Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Að beiðni norskra yfirvalda hefur Alþjóða lögreglan, Interpol, lýst eftir skipinu Snake, sem talið er að hafi stundað ólöglegar veiðar á tannfiski í Suðurhöfum. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Interpol lýsir efir fiskiskipi. Talið er að skip- ið hafi heitið tólf mismunandi nöfn- um á tíu árum og verið skráð undir fána að minnsta kosti átta þjóð- landa á þessum tíma. Á norska vefmiðlinum NA24 kemur fram að talið sé að verðmæti aflans geti verið nálægt fimm millj- örðum íslenskra króna á þessum tíma. Skipið er nú talið stunda veið- ar undan ströndum Mið- og Suður- Afríku, en hafi einnig verið við veiðar í Suður-Íshafi. Talið er að tvö önnur skip tengist sömu útgerð og er veiðum skipanna lýst sem skipulagðri glæpastarfsemi í NA24. Þvegið í skattaskjólum Snákurinn fékk það nafn í vor, en hefur borið tólf nöfn að því að talið er á síðasta áratug, m.a. Al Nagm Al Sata, Octopus, Pion, The Bird, Chu Lima, Thor, South Boy og Piscia. Skipið var skráð í Líbíu í maí síð- astliðnum, en flaggi þess hefur oft verið breytt eins og nafninu. Það hefur m.a. verið skráð í Hondúras, Mongólíu, Tógó, Norður-Kóreu, Úrúgvæ og Japan. Skráður eigandi á Spáni er ekki talinn hinn raun- verulegi eigandi að baki útgerðinni. Ekki kemur fram í greininni hvort skipið umskipar afla á hafi úti eða landar einhvers staðar. Norðmenn hafa í fjölda ára bar- ist gegn glæpsamlegum fiskveiðum og er beiðnin til Interpol liður í því, en aðildarríki Interpol eru 190. Skipið hefur í allmörg ár verið á svörtum lista nefndar um verndun lífrænna auðlinda á suðurskautinu og samtaka fiskveiðiríkja í Suð- austur-Atlantshafi. Fram kemur í norskum fjöl- miðlum sú staðhæfing norska utan- ríkisráðuneytisins að á hverju ári sé mikið af fiski veitt ólöglega af vel skipulögðum glæpasamtökum. Peningarnir sem fáist með þessum veiðum séu þvegnir í skatta- skjólum. Fátækar þjóðir eigi ekki möguleika gegn slíkum samtökum og það að stela mat frá fátækum þjóðum sé siðlaust og alvarlegur glæpur. Ljósmynd/Interpol Snákurinn Skipið sem Interpol lýsir eftir hefur borið ýmis heiti, en er nú talið bera nafnið Snake. Interpol lýsir eftir skipi með 12 nöfn á 10 árum  Við ólöglegar veiðar í Suðurhöfum að mati Norðmanna Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Óleyfilegar íbúðir í atvinnuhús- næði eru á um 150 til 190 stöðum í Reykjavík og nágrenni, að sögn Jóns Viðars Matthíassonar, slökkviliðsstjóra höfuðborgarsvæð- isins. Hann tekur fram að fjöldinn sé misjafn eftir sveitarfélögum og óleyfilegar íbúðir séu nær óþekkt- ar á Seltjarnarnesi, Álftanesi og í Garðabæ. Stjórn Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins hefur fjallað um málið og í minnisblaði frá 20. septem- ber sl. kemur meðal annars fram hvernig þessi mál hafa þróast undanfar- in áratug en lagaleg óvissa sé um til hvaða úr- ræða slökkviliðs- stjóri geti gripið. Hún hefur falið honum að ræða við forsvarsmenn skipulagsmála á svæðinu um málið. Óleyfileg íbúð er íbúð í atvinnu- húsnæði á þannig skipulögðu svæði að þar er ekki heimilt að vera með íbúðarhúsnæði. Jón Viðar Matthíasson segir að víða sé pottur brotinn hvað þetta varðar. Brot á reglunum byrji gjarnan smátt en ástandið sé fljótt að vinda upp á sig. Ástandið sé nú þannig að það mætti vera umtals- vert betra til þess að það uppfyllti þær reglugerðir sem vinna beri eftir. Hann segir að nú sé verið að kortleggja betur hvert sveitarfélag fyrir sig og taka myndir af um- ræddu húsnæði. Í kjölfarið verði rætt við fulltrúa sveitarfélaganna, farið yfir stöðuna og fengið á hreint hvar sveitarfélögin vilji alls ekki hafa íbúðir. Í framhaldinu verði gerðar kröfur um endurbæt- ur. Gert er ráð fyrir því að und- irbúningsvinnan taki um tvær vikur. Jón Viðar segir að sveit- arfélögin sex þurfi sinn tíma til þess að fara yfir málið en stefnt sé að því að hægt verði að taka ákvörðun um aðgerðir í desem- ber. Óleyfilegar íbúðir þyrnir í augum  Óleyfilegar íbúðir í atvinnuhúsnæði á um 150 til 190 stöðum í Reykjavík og nágrenni  Stefnt er að því að slökkviliðsstjóri geti að höfðu