Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 1

Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. S E P T E M B E R 2 0 1 3  223. tölublað  101. árgangur  KREFJANDI AÐSTÆÐUR Á VEIÐISLÓÐ FRUMKVÆÐI, SKÖPUN, ÁRÆÐI VILL GERA HAGFRÆÐINA SKEMMTILEGA ÓLAFSFJÖRÐUR 18 KENNSLUBÓK 10HREINDÝRAVEIÐAR 14 ÁRA STOFNAÐ 1913 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Landspítalinn á nú inni rúmlega 1.100 milljónir í útistandandi kröfum og er hluti þeirra gjaldfallinn. Um 270 milljónir eru skuldir einstak- linga við spítalann, skuldir á erlend- um kennitölum eru um 190 milljónir og aðrar skuldir t.d. fyrirtækja og annarra heilbrigðisstofnana við spít- alann nema 680 milljónum. María Heimisdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Land- spítalans, segir skuldir einstaklinga við spítalann stundum töluvert þungar í innheimtu. „Það hefur stundum þurft að ganga eftir því að fólk borgi en síðustu ár hefur okkur fundist það ganga heldur tregar en áður. Fólk á erfiðara með að greiða auk þess sem nokkuð er um að fólk sé í greiðsluaðlögun og þá stoppar innheimtuferlið.“ Landspítalinn rukkar eins og reglugerð velferðarráðuneytisins kveður á um og samkvæmt henni hefur spítalinn ekki heimild til að fella niður skuldir eða breyta sjúk- lingagjöldum. María segir að það hefði mikið að segja fyrir spítalann að fá þessar úti- standandi kröfur greiddar. „Í fjár- lögum er gert ráð fyrir því að spít- alinn afli sér ákveðinna tekna með því að innheimta þessi gjöld og þá lækkar fjárheimildin frá ríkinu á móti. Þannig að ef við náum því ekki þá kemur það niður á afkomu spít- alans.“ Margir skulda spítalanum  Landspítalinn á inni 1.100 milljónir í útistandandi kröfum hjá einstaklingum og stofnunum  Skuldir einstaklinga við spítalann orðnar erfiðari í innheimtu Skuldir og innheimta » Skuldir einstaklinga við Landspítalann nema um 270 milljónum. » Spítalinn er með samning við tvær lögfræðistofur um innheimtu, önnur sér um inn- heimtu innanlands en hin um alþjóðlegar skuldir. MSpítalinn á inni … »12 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Vísbendingar eru um að fleiri ungir menn og unglingspiltar noti eða prófi vaxtaaukandi stera, en notkun þeirra getur verið mjög skaðleg heilsunni. Á undanförnum árum hef- ur tollgæslan lagt hald á sífellt meira magn af sterum. Í skýrslu greining- ardeildar ríkislögreglustjóra er ster- unum líkt við fljótandi kókaín. Íþróttakennarar í framhalds- skólum á höfuðborgarsvæðinu sem rætt var við sögðust hafa orðið varir við steraneyslu meðal skólapilta. Að- gengi virtist vera auðvelt. Íþróttakennararnir tengja stera- neysluna við þá áherslu sem margir leggi á útlit og séu tilbúnir til að neyta alls kyns efna, óháð því hvort efnin séu heilsusamleg eða ekki. Á fíknigeðdeild Landspítalans leita m.a. þeir sem neyta stera sam- hliða neyslu á fíkniefnum. „Það fer ekki vel saman þegar menn nota örvandi efni og stera og eru kannski með persónuleika- röskun líka. Það er ekki góður kok- teill,“ segir Kjartan J. Kjartansson, yfirlæknir á deildinni. Yngri notend- ur stera Ljósmynd/Tollgæslan Sprauta Sterar í fljótandi formi sem tollgæslan lagði hald á.  Sífellt meira af sterum tekið í tolli Ársfundur Alþjóðahafrannsóknaráðsins var settur í Hörpu í fyrradag og hann sækja um 700 vísindamenn á sviði hafrannsókna. Í gær var sýning á veggspjöldum ungra háskólanema sem stunda framhaldsnám í fiskifræð- um við HÍ og vinna að verkefnum sem tengjast haf- og fiskirannsóknum. Fjölbreytt málefni hafsins rædd í Hörpu Morgunblaðið/Golli  Óleyfileg- ar búðir í atvinnu- húsnæði eru á um 150 til 190 stöðum í Reykjavík og ná- grenni, að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæðisins. Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur falið honum að ræða við for- svarsmenn skipulagsmála viðkom- andi sveitarfélaga um stöðuna og úrbætur. »6 Óleyfilegar íbúðir á 150-190 stöðum María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að afturkalla lög um náttúruvernd nr. 60/2013 sem voru samþykkt á Alþingi rétt fyrir þing- lok í vor. Lögum þessum var ætlað að taka gildi 1. apríl 2014. Ráðherra hefur ákveðið að leggja fram frum- varp á Alþingi þegar þing kemur saman í haust með tillögu um að fella úr gildi hin nýju náttúruverndarlög nr. 60/2013, sem annars tækju gildi 1. apríl 2014. Verði það frum- varp samþykkt á Alþingi verður í raun engin breyt- ing heldur munu núgildandi nátt- úruverndarlög nr. 44/1999 halda áfram gildi sínu. „Það ríkti mikill ágreiningur um þessi lög og margir skrifuðu undir á ferðafrelsi.is þar sem menn gagn- rýndu harðlega mörg ákvæði lag- anna sem þóttu vera takmarkandi og ganga of langt,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra. Ný lög í undirbúningi „Til þess að fá ráðrúm til þess að fara yfir athugasemdir sem bárust þá fannst mér mikilvægt að lögin yrðu afturkölluð og sett af stað innan ráðuneytisins vinna við að undirbúa ný náttúruverndarlög og endurskoð- un náttúruverndaráætlunar. Hug- myndin er sú að leggja fram nýtt frumvarp á vorþingi þar sem meira tillit verður tekið til þeirra athuga- semda sem bárust og í meiri sátt. Þessi lög voru samþykkt í vor með gildistöku langt fram í tímann vegna þess að það var mikill ágreiningur í þinginu um málið og þetta var því leið fyrrverandi ríkisstjórnar til þess að klára málið,“ segir Sigurður. Náttúruverndarlög afturkölluð  Lagt verður til að ný náttúruverndarlög sem samþykkt voru í vor verði felld úr gildi  Núgildandi lög halda gildi sínu  Meira tillit tekið til athugasemda Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.