Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 18
NORÐURLAND-EYSTRA
DAGA
HRINGFERÐ
ÓLAFSFJÖRÐUR
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Menntaskólinn á Tröllaskaga í Ólafs-
firði er yngsti framhaldsskóli lands-
ins, stofnaður 2010, og greinilega
spennandi staður, því þar er margt
óhefðbundið í boði. Lára Stef-
ánsdóttir hefur verið skólameistari
frá stofnun.
„Það hefur verið mjög skemmti-
legt að byggja skólann upp. Við feng-
um að byrja í nýja framhalds-
skólakerfinu og gátum strax
skipulagt nám og kennslu með öðr-
um hætti en áður var,“ segir Lára við
Morgunblaðið.
„Þetta gerir það að verkum að
hér er til dæmis skylda fyrir alla að
taka nám í frumkvöðlafræðum og í
listum og einnig hugsum við hér um
hvernig nemendur vinna og læra.
Það er kallað að læra á ákveðnum
þrepum. Síðan er hér nám sem ekki
hefur verið annars staðar, til dæmis
listljósmyndabraut á listabrautinni;
hér geta nemendur því tekið stúd-
entspróf af listljósmyndabraut og
líka í skapandi tónlist, sem við erum
nýbyrjuð með. Það er ekki eins og
hefðbundinn tónlistarskóli heldur
læra nemendur að skapa tónlist. Síð-
an erum við með útivistarbraut þar
sem finna greinar eins og fjalla-
mennsku og útivistargreinar ýmiss
konar. Nemendur okkar eru að læra
á brimbretti þessa dagana, fara á
fjallareiðhjól, í sjósund og ýmsa
óhefðbundna hluti í íþróttum í stað
þess að vera alltaf inni í sal.“
Lára tekur skýrt fram, þrátt
fyrir það sem hún hefur þegar talið
upp, að Menntaskólinn á Tröllaskaga
sé líka hefðbundinn framhaldsskóli:
„Við erum með náttúruvísinda-, fé-
lags- og hugvísindabraut.“
MTR er 200 eininga skóli þann-
ig að hann tekur þrjú ár. „Komið hef-
ur fram að menn vilja gjarnan fara
að stytta framhaldsskólann og nú
þegar eru þrír með styttri námstíma
en fjögur ár og við erum einn
þeirra.“
Lára segir tímann frá 2010 hafa
verið mjög spennandi í Fjallabyggð,
sameinuðu sveitarfélagi Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar. „Það gerðist svo
margt skemmtilegt á svipuðum tíma;
skólinn var stofnaður, Héðinsfjarð-
argöng voru tekin í notkun og hér
hefur verið margskonar gerjun í
gangi. Eftir tilkomu Listhússins
hennar Alice Liu hér í Ólafsfirði eru
til dæmis oft og tíðum nokkrir lista-
menn hvaðanæva úr heiminum í
bænum og þeir auðga mjög starf
okkar í skólanum.“
Lára segist hafa fengið einstak-
lega vel menntað og gott starfsfólk
„sem kom okkur í raun verulega á
óvart en gerir að verkum að við náð-
um miklum árangri í að byggja skól-
ann hér upp“.
Skólinn útvegar kennurum far-
tölvu og ipad og nemendum er gert
að vera með fartölvu. „Við gerum
hins vegar mjög litlar kröfur til
bókakaupa þannig að þegar upp er
Myndlist Á veggjum skólans eru mörg málverk eftir Kristin G. Jóhannsson, fyrsta skólastjóra Grunnskóla Ólafs-
fjarðar þegar hann var í húsinu. Heiðar Karl Rögnvaldsson, Lára Stefánsdóttir og Anna Lena Victorsdóttir.
Brimreið, skapandi
tónlist og ljósmyndun
Láru var tvennt efst í huga: gott kaffi og ljósmyndun
Í Ólafsfirði koma fyrir nokkur mannanöfn sem virðast vera lítt eða ekki
þekkt annars staðar á landinu, eftir því sem næst verður komist með leit á
netinu og í samtölum við fróða menn. Nokkrir Ólafsfirðingar, bæði látnir og
lifandi, bera nafnið Gottlieb. Af ætt Gottlieba þar er í öðrum landsfjórðungi
ungur drengur sem heitir Nývarð en það nafn er sömuleiðis tengt Ólafsfirði.