samráði við sveitarfélög tekið ákvörðun um aðgerðir í desember Ekki alvarlegir brunar » Ekki hafa orðið alvarlegir brunar í óleyfilegum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu und- anfarin 10 ár en Jón Viðar þakkar það frekar heppni en brunavörnum. » Þegar slökkvilið kemur að bruna í atvinnuhúsnæði er oft ekki vitað hvort fólk býr þar eða ekki. Jón Viðar Matthíasson Sigurður Sigmunds- son, bóndi og fréttarit- ari Morgunblaðsins, er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést í gær á heimili sínu að Vest- urbrún á Flúðum. Sigurður fæddist að Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi 16. mars árið 1938 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sigmundur Sigurðsson, bóndi og fyrrverandi oddviti, og Anna Jóhannesdóttir húsfreyja. Systkin Sig- urðar eru Alda, f. 10.4. 1930, d. 18.11. 1931, Jóhannes, f. 18.11. 1931, Alda Kristjana, f. 17.6. 1933 og Sig- urgeir Óskar, f. 16.3. 1938, d. 9.2. 1997. Sigurður útskrifaðist sem bú- fræðingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1959. Hann var við nám og störf í Bandaríkjunum 1962- 1963. Hann vann meðal annars sem bóndi, tamningamaður og ritstjórnarfulltrúi hjá tímaritinu Eiðfaxa 1980 til 1997. Sigurður var afkasta- mikill ljósmyndari. Hann sótti ljós- myndanámskeið hjá Námsflokkum Reykjavíkur 1984 og tók margar myndir af hestum sem vöktu at- hygli og skilur eftir sig mikið safn af ljós- myndum. Þá hlaut hann meðal annars ljósmyndaverðlaun Morgunblaðsins sex sinnum á árunum 1994 til 1998. Sigurður starfaði sem fréttaritari Morgunblaðsins frá árinu 1972. Sig- urður sinnti einnig ýmsum félags- störfum og sat meðal annars í stjórn hestamannafélagsins Smára 1963- 1973. Sigurður var ókvæntur og barnlaus. Á kveðjustund færir Morgun- blaðið Sigurði bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf og vel unnin störf og sendir fjölskyldunni jafn- framt innilegar samúðarkveðjur. Andlát Sigurður Sigmundsson Þór Kristjánsson, sem starfar m.a. við hafnaríkjaeftirlit á Samgöngustofu (Port State Control), segist ekki þekkja til þessa tiltekna máls. Hann seg- ir að vitað sé að töluvert sé af skipum á heimshöfunum, sem standist ekki kröfur og reglugerðir. Hins vegar hafi orðið gjörbreyting á norðlæg- ari slóðum í þessum efnum á síðustu árum. „Landhelgisgæslan vaktar siglingar í íslenskri lögsögu mjög vel en við höfum eftirlit með því að t.d. flutningskip og farþegaskip sem koma hing- að séu með haffærnisskírteini, tryggingar og alla pappíra í lagi,“ segir Þór. „Þegar ég byrjaði í þessu starfi fyrir 13 árum var talsvert af undir- málsskipum í kringum landið, en þau sjást ekki lengur. Með tilkomu öryggisreglugerðar og síðan reglna um siglingavernd hurfu þessi skip af Norður-Atlantshafi. Norrænir kollegar mínir segja yfirleitt sömu sögu, það er að skip sem þeir skoða séu flest í lagi og athugasemdum hafi stór- lega fækkað. Við erum í samvinnu við 28 önnur Evrópuríki í gegnum hafnaríkis- eftirlit í Evrópu og EMSA sem er siglingastofnun Evrópu og erum með að- gang að sameiginlegum tölvubanka. Þetta er mjög virkt samstarf og reglugerðir strangar þannig að þessi undirmálsskip sjást varla lengur á norðurslóðum, en vandinn er hins vegar fyrir hendi víða annars staðar,“ segir Þór. Gjörbreyting í norðrinu VÍÐA POTTUR BROTINN Á HEIMSHÖFUNUM Hollvinasamtök varðskipsins Óðins Aðalfundur Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins verður haldinn miðvikudaginn 9. október næstkomandi. Fundurinn verður í Víkinni - sjóminjasafni Reykjavíkur, Grandagarði 8 og hefst klukkan 17.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Hollvinir varðskipsins Óðins hafa með samstilltu átaki bjargað þessu merkilega skipi, gert það að lifandi safni um baráttu okkar í þorskastríðunum og helsta djásni sjóminjasafnsins. Hollvinir, fjölmennið á fundinn. Nýir félagar velkomnir. Stjórn Hollvinasamtaka Óðins Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum af strandstað. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa. K O M A lm an na te ng sl /s va rt hv ítt eh f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.