Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 9

Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is tilbúnar í pottinn heima Fiskisúpur í Fylgifiskum Verð 1.790 kr/ltr Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér. Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram. Hvað þarftu mikið? Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Vertu vinur okkar á Facebook Svartar dragtir Stærðir 36-52 Innigallar fyrir konur á öllum aldri Stærðir S-XXXXL Bómullarbolir í mörgum litum, stutterma, langerma og rúllukragabolir Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Velúrgallar Ný sending - margir litir TÍSKU MARKAÐUR POP-UP MC PLANET VÖRUMERKIÐ HÆTTIR! OPNUNARTÍMI: MÁN.-FÖS: 13-18 - LAU.12-16 50-80% afsláttur! MÖRKINNI 6 -108 REYKJAVÍK Allt á að seljast! Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Haraldur Magnússon, bóndi í Belgs- holti í Melasveit, setti upp fyrsta vindorkuver landsins árið 2011 þeg- ar hann gangsetti vindmyllu á jörð sinni. Hún skemmdist þó fjórum mánuðum eftir gagnsetningu en hef- ur nú verið gerð upp og verið gang- sett að nýju. „Núna bíð ég bara eftir því að það komi vindur og myllan fari að framleiða rafmagn fyrir mig,“ segir Haraldur en það hefur tekið hann nærri tvö ár að gera upp gömlu vindmylluna sem skemmdist tölu- vert. „Framleiðandi vindmyllunnar er farinn á hausinn og ég gat því ekki leitað til hans við endur- bygginguna. Þá var ég ekki tryggð- ur og þurfti að bera allan kostnað sjálfur en hann hleypur á sjö millj- ónum í dag.“ Hálfíslensk vindmylla „Endurbyggingin á vindmyllunni var að mestu unnin hér heima þar sem framleiðandinn er gjaldþrota. Seigla skipasmíðastöðin á Akureyri tók t.d. mót af gömlu spöðunum og smíðaði nýja fyrir mig. Þá var skipt um allan tölvubúnað og stjórnbúnað hér heima,“ segir Haraldur og því ís- lenskt hugvit sem stýrir vindmyll- unni í rétta átt eftir vindi. Ýmsar aðrar endurbætur voru gerðar á vindmyllunni að sögn Har- alds sem segir hana vera orðna hálf- íslenska eftir endurbygginguna. Nú vaknar hins vegar sú spurning hvort íslenska hugvitið sjái við rok- inu og haldi vindmyllunni gangandi í vetur og á næstu árum. „Við vonum það besta en ég hef trú á því að hún muni standa lengur en síðast.“ 80-90 þúsund kílóvattstundir Vindmyllan á að geta framleitt meira en helminginn af raforkuþörf búsins en Haraldur segir framleiðsl- una geta verið 80 til 90 þúsund kíló- vattstundir á ári. „Þegar við erum ekki að nota orkuna þá seljum við hana inn á landsnetið. Þannig spör- um við okkur kaup á raforku og fáum tekjur af sölu þegar notkunin er lítil hjá okkur.“ Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með vindmyllunni í Belgsholti geta farið á heimasíðu bæjarins belgs- holt.is þar sem finna má upplýsingar um vindmælingar, raforkufram- leiðsluna og hægt verður að fylgjast með vindmyllunni í vefmyndavél. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Endurbygging Gamla vindmyllan í Belgsholti sem hrundi árið 2011 í miklu roki hefur verið endurbyggð frá grunni og gangsett á nýjan leik. Gangsetur vind- myllu á nýjan leik Raforka » Gamla vindmyllan hrundi fjórum mánuðum eftir gang- setningu. » Endurbyggði gömlu vind- mylluna frá grunni með ís- lensku hugviti. » Framleiðir allt að 80 til 90 þúsund kílóvattstundir á ári. Hægt að fylgjast með vind- myllunni á vefmyndavél á heimasíðunni belgsholt.is.  Gamla myllan fauk í íslenska rokinu Neysluskammtar af amfetamíni fundust við húsleit sem lög- reglumenn framkvæmdu í gær- kvöldi ásamt fíkniefnaleitarhundi í íbúð fjölbýlishúss á Seyðisfirði. Einn maður var handtekinn í tengslum við málið en honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu var húsleit heima hjá karl- manni á þrítugsaldri að undan- genginni rannsókn lögreglu. Þar fundust nokkur grömm af amfetamíni. Húsráðandinn við- urkenndi að hann ætti efnið og að það væri til eigin neyslu. Lögregla fann am- fetamín við húsleit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.