Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Cold Turkey, stuttmynd eftir Fann-
ar Þór Arnarsson, hefur verið valin
til sýningar á hátt í 50 kvikmynda-
hátíðum víða um heim. Fannar mun
brátt ljúka námi við Boston Uni-
versity, nemur þar kvikmyndagerð
með áherslu á leikstjórn og fram-
leiðslu kvikmynda og sjónvarps-
efnis. Hann tók myndina upp í sum-
ar hér á landi og hefur hún þegar
unnið til verðlauna, m.a. sem besta
mynd nemanda á
alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni
New Jersey Int-
ernational Film
Festival og er
auk þess í und-
ankeppni á kvik-
myndahátíð sem
fram fer á netinu,
First Glance
Short Online
Contest, ásamt 18 öðrum stutt-
myndum. Valið á bestu myndinni er
í höndum notenda vefjarins og hlýt-
ur sigurvegarinn, höfundur mynd-
arinnar sem flest atkvæði fær, 2.000
dollara í verðlaun auk þess sem
myndin hans verður sýnd á First
Glance Film Festival-hátíðinni í
Hollywood.
„Þessi mynd fjallar um ungan ís-
lenskan táning sem heitir Adam og
vonlausa baráttu hans við skrímsla-
legar langanir sínar,“ segir Fannar
um efni myndarinnar og má við það
bæta að Adam er mannæta. Aðal-
leikari Cold Turkey er Brynjar
Hlöðversson, einn af bestu vinum
Fannars, og þreytir hann í mynd-
inni frumraun sína í kvikmyndaleik.
Fannar segir að sig hafi lengi grun-
að að Brynjar byggi yfir miklum
leiklistarhæfileikum og því hafi hon-
um þótt tími til kominn að draga þá
fram í dagsljósið. „Að mínu mati fer
þarna einhver allra efnilegasti leik-
ari Íslands og hvet ég íslenska kvik-
myndaframleiðendur til að hafa
hann í huga fyrir framtíðarverk-
efni,“ segir Fannar um vin sinn
Brynjar.
Dreifingaraðili áhugasamur
– Þú segir að myndin hafi vakið
gríðarlega athygli víða um heim,
gætirðu nefnt dæmi um þá athygli?
„Já, Cold Turkey hefur ekki ein-
ungis verið valin til sýningar á tugi
hátíða hérna í Bandaríkjunum held-
ur einnig í ýmsum löndum víða um
heim. Þar má nefna lönd eins og
Portúgal, Spán, Eistland, Þýska-
land, Ítalíu, Taíland, Ástralíu, Eng-
land, Úrúgvæ og Kína. Þá hefur
bandarískur dreifingaraðili, sem ég
get ekki nefnt á þessum tímapunkti,
sýnt áhuga á því að dreifa myndinni
hérna í Bandaríkjunum með fjöl-
mörgum sýningum í bíósölum víða
um landið,“ segir Fannar. Ef af því
verði muni hann sækja sýningar á
myndinni víða um Bandaríkin og
svara spurningum gesta að sýn-
ingum loknum. „Það mun svo allt
fara eftir velgengni myndarinnar á
þessum sýningum hvort hún fer á
netið og verður til sýningar hjá öðr-
um fyrirtækjum sem eru í atvinnu-
sambandi við dreifingaraðilann, en
þar má nefna Netflix, Itunes og
önnur stór fyrirtæki.“
– Myndin hefur verið valin til sýn-
ingar á tugum hátíða og hlotið verð-
laun. Hvaða hátíðir eru þar helstar
og hvaða verðlaun?
„Ein helstu verðlaun Cold Turkey
til þessa er Best Student Film á
New Jersey International Film
Festival. Hún hefur einnig unnið til
fleiri verðlauna hérna í Bandaríkj-
unum, var m.a. valin uppáhalds-
stuttmynd áhorfenda á Film Dayton
Festival. Myndin hefur einnig unnið
til verðlauna sem besta stuttmyndin
á evrópskum kvikmyndahátíðum á
Spáni og Ítalíu og ég hef hlotið ein-
staklingstilnefningar fyrir bestu
leikstjórn stuttmyndar á ástralskri
hátíð sem heitir Colortape Inter-
national Film Festival og banda-
rískri hátíð sem nefnist Fear Fete
Film Festival,“ segir Fannar. Þá
hafi Brynjar einnig verið tilnefndur
sem besti leikari stuttmyndar á síð-
astnefndu hátíðinni.
Raunir mannætu
Stuttmynd Fannars Þórs Arnarssonar, Cold Turkey,
hefur verið valin á tugi kvikmyndahátíða og hlotið verðlaun
Mannætumartröð Stilla úr stuttmyndinni Cold Turkey sem segir af mann-
ætunni Adam sem ákveður að breyta um mataræði, hætta að borða fólk.
