Meinfyndið verk eftir Braga Ólafsson
Að sögn Tinnu hefst leikurinn þetta leikárið
annað kvöld þegar sýningar hefjast á ný á upp-
færslunni Englum alheimsins, sem valin var
Leikrit ársins 2013 á síðustu Grímuverðlaunaaf-
hendingu. „Sviðsetning Þorleifs Arnar Arnars-
sonar, byggð á meistaraverki Einars Más Guð-
mundssonar, sló rækilega í gegn á síðasta
leikári. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýn-
enda, níu tilnefningar og þrjár Grímur. Engl-
arnir eru sýning sem snertir, hreyfir við og vek-
ur til umhugsunar, borin uppi af snilldarleik
Atla Rafns Sigurðssonar. Tónlist Hjaltalín með
Högna Egilsson á sviðinu setur svo punktinn yf-
ir i-ið.“
Fyrsta frumsýning á Stóra sviðinu verður í
september en þar er um að ræða nýtt verk
Braga Ólafssonar sem nefnist Maður að mínu
skapi. „Þetta er meinfyndið verk um uppblásna
oflátunga, liðtæka lærisveina, hatursfulla undir-
málsmenn og sakleysingja sem eru ekki allir
þar sem þeir eru séðir. Nútímastofudrama
rammað inn í algjöran farsa. Maður að mínu
skapi er þriðja leikrit Braga fyrir leiksvið og í
öllum verkum hans hefur Eggert Þorleifsson
farið með aðalhlutverkið. Síðast voru Hænu-
ungarnir á fjölunum hér í Kassanum og fékk
sýningin afbragðsviðtökur og fjölda verðlana,
en verkið var meðal annars valið til leik-
skáldaverðlauna Norðurlandanna,“ segir Tinna.
Fyrsta frumsýningin í Kassanum er einnig í
september, en það er Harmsaga eftir Mikael
Torfason og er hér um frumraun Mikaels í
Þjóðleikhúsinu að ræða. „Verkið er tragísk ást-
arsaga, sótt beint í íslenskan samtíma um ung
hjón sem rata í öngstræti í hjónabandi sínu og
ástin sem einu sinni var snýst upp í andhverfu
sína og verður að helvíti og helsi með hörmuleg-
um afleiðingum. Verkið afhjúpar af vægðarleysi
ástir þeirra og sorgir, svikin loforð og brostna
drauma.“
Í Kúlunni verður nýtt íslenskt barnaleikriti,
Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmunds-
dóttur, frumsýnt í byrjun september í samstarfi
við leikhópinn Soðið svið. „Salka er svo sann-
arlega ein af vonarstjörnunum í íslenskri leik-
ritun,“ segir Tinna. Fyrsta frumsýning á
Brúðuloftinu verður í október, en það er ný sýn-
ing byggð á ævintýrinu um Aladdín eftir brúðu-
meistarann Bernd Ogrodnik. „Reglulegar
brúðusýningar bætast nú við fjölbreytta flóru
barnasýninga, en Brúðuheimar hefur nú fengið
fast aðsetur þar.“
Eðli hjónabandsins yrkisefni Auðar Övu
Á Stóra sviðinu frumsýnir Þjóðleikhúsið
Óvita Guðrúnar Helgadóttur í október. „Guð-
rún skrifaði þetta snjalla barnaleikrit og skörpu
þjóðfélagsádeilu um litla og stóra óvita sér-
staklega fyrir Þjóðleikhúsið á sínum tíma. Þetta
er í þriðja sinn sem verkið er tekið til sýningar í
Þjóðleikhúsinu og nú með nýrri tónlist og söng-
textum eftir hljómsveitarmeðlimina í Moses
Hightower.“
Eftir áramót verður frumsýnt í Kassanum
nýtt íslenskt verk, Svanir skilja ekki, eftir Auði
Övu Ólafsdóttur. „Auður sló eftirminnilega í
gegn með frumraun sinni í Þjóðleikhúsinu,
Svartur hundur prestsins, fyrir tveimur árum.
Hér er Auður að skoða undarlegt eðli hjóna-
bandsins og þá leyndu þræði sem þar eru
spunnir. Verkið er línudans á mörkum hins
harmræna og kómíska, en það fjallar um hjón
sem leita til sálfræðings vegna unglingssonar
sem þau ná engu sambandi við lengur. Hann
hefur breyst svo mikið síðan hann var fimm ára.
