Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
AÐGENGI ALLA LEIÐ
Málþing:
Aðgengi og algild hönnun
Mannréttindi hversdagsins
27. september kl. 13.00 – 16.30 á Grand Hóteli
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald
Skráning og allar upplýsingar á www.obi.is
Síðasti skráningardagur er 26. september
– Alexander Harðarson
Vertu með í að móta aðgengilegra samfélag
„Ég elska að bjóða kærustunni á stefnumót.
En ég þarf að velja staðinn vel, því ég vil
ekki þurfa að láta bera mig inn í stólnum.
Það drepur niður alla rómantíkina.“
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
2
6
6
Að málþinginu standa auk Öryrkjabandalags Íslands,
Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum og Félag um fötlunarrannsóknir.
Hringbrautir og breiðgötur og
áhrif þeirra á þróun borgar-
umhverfis eru viðfangsefni ráð-
stefnu, sem hönnunar- og arkitekt-
úrdeild Listaháskólans, ásamt
sagnfræðideild Háskóla Íslands og
hugvísindadeild og arkitektúrdeild
Université Libre de Bruxelles, boða
til 26. og 27. september.
Viðfangsefnið verður meðal ann-
ars skoðað út frá þróun Hring-
brautar í Reykjavík frá 1927.
„Auk þess að vera umferðar-
mannvirki og stuðla að tengingum
borgarhluta á milli skapa hring-
brautir jaðra og borgarmörk með
aðgreiningu innra og ytra ástands,
og marka þar með skil milli mið-
bæja og úthverfa,“ segir í kynningu
á ráðstefnunni.
Ráðstefnan er öllum opin. Opn-
unarfyrirlestur hennar verður
klukkan 20 annað kvöld og hefst
dagskrá á föstudag klukkan níu og
stendur til 16.30 í fyrirlestrarsal A í
Þverholti 11
Skoða áhrif
Hring-
brautar
Ráðstefna um hlut
breiðgatna í borgum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Breiðgata Hlutur Hringbrautar í
borginni brotinn til mergjar.
Svo virðist sem svikahrappar sem
segjast vera frá Microsoft séu enn á
ferð á Íslandi þar sem fjölmargir
fengu upphringingu frá þeim í gær
og í fyrradag.
Í vor varaði lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu við þessum gylliboð-
um en viðkomandi segjast vera frá
Microsoft og þeir séu að hringja
vegna víruss í tölvu viðtakanda.
Á Facebook-síðu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu er enn varað
við gylliboðum sem fjársvikarar hafa
boðið fólki að undanförnu.
„Að gefnu tilefni viljum við ítreka
að lögreglu berast reglulega tilkynn-
ingar frá fólki þar sem fram kemur
að verið sé að reyna að hafa af því fé
með svikum og prettum. Flestir átta
sig fljótt á að þarna er um svindl að
ræða en því miður eru enn of margir
sem láta tilleiðast og falla í þá gryfju
að láta upplýsingar, kortanúmer eða
peninga af hendi,“ segir á Facebook-
síðu lögreglunnar.
Lögreglan
varar við
svikahröppum
Í framkvæmd Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, og Andri
Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, undirrituðu samning um virkjunina.
Bæjarstjórinn á Akureyri og fram-
kvæmdastjóri Fallorku ehf. undir-
rituðu í gær samning um að Fall-
orka reisi og reki 3,3 MW
vatnsaflsvirkjun í Glerá ofan bæj-
arins. Meginmarkmið með fram-
kvæmdinni er að nýta endurnýj-
anlega náttúruauðlind til að
framleiða raforku á hagstæðu verði
fyrir viðskiptavini Fallorku sem eru
að stórum hluta Akureyringar.
Um 5-6 metra há stífla og um
10.000 m² lón verða í rúmlega 300 m
hæð yfir sjávarmáli skammt innan
við vatnslindir Norðurorku á Gler-
árdal. Frá stíflunni verður um 5.800
metra löng fallpípa grafin niður
norðan við ána í Réttarhvamm. Þar
verður um 50 m² stöðvarhús. Raf-
orka verður send inn á dreifikerfi
Norðurorku um jarðstreng.
Í fréttatilkynningu segir að Ak-
ureyrarbær breyti aðalskipulagi og
deiliskipulagi eins og þörf krefur
vegna framkvæmdarinnar. Sá fyr-
irvari er settur að samþykki Skipu-
lagsstofnunar fáist fyrir skipulags-
breytingum og að mögulega þurfi
að laga áætlanir um fyrirkomulag
og frágang að kröfum Skipulags-
stofnunar. Akureyrarbær stefnir að
því að ljúka breytingum á aðal-
skipulagi og deiliskipulagi vegna
virkjunarinnar í maí 2014. Fallorka
stefnir að því að virkjun verði gang-
sett í desember 2015.
Ný virkjun reist í Glerá
Um 5-6 metra stífla og um 10.000 m² lón verða í um 300 m
hæð yfir sjávarmáli Stefnt að gangsetningu í des. 2015