Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Menn sem bera marga hatta hafa gjarnan tíma til alls og þaðmá til sanns vegar færa þegar Björn Th. Árnason er ann-ars vegar. Hann er framkvæmdastjóri, skólastjóri og for-
maður Félags íslenskra hljómlistarmanna auk þess sem hann spilar
golf í frístundum og fylgist með fótboltanum úr fjarlægð.
„Ég er fyrst og fremst KR-ingur,“ segir kappinn sem var bak-
vörður í Íslandsmeistaraliði KR 1968 og fagnaði enn einum Íslands-
meistaratitli fyrir framan sjónvarpið í stofunni heima sl. sunnudag.
„Það var yndislegt að fylgjast með þessu og sjá alla gleðina. Um-
gjörðin er æðisleg og ég hefði viljað sjá svona umgjörð fyrir fjölda-
mörgum árum. Það er líka gaman að fylgjast með því hvað klúbb-
urinn er stór og öflugur.“
Björn er 63 ára í dag en hann segir að nóg sé að gera í vinnunni
og ekki tími til þess að halda upp á afmælið. „Það er heldur ekki
ástæða til þess því ég er svo ungur ennþá,“ segir hann. Bætir við að
hann þurfi að reka öflugan tónlistarskóla og standa í stéttarbaráttu
fyrir tónlistarfólk í landinu. Ef veður leyfir skellir hann sér líka
kannski út á golfvöll eftir vinnu. „Mér fannst golf alltaf fyrst og
fremst vera sport fyrir gamalmenni og lata einstaklinga en nú finnst
mér þetta vera æðislegt sport fyrir alla, hvort sem viðkomandi er
ungur og efnilegur eða bara gamall.“ steinthor@mbl.is
Björn Th. Árnason 63 ára
Kylfingur með meiru Björn Th. Árnason, framkvæmdastjóri Félags
íslenskra hljóðfæraleikara, er með 17 högg í forgjöf í golfinu.
Golfið jafnt fyrir
unga sem gamla
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Birgir Aðalsteinn fæddist
26. janúar kl. 0.47. Hann vó 3.320 g og
var 50 cm langur. Foreldrar hans eru
Gróa Rán Birgisdóttir og Ásgeir Krist-
insson.
Nýir borgarar
Akureyri Elsa Margrét fæddist 4. jan-
úar kl. 18.13. Hún vó 3.440 g og var 50
cm löng. Foreldrar hennar eru Katrín
Björnsdóttir og Aðalgeir Sigur-
geirsson.
S
igríður Ragna fæddist í
Höfn á Selfossi og ólst
þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MR 1964,
kennaraprófi frá KÍ
1965 og sótti fjölda kennsl-
unámskeiða.
Sigríður Ragna var kennari við
Álftamýrarskóla 1965-74 og við
Melaskólann 1981-84, var önnur af
tveimur fyrstu þulunum við Sjón-
varpið 1966-72, vann við kynningar
og gerð barnaefnis fyrir Sjón-
varpið 1978-79 og var yfirmaður
barnaefnis þar 1985-2011.
Sigríður Ragna sat í sam-
norrænni nefnd um barnamenn-
ingu á vegum norrænu ráðherra-
nefndarinnar 1983-87, starfaði í
Children and Youth Expert Group
samstarfsnefnd evrópskra sjón-
varpsstöðva, EBU, og stóð fyrir
framleiðslu fjölda íslenskra barna-
mynda sem margar hverjar hlutu
verðskuldaða viðurkenningu á
kvikmyndahátíðum víða um heim.
Sigríður Ragna stóð fyrir kynn-
ingu á íslenskri ull og heimilisiðn-
aði, víðs vegar um Bandaríkin og
Kanada, á vegum Rammagerð-
arinnar, Módelsamtakanna, Hótel
Loftleiða, Hildu og Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins 1976-84.
Sigríður Ragna sat í stjórn For-
eldrafélags Melaskóla 1980-82, var
formaður Barn og kultur, nefndar
á vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar, sat í Skólasafnanefnd
Reykjavíkurborgar 1982-86, í
skólanefnd Fjölbrautaskólans við
Ármúla frá 1994 og formaður 2004-
2012, í stjórn Miðskólans í Reykja-
vík 1992-96. formaður Þjóðhátíð-
arsjóðs 2002-2005, formaður nefnd-
ar um Hvatningarverðlaun
Menntaráðs Reykjavíkur 2006-
2010, sat í Pisa nefnd Reykjavík-
urborgar 2008-2010, í stjórn Neyt-
endasamtakanna 2010-11, í stjórn
Hverfisráðs Vesturbæjar 2006-
2008 og var varaformaður Prýði-
félagsins Skjaldar, hverfafélags
Skerfirðinga, sunnan flugvallar.
Sigríður Ragna var varafor-
maður Hvatar um skeið, formaður
Félags sjálfstæðismanna í Nes- og
Melahverfi 1995-2000, sat í kjör-
nefndum Sjálfstæðisflokksins
vegna framboðslista í borg-
arstjórnar- og alþingiskosningum,
Sigríður R. Sigurðardóttir, fyrrv. yfirm. barnaefnis RÚV – 70 ára
Ljósmynd: Erla Stefánsdóttir.
Brúðkaup Hrefnu og Björns Frá vinstri: Bjarni, Kristín Martha, afmæl-
isbarnið, Björn, Hrefna Þorbjörg, Hákon, Sigurður Óli og Sveinbjörg.
Fyrsta sjónvarpsþulan
horfir lítið á sjónvarp
Á skíðum Hjónin eru mikið skíðafólk en Hákon er fyrrv. formaður Skíða-
sambands Íslands. Hér eru þau í Ölpunum í Sviss með Matterhorn í baksýn.
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Sími: 553 1620 • laugaas.is
KÓNGABORGARI
(120 g safaríkt nautakjöt)
með osti, iceberg,
sósu, frönskum og
kokkteilsósu
Árin segja sitt
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is