Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Margir af reynslumestu rithöf-
undum Forlagsins senda frá sér nýj-
ar bækur fyrir komandi jól. Í þeim
hópi er Arnaldur Indriðason, en nýj-
asta bók hans Skuggasund kemur
samtímis út á spænsku og íslensku
1. nóvember, en bókin hlaut nýverið
hin virtu glæpasagnaverðlaun Pre-
mio RBA de Novela Negra 2013.
Sagan gerist bæði í nútímanum og á
árum síðari heimsstyrjaldar. Ein-
stæðingur finnst látinn í íbúð sinni
og gamlar blaðaúrklippur í fórum
hans vekja forvitni lögreglunnar, en
þar segir frá óhugnanlegu morði við
Þjóðleikhúsið snemma árs 1944.
Þöggun í kjölfar ofbeldis
Dísusaga: konan með gulu
töskuna nefnist ný skáldævisaga
Vigdísar Grímsdóttur. Sagan gerist í
Norðurfirði á Ströndum í janúar og
febrúar á þessu ári og er því bæði
fortíðar- og nútíðarsaga. Samkvæmt
upplýsingum frá Forlaginu er hér
um að ræða magnaða frásögn af
stúlku sem tíu ára gömul verður fyr-
ir ofbeldi og lokast inni í dýflissu
þöggunar og feluleikja. Í fimmtíu ár
sér hún enga útgönguleið, en dag
einn fær hún frelsi hjá kúgara sínum
og fyrrverandi bjargvætti til að
skrifa, þó aðeins í tvo mánuði. Bókin
kemur út síðla októbermánaðar.
Um svipað leyti kemur út spennu-
sagan Grimmd eftir Stefán Mána,
sem hverfist um sannsögulega at-
burði. Góðborgarafjölskylda í
Reykjavík stendur ráðþrota þegar
mánaðargömlu barni er rænt og lög-
reglan getur lítið aðhafst. Loks
berst hjálp úr óvæntri átt.
Sjón sendir frá sér nýja bók
Fimm ár eru liðin frá því að rit-
höfundurinn Sjón gaf út skáldsög-
una Rökkurbýsnir en hún hefur bor-
ið hróður hans víða og skáldsagan
verið tilnefnd til virtra alþjóðlegra
bókmenntaverðlauna. Í nóvember
kemur út eftir hann bók sem ber tit-
ilinn Mánasteinn: drengurinn sem
aldrei var til. „Árið er 1918. Úti í
heimi geisar fyrri heimsstyrjöldin, á
Íslandi litar eldgos í Kötlu himininn
og spænska veikin stráfellir lands-
menn. Í iðu tímanna leitar ungur
maður skjóls í töfrum kvik-
myndanna. Það loftar milli heima og
mörk draums og veruleika, lífs og
dauða, mást út,“ segir í upplýsingum
frá Forlaginu.
Árni Þórarinsson rær á ný mið á
höfundarferli sínum í meitlaðri og
áleitinni sögu um afdrifaríkan sólar-
hring í lífi fjölskyldu. Skáldsagan
Glæpurinn: ástarsaga er dramatísk
samtímasaga sem tekur á málum
sem mikil bannhelgi hefur hvílt yfir.
Látið síga piltar er fyrsta skáld-
saga Óskars Magnússonar sem áður
hefur gefið út sagnasöfn. Í skáld-
sögunni segir frá daglegu lífi bænda
og búaliðs í Hlíðardal, þar sem und-
ir sakleysislegu yfirborði leynast
hremmilegir atburðir, ástir, slark,
áföll og hroðalegir glæpir. Í sögunni
vegast á ljúfar frásagnir og lýsingar
sem ekki henta viðkvæmum. Undir
og yfir svífur hárbeitt háð sem eng-
um hlífir. Skáldsagan kemur út í
nóvember.
