Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Erlendir aðilar, sem eiga um 340 milljarða króna í ríkisbréfum og á innistæðureikningum, skipta ekki öllum þeim vaxtagreiðslum sem þeir fá í sinn hlut yfir í gjaldeyri til að fara með úr landi heldur leita þeir aftur með hluta upphæð- arinnar í innlenda ávöxtun. Þetta kemur fram í markaðs- punktum greiningardeildar Arion banka, en þar segir að erlendum aðilum hafi áskotnast 21,5 millj- arðar króna í vexti á árinu 2012 og fyrstu sex mánuðum þessa árs. Á sama tíma fóru þeir einungis með um tvo þriðju þeirrar upphæðar út á gjaldeyrismarkað. Sú staðreynd að þeim virðist ekki liggja svo mikið á að komast úr landi með gjaldeyri í skiptum fyrir þær krónur sem þeir fá í vexti dregur úr þrýstingi á gengi krónunnar. Heimilt er að skipta samnings- bundnum afborgunum og vöxtum í gjaldeyri. Samkvæmt nýlegum upplýsing- um frá Seðlabanka Íslands fóru erlendir aðilar með um tæpa átta milljarða á gjaldeyrismarkað á árinu 2012. Þá fóru þeir með um 5,7 milljarða úr landinu á fyrri hluta ársins í ár. Samtals fóru er- lendir aðilar með tæplega 14 millj- arða á gjaldeyrismarkað af þeim 21,5 milljarða vöxtum sem féllu þeim í skaut. Því er „nokkuð ljóst að erlendum aðilum hefur ekki legið mikið á að komast úr land- inu“, segir greiningardeildin. Ræður ekki gengisþróun Greinendur Arion banka benda ennfremur á að gengi krónunnar hefur að sama skapi ekki tekið ítrekað fyrirsjáanlegum breyting- um í aðdraganda eða kjölfar gjald- daganna þar sem vaxtagreiðslur falla í skaut erlendra aðila. Að mati greiningardeildarinnar er það til marks um að vaxtagreiðslurnar séu ekki ráðandi þáttur um geng- isþróun krónunnar í bráð eða lengd. Það vekur einnig athygli, að því er segir í markaðspunktum Arion banka, að þegar horft er til krónu- eignar erlendra aðila hefur staða þeirra í ríkisbréfum aukist um tvo milljarða frá ársbyrjun 2012. Á sama tíma hefur heildarkrónus- tabbinn minnkað um 83 milljarða króna. Samdrátturinn stafar því af lækkun í innistæðum (34 milljarð- ar) og íbúðabréfum (51 milljarður). Erlendir krónueigendur leita áfram fyrst og fremst í stystu rík- isbréfaflokkanna en hafa þó und- anfarið sýnt verðtryggðum bréfum meiri áhuga. hordur@mbl.is Liggur ekki mikið á að komast úr landi  Fóru með tvo þriðju vaxtagreiðslna út á gjaldeyrismarkað Krónustabbi » Erlendir aðilar fengu 21,5 milljarða króna í vaxta- greiðslur á árinu 2012 og fyrstu sex mánuði þessa árs. Samkvæmt lögum um gjald- eyrismál mega þeir skipta þeim greiðslum í gjaldeyri og fara með úr landi. » Einungis tveir þriðju þeirrar upphæðar – um 14 milljarðar – leituðu hins vegar út á gjald- eyrismarkaðinn á tímabilinu. Erlendir aðilar fara minna með vaxtagreiðslur í gegnum gjaldeyrismarkaðinn Upphæðir eru í milljörðum króna Heimild: Útreikningur greiningardeildar Arion banka, Lánamál, Seðlabanki Íslands, Hagstofan og Íbúðalánasjóður Krónustabbi erlendra aðila hefur minnkað talsvert Upphæðir eru í milljörðum króna Heimild: Seðlabanki Íslands 7 6 5 4 3 2 1 0 1.F ‘12 2.F ‘12 3.F ‘12 4.F ‘12 1.F ‘13 2.F ‘13 3.F ‘13 4.F ‘13 Gjaldeyrisviðskipti Vextir og verðbætur 700 600 500 400 300 200 100 0 Vaxtagreiðslur og verð- bætur m.v. eignastöðu í lok ágúst De s. ‘0 8 Ap ríl ‘0 9 Ág ús t ‘0 9 De s. ‘0 9 Ap ríl ‘10 Ág ús t ‘1 0 De s. ‘10 Ap ríl ‘11 Ág ús t ‘1 1 De s. ‘11 Ap ríl ‘12 Ág ús t ‘1 2 De s. ‘12 Ap ríl ‘13 Innstæður Ríkisbréf og víxlar Íbúðabréf Frá ársbyrjun 2012 hefur staðan lækkað um 83 ma. kr. Væntingar íslenskra neytenda voru talsvert minni á 3. ársfjórðungi en á fyrri helmingi ársins. Þá hyggja færri á stórkaup á næstunni en raunin var í sumarbyrjun. Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningar Íslandsbankan, en þar segir að þetta bendi til þess, ásamt öðrum nýlegum hagvísum, að einkaneysla vaxi hægt þessa dag- ana og að vöxtur hennar á seinni hluta árs kunni að verða hægari en vænst var. Capacent Gallup birti í gærmorg- un Væntingavísitölu Gallup fyrir septembermánuð. Vísitalan hækk- ar um 7,4 stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,7 stig. Hækkunin kem- ur eftir mikla lækkun í sumar, en í júlí og ágúst lækkaði vísitalan sam- tals um þriðjung, og fór úr 100,6 stigum í júní niður í 66,3 stig í ágúst. Þrátt fyrir hækkunina nú er gildi vísitölunnar það næstlægsta það sem af er ári. Vísitala fyrir mat á núverandi ástandi mælist 39,1 stig og hækkar um 2,7 stig frá ágúst. Mat á at- vinnuástandi hækkar um 9 stig og mat á efnahagslífinu um 3 stig. Minni væntingar  Íslenskir neytendur eru talsvert svartsýnni en þeir voru fyrr á árinu Morgunblaðið/Eggert Dregur úr bjartsýni Væntingar neytenda hækkuðu mikið eftir kosningar. Iðnaðarryksugur NT 25/1 Eco Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is NT 55/1 Eco Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. Þegar gerðar eru hámarkskröfur Sjálfvirk hreinsun á síu Miðvikudags- PIZZA-TILBOÐ Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23 Þú hringir Við bökum Þú sækir 12“ PIZZA, 3 áleggstegundir og 1l Coke 1.290 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.