Þá benda kunnugir á nafnið Gamalíel og má í því sambandi vísa til Magn-
úsar Gamalíelssonar, útgerðarmanns í Ólafsfirði, sem lést árið 1985.
Nafnahefðir eins og þessar eru alls ekki bundnar við Ólafsfjörð. Ármann
er dæmigert Akureyrarnafn og margir karlar í Skagafirði heita Konráð, Indr-
iði og Hjálmar. Þá er kvenmannsnafnið Sigurlaug algengt þar í sveit. Albert
og Guðbjartur eru Vestfjarðanöfn og margir þingeyskir karlar heita Sig-
tryggur. Þá þekkist Bogi vel á Breiðafjarðarsvæðinu. Á Suðurlandi gætir
þessa sömuleiðis. Runólfur, Högni og Eyjólfur eru nöfn sem margir tengja
við Vestur-Skaftafellsýslur. Sveinn og Ólafur eru sömuleiðis algeng karla-
mannsnöfn sunnan heiða. Kristleifur er dæmigert Borgarfjarðarnafn og
tengt Húsafelli.
Karlar heita Gottlieb og Nývarð
Marga bæjarprýðina er að finna í
Ólafsfirði, ein þeirra er skíðastökk-
pallur bæjarbúa, sem staðsettur er
nánast í miðbæ þessa annálaða
skíða- og íþróttabæjar.
Pallurinn, sem er eini steypti
skíðastökkpallur landsins, var reistur
í sjálfboðavinnu árið 1967. Mikill
áhugi var á skíðastökki í Ólafsfirði á
þessum árum, en aðstöðuna til æf-
inga skorti.
Bygging pallsins hafði tilætluð
áhrif, því Ólafsfirðingar urðu Íslands-
meistarar í skíðastökki í árafjöld, allt
þar til hætt var að keppa í greininni
hér á landi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skíðastökkpallur Sá eini á landinu er staðsettur í miðbænum í Ólafsfirði.
Stökkpallur í miðjum bæ
Hjá Vélfagi í Ólafsfirði eru framleiddar vélar til fisk-
vinnslu, hausarar, flökunarvélar og roðflettivélar, og
þykja afbragð. Eigandinn segir þó erfitt að svara þeirri
spurningu hvort reksturinn gangi vel: „Við erum bein-
tengd sjávarútvegi og finnum fyrir því hve óvissan hef-
ur verið mikil í greininni,“ segir Bjarmi Sigurgarðsson.
Bjarmi og eiginkona hans, Ólöf Ýr Lárusdóttir,
stofnuðu Vélfag 1995. Þau eru bæði að sunnan en
ákváðu að venda sínu kvæði í kross árið 1987 og flytja
út á land. Ólafsfjörður varð fyrir valinu, Bjarmi fór á
sjó en varð að hætta og fara í land eftir að hafa slasast
á auga. Hann hóf síðan að þjónusta útgerðina við við-
hald véla um borð og fyrirtækið þróaðist smám saman.
Starfsmenn eru nú 10 að eigendunum meðtöldum.
Hjónin bjuggu í 15 ár í Ólafsfirði en eru flutt til Ak-
ureyrar og reka fyrirtækið á báðum stöðum.
Bjarmi segir óvissu í sjávarútvegi draga úr fjárfest-
ingum, sem sé slæmt fyrir iðnaðinn. „Mér finnst vanta
langtímastefnu í sjávarútvegi sem öllum er ljós.“
Hann nefnir að fiskverkafólki hafi fækkað en bendir
á að gríðarleg aukning hafi orðið hjá iðnfyrirtækjum
sem vinni með sjávarútveginum við að þróa tæki. „Það
er mikið talað um að störfum fækki en ég held að menn
átti sig ekki á því að í raun og veru er þetta frekar til-
Ómetanleg
verðmæti
Sjávarútvegsfyrirtæki
vinna með iðnfyrirtækjum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gengur vel Ingi Freyr Hilmarsson (til vinstri) og
Bjarmi Sigurgarðsson, framkvæmdastjóri Vélfags.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Við erum stolt fyrirtæki á
Ólafsfirði