Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 14
VIÐTAL Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Óhætt er að segja að aðstæður til hreindýraveiða hafi verið krefjandi þegar Sigurður Aðalsteinsson veiði- meistari fór við fjórða mann á hreindýraveiðar á Kollseyrudal á fimmtudag í liðinni viku, daginn áð- ur en veiðitímabilinu lauk. Töluvert hafði snjóað, fennt hafði yfir læki og illfært var um svæðið fyrir farar- tæki. Það kom sér því vel að þeir gátu flutt skrokkinn af hreindýrskú á snjóþotu í stað þess að burðast með hana um eins kílómetra leið. Hlutverkunum var snúið við. Kýrin var þriggja til fjögurra vetra gömul og væn, um 45 kíló eða svo. Sigurður, sem er leið- sögumaður á hreindýraveiðum, lagði ekki til þotuna heldur höfðu veiðimennirnir tekið hana með sér til þessara nota. Þotan er í stærra lagi og fylgdi sögunni að hún væri smíðuð af Promens á Dalvík og væri sérhönnuð fyrir Kaldbaks- ferðir. Sigurður fer með veiðimenn á veiðar á veiðisvæðum 1 og 2 sem ná frá Vopnafirði og Héraðsflóa í norðri til Vatnajökuls í suðri. Innan svæða 3-9 eru austfirsku firðirnir og víkurnar, allt suður fyrir Höfn í Hornafirði. Dýrin héldu sig norðarlega „Það hefur gengið á öllu, þetta hefur verið svolítið erfitt,“ segir Sigurður um veiðitímabilið. Sig- urður gerir út frá Vaðbrekku í Jök- uldal og það olli honum erfiðleikum að á svæði 1, sem er nyrsta svæðið, héldu hreindýrin sig einkum norð- arlega á svæðinu; við Vopnafjörð, á Þistilfjarðarafrétti og víðar þar um slóðir. Það hafi því verið tímafrekt að koma sér á veiðislóð. Fremur fá hreindýr hafi verið á svæði 2, en innan þess er m.a. Hér- að, þar til líða fór á tímabilið. Það hafi bakað veiðimönnum mikil vandræði að hreindýraveiðar innan Vatnajökulsþjóðgarðs hafi ekki verið leyfðar fyrr en 15. ágúst en annars staðar eru hrein- dýraveiðar leyfðar frá 1. ágúst. Fram til 15. ágúst hafi því ekkert verið að fá á svæði 2, því öll dýrin á svæðinu héldu sig innan þjóðgarðs- ins. Sigurður segir að þessi ákvörð- un sé afar misráðin og ekki í sam- ræmi við það sem lagt var upp með þegar þjóðgarðurinn hafi verið sett- ur á laggirnar. Þá hafi verið lofað að engar breytingar yrðu á veiði- nytjum. Þá hafi mörg dýr haldið sig innan verndarsvæðis við Snæfell en þar séu veiðar með öllu bannaðar. „Og það er alveg óskiljanleg ráðstöfun,“ segir Sigurður. Velja deilur fram yfir frið Sigurður gagnrýnir Vatnajökuls- þjóðgarð harðlega og segir að stjórnendur þjóðgarðsins hafi ávallt valið deilur, þótt friður væri í boði. Mjög skorti á skilning starfsmanna garðsins á hreindýraveiðum, t.d. hafi þeir haldið veiðislóðum lok- uðum að ástæðulausu. Því hafi verið borið við að slóðir hafi verið blautar en það hafi ekki verið rétt. Slóðum hafi verið lokað vegna skemmda en þjóðgarðsfólk átti sig ekki á því að stundum sé betra að aka eftir slóð- um á sumri og þannig þjappa jarð- veginum niður. Aksturinn stuðli þannig að því að minna renni úr slóðunum í leysingum. Veiði gekk betur á svæðum 3-9, að sögn Sigurðar, og betur en í fyrra. Í fyrrasumar hafi verið al- gengt að þoka truflaði veiðar á fjarðasvæðunum. „En nú var bara sólskin og blíða allan tímann,“ segir hann. Þegar rætt var við Sigurð á fimmtudag, 19. september, hafði hann tekið sér þrjá frídaga frá því veiðitímabilið hófst 50 dögum áður. „Á tímabili varð maður orðinn hálf- geðveikur, að keyra þangað norður og vera kominn heim nótt eftir nótt um tvö eða þrjú, eiga þá eftir að flá og ganga frá og fara að sofa milli kl. 3 og 4. Síðan upp á morgnana aftur. Maður var orðinn slappur til heils- unnar,“ segir Sigurður og hlær. Á Vaðbrekku er Sigurður með aðstöðu til að flá og gera að dýr- unum og margir veiðimenn gista á bænum. Á föstudag var Sigurður síðan á leið í kærkomið frí. „Ég ætla að kúpla mig algjörlega frá þessu. “ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Villibráð Í stað þess að bera skrokkinn var hann settur á snjóþotu og dreginn að bílnum. Kýrin vó um 45 kíló. Krefjandi aðstæður á veiðislóð hreindýra  Reglur þjóðgarðsins vöfðust fyrir  Tímafrek ferðalög Klaki Sigurður fór líka til veiða á miðvikudag. Veður var heldur verra. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Hreindýraveiðisvæði Loftmyndir ehf. Vatnajökull La ga rfl jót Héraðsflói 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 7 5 3 *E yð s la á 10 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK. GE bílar / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070 IB ehf. / Selfossi / 480 8080

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.