Morgunblaðið - 29.08.2013, Síða 48
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 241. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Lést úr sjaldgæfum sjúkdómi
2. Dreifðu upptökum af kynmökum…
3. „Hvur fjárinn, þetta er hjólið mitt“
4. Andlát: Guðni Þórðarson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sviðslistahópurinn VaVaVoom
sýndi brúðusýninguna Breaking news
(Nýjustu fréttir) við góðar viðtökur á
nýafstaðinni Edinborgarhátíð. Á vef
hátíðarinnar má nálgast fimm dóma
og eru gagnrýnendurnir í öllum til-
fellum yfir sig hrifnir af sjónrænni
hlið sýningarinnar og hrósa aðstand-
endum sérstaklega fyrir vel heppn-
aða tilraunamennsku innan leikhús-
formsins. Gagnrýnandi tímaritsins
Three Weeks Edinburgh lýsir sýning-
unni sem „undraverðri“ og gefur
henni fimm stjörnur af jafnmörgum
mögulegum. Gagnrýnandi leiklist-
arvefjarins Fringe Review mælir með
sýningunni fyrir alla aldurshópa og
segir hana sannarlega vekja áhorf-
endur til umhugsunar um hlutverk og
áhrif fréttaflutnings á fólk. Að mati
gagnrýnanda tímaritsins The Skinny
eru liðsmenn VaVaVoom sérlega
hæfileika- og hugmyndaríkir. Hrósar
hann allri ytri umgjörð sem sé
„töfrandi“ en ráðleggur hópnum að
leggja meiri vinnu í þróun handrita
sinna. Undir þetta tekur gagnrýnandi
dagblaðsins The Scotsman.
Sýning VaVaVoom
fær lofsamlega dóma
Þetta vilja börnin
sjá! nefnist sýning
sem opnuð verður í
menningar-
miðstöðinni Slát-
urhúsinu á Egils-
stöðum í dag kl. 10.
Þar verða sýndar
myndskreytingar úr íslenskum barna-
og unglingabókum sem gefnar voru út
í fyrra, m.a. úr Ólíver sem Birgitta Sif
Jónsdóttir hlaut Dimmalimm-verð-
launin fyrir í ár, fyrir bestu mynd-
skreytingar í íslenskri barnabók.
Þetta vilja börnin sjá!
opnuð í Sláturhúsinu
Á föstudag Breytileg átt, víða 5-13 m/s og rigning. Gengur í norð-
vestan 18-23 norðvestantil með mikilli rigningu seinnipartinn, en
snjókomu ofan 200-300 metra yfir sjávarmáli. Hiti 1 til 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 3-10 m/s og rigning eða súld, en
þurrt að mestu austanlands. Bætir í úrkomu um landið vestanvert í
kvöld. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast austantil.
VEÐUR
Enn er ósamið á milli knatt-
spyrnumannsins Birkis
Bjarnasonar og ítalska A-
deildar liðsins Sampdoria.
Samkomulag er hinsvegar í
höfn á milli Sampdoria og
Pescara sem Birkir hefur
leikið með síðustu misseri.