Sálfræðingurinn stingur upp á óhefðbundinni
meðferð.“
Tvö eldri íslensk verk verða sviðsett á leik-
árinu. Sveinsstykki Þorvaldar Þorsteinssonar
verður á Stóra sviðinu í leikstjórn Þorleifs Arn-
ar. „Þorvaldur skrifaði þennan einleik sér-
staklega fyrir Arnar Jónsson í tilefni af sextugs-
afmæli hans fyrir um tíu árum. Sýningin er
samstarfsverkefni við Hið lifandi leikhús, svið-
sett til að heiðra minningu Þorvaldar, sem lést
langt um aldur fram á árinu, en einnig til að
fagna sjötugsafmæli Arnars Jónssonar. Í Kass-
anum verður verkið Lúkas eftir Guðmund
Steinsson sviðsett í samstarfi við leikhópinn
Aldrei óstelandi, en Guðmundur var eitt
fremsta leikskáld síðustu aldar og flest verka
hans voru frumflutt í Þjóðleikhúsinu.“
Tinna leggur áherslu á að þótt íslensku leik-
ritin séu fyrirferðarmikil á komandi leikári
verði dagskráin líka hlaðin spennandi nýjum og
gömlum erlendum leikverkum. „Þingkonurnar
eftir Aristófanes verður jólasýningin á Stóra
sviðinu en þessi 2.400 ára gamali gleðileikur
verður nú tekinn til kostanna af Benedikt Er-
lingssyni leikstjóra. Lýðræðið með öllum sínum
kostum og göllum er viðfangsefni höfundar,“
segir Tinna og bendir á að konur fari með öll
helstu hlutverk og heil kvennahljómsveit verði á
sviðinu.
Vænisýki og múgsefjun hjá Miller
„Eftir áramót sýnum við óborganlega fynd-
inn nýjan söngleik, Spamalot úr smiðju Mont-
hys Pythons. Hinar goðsagnakenndu frásagnir
af Arthúri konungi og riddurum hringborðsins
birtast hér í glænýjum búningi, þar sem hinar
myrku miðaldir og veröld söngleikjanna renna
saman á undirfurðulegan og sprenghlægilegan
hátt. Um miðjan apríl frumsýnum við eitt
magnaðasta verk bandarískra leikhúsbók-
mennta, The Crusible eftir Arthur Miller sem
hefur í nýrri þýðingu hlotið nafnið Eldraunir.
Þetta er tímalaust meistaraverk og að margra
mati best skrifaða leikrit síðustu aldar. Verkið
lýsir samfélagi á valdi ofstækis, vænisýki og
múgsefjunar og baráttu eins manns í þágu
sannleikans,“ segir Tinna og tekur fram að leik-
stjóri sýningarinnar verði Stefan Metz sem leik-
stýrði Kákasíska Krítarhringnum í Þjóðleikhús-
inu fyrir rúmum áratug við góðar viðtökur.
Í Kassanum verður Pollock? frumsýnt í lok
október en þar er um að ræða glænýtt gam-
anverk sem sýnt hefur verið við miklar vinsæld-
ir víðs vegar um Bandaríkin. „Verkið er byggt á
sannsögulegum atburðum og fjallar um konu
sem kaupir forljótt málverk á skransölu til að
gera vinkonu sinni grikk, en fær vísbendingu
um að hér gæti hún hafa dottið í lukkupottinn
og þetta sé að öllum líkindum listaverkafundur
aldarinnar,“ segir Tinna og bendir jafnframt á
að starfsemi Leikhúskjallarans verði blómleg í
vetur, en þar verður boðið upp á uppistand,
gestaleiki og tilraunaverkefni. Auk þess sem
fjögur frumsamin dansverk verða frumflutt á
minni sviðum leikhússins í samstarfi við sjálf-
stæða sviðslistahópa.
„Leggja rækt við innlenda leikritun“
Helmingur verkanna á verkefnaskrá Þjóðleikhússins á komandi leikári er íslenskur Bjóða upp á
tíu mismunandi barnasýningar í vetur Jólasýningin í ár er uppsetning á 2.400 ára gömlum gleðileik
Ljósmynd/Eddi
Leikrit ársins Atli Rafn Sigurðsson þykir fara á miklum kostum í Englum alheimsins.
Tinna
Gunnlaugsdóttir
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður