Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.09.2013, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Stefán Hörður Biard Vinnan Inga Lára Gylfadóttir nýtur þess að fljúga um loftin blá í starfi sínu sem flugmaður hjá Icelandair. er efnahagsumhverfið oft flókið og ýmiss konar hagsveiflur í framtíð- inni sem gott er að henda reiður á. Inn um annað og út um hitt Rætt hefur verið um hvort efla þurfi fjármálalæsi ungs fólks, til dæmis með því að kenna hagfræði í grunnskólum. Tilraunaverkefni hafa til dæmis verið gerð í Haga- skóla í Reykjavík og voru nem- endur sem þátt í þeim tóku al- mennt ánægðir. Enn sem komið er fer ekki mikið fyrir kennslu um hagkerfið nema helst hjá þeim sem kjósa að fara í sérstakar viðskipta- eða hagfræðideildir í framhalds- skólum. Þess vegna má ætla að al- menn þekking á hagfræðihugtökum sé fremur lítil. „Þegar ég byrjaði í náminu fór mér að finnast frekar skrítið að maður þekkti hugtökin en vissi ekkert um þau. Maður hafði heyrt þau og talið sig hafa meiri skilning og meiri þekkingu á þessu heldur en raun bar vitni. Vísitölur, verð- bólga, landsframleiðsla, við- skiptajöfnuður og fleira sem maður hefur heyrt. Oft fór þetta inn um annað og út um hitt. Það sem í raun og veru fékk á mig var að hafa verið í skóla heillengi og að aldrei á nokkrum tímapunkti í náminu hafði verið komið inn á þessa þætti sem við erum að eiga við og heyrum dags daglega. Mér fannst svolítið seint að ég væri að læra þetta þarna,“ segir Inga Lára. Ekki ráð við svefnleysi Víða á spássíum bókarinnar eru litlir fróðleiksmolar sem brjóta lesturinn upp. Fyrsta íslenska hag- fræðiritið er til dæmis kynnt og hlutverk Grikkja í orðasmíð hag- fræðinnar skýrt. „Mig langaði til að fólk gæti lesið þetta og haft gaman af líka. Þannig að þetta yrði ekki of þurrt efni sem yrði gott á nátt- borðið við svefnleysi.“ Sennilega er lítil hætta á að bókin muni gegna því hlutverki. Ingu Láru virðist hér hafa tekist að gera hagfræðina skemmtilega og ekki spilla þar fyr- ir skoplegar myndir listamannsins Höllu Kristínar Einarsdóttur sem setja svip sinn á bókina. Útgáfu- félagið Guðrún gaf bókina út með styrk frá efnahags- og við- skiptaráðuneytinu. Aðgengileg Í bók Ingu Láru er hag- kerfið útskýrt á einfaldan hátt. „Þegar ég byrjaði að skrifa bókina hafði ég það sem útgangspunkt að skrifa nákvæmlega um það sem ég vildi að mér hefði verið sagt.“ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Sushi nýtur æ meiri vinsælda hér á landi sem annars staðar á Vesturlöndum. Sushiveitingastaðir hafa sprottið upp og sushi er komið á heimilismatseðilinn. Sushi er japanskur réttur sem samanstendur af súrsuðum hrísgrjónum með grænmeti, kjöti og/eða fiski, sem er þá yf- irleitt hrár. Flestir vita að í fiski má finna sníkjudýr eða orma, en færri vita að þessir ormar geta sýkt menn séu þeir lifandi þegar fisksins er neytt. Til að komast hjá sýkingu af völdum orma er nauðsynlegt að frysta þann fisk sem ætlunin er að nota í sushi. Sé fiskurinn frystur við -20°C þarf frystingin að standa í sólarhring, í það minnsta, svo tryggt sé að ekki leynist lifandi sníkjudýr í honum. Þá geta hrísgrjónin reynst mönnum skaðleg sé ekki rétt staðið að matreiðslunni. Af akrinum bera hrísgrjón með sér ör- verur sem sumar hverjar eru sjúkdómsvaldandi og er hættan meiri í tilfelli hýðishrísgrjóna en þeirra sem hafa verið afhýdd. Þessar örverur þrífast vel við stofuhita, þ.e.a.s. hitastig sushi þegar það er borið fram. Hins vegar eru sushigrjónin súrsuð og kemur sýran í veg fyrir að flestar örverur dafni. Að sýra grjónin rétt og eins fljótt og unnt er eftir suðu verður því eitt af lykilatriðum þess að gera gott sushi, hvort heldur litið er til heilnæmis eða gæða. Nánari leiðbeiningar um heilnæma fram- leiðslu á sushi má finna á vef Matvælastofnunar: www.mast.is. Sigrún Ólafsdóttir, matvælafr. hjá Matvælastofnun. Örugg matvæli – allra hagur Heilnæmt sushi án sníkjudýra Morgunblaðið/Eggert Sushi Sannarlega afar gómsætur og vinsæll matur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.