„Meðan ég á eftir að semja
um mín mál vil ég ekki tjá
mig,“ sagði Birkir við Morg-
unblaðið í gær. Fleiri félög
voru á höttunum á eftir
honum. »1
Samkomulag í
höfn um Birki
„Þetta er algjörlega í okkar höndum
núna og við ætlum okkur að end-
urheimta titilinn. Þetta er bara undir
okkur komið,“ segir Þóra
B. Helgadóttir, mark-
vörður sænska úrvals-
deildarliðsins Malmö,
en lið hennar tyllti sér á
topp sænsku úrvals-
deildarinnar í fyrra-
kvöld. Malmö er tveim-
ur stigum á undan
meisturunum í Tyresö
þegar sjö umferðum
er ólokið. »4
Þetta er algjörlega í
okkar höndum
„Allir vita að við erum með besta
markvörðinn og Hörpu frammi sem
er búin að vera besti leikmaður deild-
arinnar. Við erum líka með frábæra
miðverði og fyrirliðinn er besti
stjórnandinn. En það eru hinir leik-
mennirnir sem hvorki fólk né fjöl-
miðlamenn sjá sem landa þessu,“
sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Ís-
landsmeistara Stjörnunnar. »1
Allir hinir leikmennirnir
sem landa þessu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Þetta hófst þegar ég fann áhættu-
leikaraskóla á netinu. Þá var ég ung-
ur og með ævintýraþrá og mig lang-
aði að breyta til,“ segir Valdimar
Jóhannsson áhættuleikari en hann
leikur þessa dagana í dönsku þátt-
unum „Vidste du at …“ sem sýndir
eru á Discovery Channel. Eftir að
Valdimar útskrifaðist sem áhættu-
leikari hefur hann leikið í fjölda
mynda á borð við „Svartur á leik“ og
James Bond-myndina „Die another
day.“ „Ég átti ekki von á að fá vinnu
við þetta eftir að ég útskrifaðist. Ég
fékk hins vegar hlutverk á Íslandi og
fór svo út til Bandaríkjanna og var í
þrjú ár í námi í Miami og lék lítil
hlutverk hér og þar. Að því loknu
flutti ég til Íslands en ferðaðist mikið
á milli Reykjavíkur og New York þar
sem ég vann stundum.“
Þurfti að lenda á malbiki
Fyrir fjórum árum tók Valdimar
þá ákvörðun að flytja til Danmerkur.
„Konan mín var að fara í nám í Óð-
insvéum í Danmörku. Við vorum þá
komin með tvö börn og ég fór með út.
Ég hélt áfram að leika eitthvað í
kvikmyndum og auglýsingum en ætl-
aði í raun ekkert í kvikmyndaiðn-
aðinn í Danmörku. Hins vegar leidd-
ist mér svo mikið einn daginn að ég
hafði samband við Lasse Spang Ol-
sen áhættuleikara. Ég sendi honum
tölvupóst og hann svaraði tveimur
dögum seinna þar sem hann bauð
mér hlutverk í auglýsingu. Ég hafði
hins vegar ekki látið hann vita að ég
kynni ekki dönsku.“ Þegar Valdimar
mætti svo á tökustað tók hann óvart
á sig það hlutverk að láta sig gossa í
malbikið á fullri ferð án þess að vera
með dýnu. „Leikstjórinn sagði við
mig þegar við gengum að tökustaðn-
um að allar dýnurnar væru upp-
teknar. Ég ætlaði nú ekki að valda
manninum vonbrigðum og sagði að
það skipti mig engu máli, dýnur
myndu bara vefjast fyrir mér. Atrið-
ið mitt var svo tekið upp fjórum sinn-
um og það er alveg óhætt að segja að
ég hafi ekkert getað hreyft mig í
fjóra daga á eftir,“ segir Valdimar,
en tekur þó fram að hann hafi aldrei
á sínum 17 ára starfsferli sem
áhættuleikari beinbrotnað eða slas-
ast alvarlega.
Áhugaverðir sjónvarpsþættir
Þættirnir dönsku, sem Valdimar
leikur í, eru þættir í anda „Myth-
busters,“ sem sýndir hafa verið á
Discovery Channel í áraraðir. Valdi-
mar, Lasse og Hummer reyna í þátt-
unum að smíða einhverja hluti á sem
frumlegastan hátt. „Í fyrsta þætt-
inum áttum við til að mynda að smíða
kafbát, aðeins úr þeim hlutum sem
finnast hjá venjulegum slátrara.“
Lét ævintýraþrána ráða för
Íslenskur
áhættuleikari bú-
settur í Danmörku
Áhættuleikari Valdimar Jóhannsson sýnir hér áhættuleik sinn þar sem hann styttir sér leið út úr brennandi húsi.
Valdimar segist ekki hafa beinbrotnað eða slasast alvarlega í starfi sínu, en starfsferill hans spannar 17 ár.
Sjónvarpsþáttur Valdimar og félagar smíðuðu kafbát úr gömlum ísskáp.