Fannar Þór
Arnarsson
First Glance Short Online Contest
lýkur 13. október og þeir sem vilja
styðja Fannar og kjósa Cold Tur-
key geta gert það á www.indiepix-
films.com/videocontest_sv/
FIRST-GLANCE/ 73535169.
þjófinn og verður hann ástfanginn
af samstarfskonu sinni, Lucy, í leit
þeirra að glæpamanninum. Sá ræn-
ir skósveinum Gru, breytir þeim í
her fjólublárra skrímsla og hyggur
á heimsyfirráð.
Aulinn ég 2 er fínasta skemmtun
fyrir börn og fullorðna, líkt og fyrri
myndin þó að hún nái ekki alveg
sömu hæðum. Aulinn ég bauð upp á
eitthvað nýtt og spennandi, bráð-
skemmtilegt illmenni, furðuverur og
frábæra tónlist eftir snillinginn
Pharrell Williams. Framhalds-
myndin kemur ekki á óvart að neinu
leyti en er samt sem áður lífleg og
hröð, nóg af gríni og fíflalátum sem
ættu að halda athygli bíógesta á öll-
Aulinn ég 2, Despicable Me2 á frummálinu, er fram-hald afar vel heppnaðrarog skemmtilegrar teikni-
myndar frá árinu 2010. Í henni
sagði af ofurglæpamanninum Gru
sem tókst með aðstoð skósveina
sinna að stela tunglinu. Gru ætt-
leiddi þrjár ungar stúlkur og notaði
þær sem tálbeitu til að stela appa-
rati sem hann síðan notaði til að
smækka tunglið. Undir lok mynd-
arinnar lét hann af illvirkjum og
fann í sér föðureðlið.
Í framhaldsmyndinni er Gru nýr
og betri maður og í stað þess að
fremja glæpi býr hann til ávaxta-
hlaup. Líkt og í fyrri mynd er hann
með hundruð gulra og smávaxinna
skósveina í vinnu hjá sér og halda
þeir fjörinu uppi í myndinni með
skondnum uppátækjum. Í upphafi
myndar er heilli rannsóknarstöð
stolið af norðurpólnum en í henni
hefur skelfilegt eitur verið þróað
sem breytir mönnum og dýrum í
skrímsli. Gru er fenginn til að að-
stoða við rannsókn málsins, finna
um aldri. Hún missir aðeins damp-
inn um miðbikið þegar ástarsaga
Gru og Lucy er í öndvegi, saga sem
höfðar líklega frekar til fullorðinna
en barna. Handritið er frekar þunnt
á heildina litið og fyllt upp í eyð-
urnar með uppátækjum gulu skó-
sveinanna sem fá mun stærra hlut-
verk í þessari mynd en þeirri fyrri
og stela senunni. Aulinn Gru er auk
þess aðeins of sætur, sá súri var öllu
skemmtilegri. Fínasta bíóskemmt-
un, engu að síður, stórkostleg að
mati tveggja sex ára drengja sem
sáu myndina með þeim er hér rýnir.
Og íslenska talsetningin er afbragð
með Pétur Jóhann Sigfússon
fremstan í flokki, í hlutverki Gru.
Aulinn Gru með nokkrum af skósveinum sínum í Aulanum ég 2.
Gulir stela senunni
Sambíóin, Laugarásbíó,
Háskólabíó og Borgarbíó
Aulinn ég 2 bbbmn
Leikstjóri: Chris Renaud. Bandaríkin,
2013. 98 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16.
Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • fastus@fastus.is • www.fastus.is
Í öll betri eldhús
Blandari • Töfrasproti
Handþeytari • Safapressa
Turmix eru hágæðavörur frá Sviss fyrir þá sem gera miklar kröfur
í eldhúsi. Tækin eru ekki aðeins vönduð og sterk heldur er einnig
mikið lagt upp úr glæsilegri hönnun og vönduðu útliti. Tæki fyrir þá
alkröfuhörðustu. Turmix vörurnar fást m.a. í Búsáhöld, Kringlunni.
Veit á vandaða lausn
LifunTíska og förðun
–– Meira fyrir lesendur
:
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Tísku og förðun
föstudaginn
11. október 2013.
SÉ
RB
LA
Ð
Tíska & förðun
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
mánudaginn 7. október.
Í blaðinu verður
fjallað um tískuna
haust/vetur 2013
í förðun, snyrtingu og
fatnaði, fylgihlutum
auk umhirðu
húðarinnar, dekur
og fleira