Ný rödd fram á sjónarsviðið
Halldór Armand Ásgeirsson er ný
og nýstárleg rödd í íslenskum bók-
menntum. Hann hlaut Nýrækt-
arstyrk Miðstöðvar íslenskra bók-
mennta í sumar og gefur í október
út sína fyrstu bók, Vince Vaughn í
skýjunum. Þetta eru tvær nóvellur
beint úr samtímanum og fjalla báð-
ar um skyndilega og óvænta frægð.
Stúlka með maga: skáldættarsaga
eftir Þórunni Erlu Valdimarsdóttur
geymir áhrifamikla sögu móður
hennar, Erlu Þórdísar Jónsdóttur
og hennar fólks. Í frásögn hennar
lifna þau dánu þegar ættarmein og
leyndarmál koma úr glatkistunni.
Dómur í yfirrétti, skipskaði, heims-
styrjaldir, afleiðingar sýfiliss og
hversdagsleikinn blár af fjarlægð
fléttast saman af skáldlegri hug-
kvæmni. Bókin kallast á við sögu
Þórunnar Stúlku með fingur frá
árinu 1999. Bókin kemur út í nóv-
ember.
Viðburðir í Lærða skólanum
Í sama mánuði sendir Guð-
mundur Andri Thorsson frá sér
sögulega skáldsögu um nokkra daga
í Lærða skólanum í Reykjavík vet-
urinn 1882 þar sem þeir takast á
Benedikt Gröndal og Björn M. Ól-
sen um framtíð sautján ára pilts
sem uppvís hefur orðið að þjófnaði.
Sæmd er saga um glæp og refsingu,
hugrekki, hlutverk skáldsins – og
sæmd.
Edda Andrésdóttir vitjar liðinna
tíma í bók sinni Til Eyja. Annars
vegar til þess þegar hún var stelpa á
sjötta og sjöunda áratugnum hjá
ömmu sinni á Kirkjubæ í Vest-
mannaeyjum. Hins vegar til þess
þegar hún flaug þangað gosnóttina
1973, nýlega orðin blaðamaður á
Vísi, og fylgdist með húsi ömmu og
fjölmörgum öðrum hverfa undir
hraun og ösku.
Skáldævisögur og
glæpasögur áberandi
Forlagið gefur út verðlaunabók Arnaldar 1. nóvember nk.
Arnaldur
Indriðason
Árni
Þórarinsson
Vigdís
Grímsdóttir
Óskar
Magnússon
Stefán Máni
Halldór Armand
Ásgeirsson
Sjón
Þórunn Erlu
Valdimarsdóttir
Edda
Andrésdóttir
Guðmundur Andri
Thorsson
Dægurvísur nefnist yfirlitssýning
Kristjáns Jóns Guðnasonar sem opn-
uð hefur verið í Listhúsi Ófeigs. Á
árunum 1961-67 nam Kristján Jón
við Handíða- og myndlistarskólann
og Handverks og kunstindustriskole
í Oslo. Á sýningunni gefur að líta
glaðlegar myndir þar sem fólk spilar
og skemmtir sér, auk þess sem sjá
má mynd af 1. maí- og jafnrétt-
isgöngum. Samkvæmt upplýsingum
sýningarhaldara er list Kristjáns
Jóns í anda alþýðulistamanna. Sýn-
ingin stendur til 16. október.
Græna rútan Eitt verka Kristjáns Jóns.
Kristján Jón sýnir
í Listhúsi Ófeigs
The Tunnel nefnist frönsk/bresk
sjónvarpsþáttaröð sem frumsýnd
verður á bresku sjónvarpsstöðinni
Sky Atlantic í næsta mánuði. Þátta-
röðin byggist á fyrstu þáttaröðinni
af dönsk/sænsku seríunni Brúnni
(Broen).
