Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Malín Brand
malin@mbl.is
Þ
egar Inga Lára var lítil
stelpa lét faðir hennar
þau orð oft falla að
„peningarnir yxu ekki á
trjánum,“ og könnumst
við mörg við að hafa heyrt þetta
hjá vinnulúnum foreldrum í brauð-
stritinu. Þegar Inga Lára keypti
sína fyrstu íbúð tók hún að efast
um orð föður síns því íbúðin gerði
ekkert annað en að hækka í verði
og á tímabili leit virkilega út fyrir
að eignarhluturinn færi sífellt vax-
andi án þess að nokkuð þyrfti að
gera.
„Þetta var einmitt þegar allt
fór af stað þannig að maður sjálfur
og fleiri lentu í því að upplifa að
maður væri ansi klókur á mark-
aðnum. Svo kom bara í ljós að
þetta voru engin klókindi heldur
var markaðurinn á þessari leið,“
segir Inga Lára.
Framhaldið þekkjum við:
Endurfjármögnun varð vinsælt
orð og sumir farnir að telja óeðli-
legt að eiga of mikið í húsnæðinu
sínu. Árið 2006 hóf Inga Lára hag-
fræðinámið og fljótlega, á árunum
milli gríðarlegrar uppsveiflu í hag-
vexti og mikils falls, varð hug-
myndin að þessari bók til. Bókin er
í raun útfært BS-verkefni Ingu
Láru og er hún sniðin að þeim sem
hafa áhuga á að vita hvernig gang-
verkið er í hagkerfinu.
„Það sem skiptir máli er að
fólk skilji heiminn sem það býr í.
Hann er gjörólíkur heiminum eins
og hann var fyrir fimmtíu árum.
Við erum öll þátttakendur í svo
stóru gangverki,“ segir Inga Lára.
Nú þegar hafa nokkrir framhalds-
skólar óskað eftir bókinni til að
nota við kennslu.
Af hverju var enginn búinn
að segja mér þetta?
Bókin er sett fram á einfaldan
hátt og er mjög aðgengileg fyrir
ólærða leikmenn. Í fyrstu eru ein-
föld hagkerfi frá fyrri öldum höfð
til hliðsjónar, þar sem hvert heimili
framleiddi fyrst og fremst til eigin
neyslu, ólíkt því sem við þekkjum í
dag.
„Mig langaði að skrifa bók um
það sem ég vildi að mér hefði verið
sagt á einhverjum tímapunkti.
Reyndar hugsaði ég fyrst: Af
hverju var enginn búinn að segja
mér þetta? En svo þegar ég byrj-
aði að skrifa bókina hafði ég það
sem útgangspunkt að skrifa ná-
kvæmlega um það sem ég vildi að
mér hefði verið sagt.“
Að mati Ingu Láru er skiln-
ingur á hagkerfinu mikilvægur fyr-
ir einstaklinga þegar þeir taka
ákvarðanir um eigin fjármál enda
Flugmaðurinn sem
skrifaði hagfræðibók
Hún er ein þeirra kvenna sem gegna flugmannsstarfi hjá Icelandair og segir það
sérréttindi að fá að vinna við það sem henni þykir skemmtilegt. Inga Lára Gylfa-
dóttir ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og lauk BS-gráðu í hagfræði
samhliða starfinu. Nú er komin út kennslubók í hagfræði á mannamáli eftir Ingu
Láru og stendur til að kenna hana við framhaldsskóla hér á landi.
Ljósmynd/Stefán Hörður Biard
Alþingi Allir þingmenn fengu gefins eintak af bókinni þegar hún kom út.
Hugtök Halla Kristín Einarsdóttir á heiðurinn af myndunum í bókinni. Hér
má sjá hina dularfullu verðbólgudrauga á sveimi við sjálfan Seðlabankann.
Bíó Paradís stendur fyrir kvikmynda-
fræðslu fyrir börn og unglinga sex
vikur í senn á hvorri önn skólaársins.
Haustönn fer af stað nú í október.
Verkefnisstjóri er Oddný Sen kvik-
myndafræðingur. Börnum og ung-
lingum gefst möguleiki á að kynnast
kvikmyndum sem hafa alþjóðlega
gæðastimpla, eru ýmist klassískar
perlur frá öllum skeiðum kvikmynda-
sögunnar eða eru lykilkvikmyndir.
Sýndar verða myndir frá Bandaríkj-
unum, Evrópu, Norðurlöndum, Aust-
urlöndum, Íslandi og öllum heims-
hornum. Á undan hverri sýningu er
haldinn fyrirlestur til að auðvelda
áhorfendum að greina kvikmyndina
ásamt hugmyndum að ritgerðum og
umsögnum barnanna um kvikmynd-
irnar. Leitast verður við að skoða
margvísleg temu eins og unglings-
árin, tengsl nútímakvikmynda við
kvikmyndasöguna, úrvinnslu tilfinn-
inga, félagsleg tengsl, samfélagsleg
tengsl, einelti, listsköpun, sjón-
arhorn og uppsetningu svo fátt eitt
sé nefnt. Þessar skólasýningar hóf-
ust 2011 í samvinnu við fræðslu-
yfirvöld og skóla. Dagskrá haust-
annar má sjá á vefsíðunni
www.bioparadis.is.
Vefsíðan www.bioparadis.is/skolasyningar
Pönkarabæn Heimildarmyndin Pussy Riot: A Punk Prayer, verður m.a. sýnd.
Kvikmyndafræðsla
fyrir börn og unglinga
„Þuríður ást mín og angur“ er yfir-
skrift bókakaffis í Menningarmið-
stöðinni í Gerðubergi, sem verður í
kvöld kl. 20. Þar verður fjallað um
sögu Þuríðar á Fróðá og Björns Breið-
víkingakappa sem er fléttuð í Eyr-
byggju í þremur þáttum, dreifðum í
tíma og rúmi. Magnús Jónsson ætlar
að fjalla um þessa einstöku frásögn
af ástarsambandi í meinum, sem
spannar 40-45 ár og gerist um árið
1000 á dögum landafundanna í
vestri. Næsta víst er að það verður
skemmtilegt að njóta þessa kvölds,
en Borgarbókasafnið í Gerðubergi
býður upp á bókakaffi í kaffihúsinu
fjórða miðvikudag hvers mánaðar og
hefur það mælst afar vel fyrir. Þar er
spjallað um bækur á léttum nótum á
meðan gestir kaffihússins njóta veit-
inga í notalegu andrúmslofti. Mark-
miðið með bókakaffinu er að kynna
áhugaverðar bókmenntir og ræða um
þær á óformlegan hátt svo og að
sýna fjölbreytileika íslenskra bók-
mennta og sagnamennsku.
Endilega …
… farið á bóka-
kaffi í kvöld
Magnús Jónsson Fjallar um Þuríði
sem var ást og angur hans Björns.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
ELDHÚSTÆKI ný sending