Meðan upprunalega þáttaröðin
fjallar um morð á Eyrarsunds-
brúnni milli Danmerkur og Svíþjóð-
ar, fjallar The Tunnel um morð sem
framið er í lestargöngunum undir
Ermarsundinu, þ.e. milli Frakk-
lands og Bretlands. Sagan er eftir
sem áður sú sama, þ.e. tveir mjög
svo ólíkir rannsóknarlögreglumenn
frá sitt hvoru landinu neyðast til að
vinna saman að lausn morðgát-
unnar. Í aðalhlutverkum eru leik-
arinn Stephen Dillane sem þekkt-
astur er úr Game of Thrones og
leikkonan Clémence Poésy sem lék
m.a. í Harry Potter-myndunum.
Brúnni breytt í Ermarsundsgöng
Ljósmynd/Carolina Romare
Töff Kim Bodnia og Sofia Helin í hlut-
verkum Martins Rohde og Sögu Norén.
Í tilefni Evr-
ópska tungu-
máladagsins efn-
ir Stofnun
Vigdísar Finn-
bogadóttur í er-
lendum tungu-
málum til
hátíðardagskrár
á morgun,
fimmtudaginn
26. september kl.
16 í Bratta, fyrirlestrasal Mennta-
vísindasviðs HÍ í Stakkahlíð. Yfir-
skrift dagskrárinnar er „Tungu-
málakennsla í takt við tímann“ og
er hún haldin í samvinnu við
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið og STÍL – Samtök tungu-
málakennara á Íslandi.
Meðal frummælenda eru Vigdís
Finnbogadóttir sendiherra tungu-
mála hjá UNESCO, Illugi Gunn-
arsson mennta- og menningar-
málaráðherra, Sólveig Simha,
frönskukennari við Háaleitisskóla,
Linda Rós Michaelsdóttir, kon-
rektor MR, Michael Dal dósent í
dönsku á Menntavísindasviði HÍ,
Brynhildur A. Ragnarsdóttir, for-
maður STÍL, Ida Semey og Ásdís
Þórólfsdóttir, spænskukennarar
við MH, og Björn Gunnlaugsson,
skólastjóri grunnskólans á Dalvík.
Aðgangur er ókeypis. Tungu-
málakennarar og áhugafólk um
tungumál og kennslu þeirra er sér-
staklega hvatt til að mæta.
Tungumálakennsla í takt við tímann
Vigdís
Finnbogadóttir
Páll Óskar verður gestur Jóns
Ólafssonar í tónleikaröðinni Af
fingrum fram í Salnum fimmtu-
daginn 26. september og föstudag-
inn 27. september kl. 20.30. Yf-
irskrift tónleikanna er „Allt fyrir
ástina og Jón“. Samkvæmt upplýs-
ingum skipuleggjenda er um að
ræða einstaka spjalltónleika þar
sem áhorfendur komast í nálægð
við tónlistarmenn sem aldrei fyrr.
„Páll Óskar vann hug og hjarta
áheyrenda á fernum tónleikum
með Jóni síðastliðinn vetur. Húm-
or og hispurs-
leysi einkenndi
samleik þeirra
félaga og mátti
heyra hlátra-
sköllin upp í Há-
degismóa. Tón-
leikarnir verða
nú endurteknir
vegna fjölda
áskorana og er
von á góðu. Með þeim leikur Ró-
bert Þórhallsson á bassa,“ segir í
tilkynningu.
Páll Óskar
Páll Óskar og Jón Ólafs af fingrum fram
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
sýnir kvikmyndina Kyrralíf eftir
Jia Zhangke í kvöld kl. 19.30 í st.
101 í Odda. Kvikmyndin var tekin
upp í þorpinu Fengjie við bakka
Langafljóts sem eyðileggst hægt og
bítandi vegna byggingar Þriggja
gljúfra stíflunnar. Kvikmyndin
hlaut Gyllta ljónið á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum árið 2006. Stilla Brot úr myndinni Kyrralíf.
Verðlaunamyndin
Kyrralíf til sýnis
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
Opið virka daga frá 10-18, laugardaga frá 11-15
VEGGFÓÐUR
Í MIKLU ÚRVALI