Morgunblaðið - 25.09.2013, Síða 22

Morgunblaðið - 25.09.2013, Síða 22
 Að minnsta kosti 67 látnir, 63 saknað Umsátrinu í West- gate loksins lokið Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Kenískir hermenn fóru búð úr búð í Westgate-verslunarmiðstöðinni í Naíróbí í gær til að tryggja að eng- inn árásarmannanna sem réðust inn í miðstöðina á laugardag hefðist þar enn við. Einhverjar sprengingar og stöku skothvellir bárust frá bygging- unni fyrripart dags í gær en undir kvöld var hljótt yfir, að sögn frétta- manns AFP á staðnum. Skotbardagar milli Shebab-liða, sem hafa lýst hryðjuverkinu á hend- ur sér, og kenískra og ísraelskra her- manna héldu áfram mun lengur en yfirlýsingar kenískra stjórnvalda gáfu til kynna en þau sögðu á sunnu- dag að flestum gísla árásarmann- anna hefði verið bjargað og að stærstur hluti byggingarinnar væri á valdi kenískra öryggissveita. Á mánudag sagði talsmaður innanrík- isráðherrans að herinn hefði full- komna stjórn á ástandinu en í gær sögðu heimildarmenn að kenískar sérsveitir ættu enn í bardaga við einn eða tvo hryðjuverkamenn. Þá sögðust Shebab-liðar enn hafa gísla í haldi. Utanríkisráðherra Kenía, Amina Mohamed, sagði að tveir eða þrír Bandaríkjamenn væru meðal árás- armanna og einnig bresk kona. Hótaði svörtum dögum Í gær höfðu a.m.k. 67 viðskiptavin- ir, starfsmenn og hermenn látið lífið í og við verslunarmiðstöðina en 63 var enn saknað. Talsmaður Shebab, Ali Mohamud Rage, sagði að blóð- baðið væri hefnd fyrir þátttöku ken- ískra hersveita í baráttunni gegn samtökunum í suðurhluta Sómalíu og ef stjórnvöld í Kenía kölluðu sveitir sínar ekki til baka mættu þau eiga von á „svörtum dögum“. Forsætisráðherra Sómalíu, Abdi Farah Shirdon, sagði í gær að árás- armennirnir yrðu látnir sæta ábyrgð og þá hétu Afríkubandalagið og Sameinuðu þjóðirnar að herða bar- áttuna gegn Shebab-samtökunum. AFP Bardagi Segja má að vopnin hafi snúist í höndum árásarmanna, sem hafa uppskorið hertar aðgerðir gegn Shebab. 22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Í ræðu sinni á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í gær sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti að Bandaríkjamenn væru tilbúnir til að beita öllum ráðum, þ. á m. hern- aðarvaldi, til að verja hagsmuni á borð við „frjálst flæði orku“ og bann við gereyðingarvopnum í Mið- Austurlöndum. Hann sagði trúverð- ugleika alþjóðasamfélagsins undir í málefnum Sýrlands. Forsetinn sagði mikilvægt að ör- yggisráð SÞ næði saman um álykt- un um refsiaðgerðir ef Sýrlands- stjórn uppfyllti ekki skilyrði áætlunar Rússa og Bandaríkja- manna um eyðingu efnavopnabirgða landsins. „Ef við getum ekki náð samkomulagi um þetta atriði, þá mun það sýna að Sameinuðu þjóð- irnar eru þess ekki megnugar að framfylgja grundvallaralþjóðalög- um,“ sagði Obama. Forsetinn sagðist reiðubúinn til að láta reyna á viðræður við Írani en ítrekaði að þeir þyrftu að grípa til gagnsærra og sannanlegra aðgerða til að útrýma alþjóðlegum efasemd- um vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Ráðherrar funda á fimmtudag Utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, John Kerry, mun funda með Mohammad Javad Zarif, kollega sínum í Íran, auk utanríkisráðherra Bretlands, Kína, Frakklands, Þýskalands og Rússlands, á fimmtu- dag. Til umræðu verður kjarn- orkuáætlun Írana en þetta mun vera í fyrsta sinn sem ráðherrarnir funda síðan viðræður um áætlunina hófust fyrir áratug. François Hollande, forseti Frakk- lands, hvatti til þess í ræðu sinni á þinginu í gær að Íranir gæfu af- dráttarlausa bendingu um að þeir væru tilbúnir til að leggja kjarn- orkuáætlun sína fyrir róða. Hann tók undir með Obama um að örygg- isráð SÞ þyrfti að grípa til þvingandi aðgerða gegn Sýrlandsstjórn ef hún afhenti ekki efnavopn sín. Fyrirhugað var að Hollande fundaði með nýkjörnum forseta Ír- ans, Hassan Rowhani, í gær en hátt- settur bandarískur embættismaður sagði að það hefði reynst of flókið fyrir Írani að skipuleggja stund fyr- ir Rowhani og Barack Obama, þó að Bandaríkjamenn hefðu boðist til þess að greiða fyrir því að þeir hitt- ust. Fyrirhugað var að Rowhani, sem hefur átt í bréfaskiptum við Obama, myndi taka til máls á fundi allsherj- arþingsins seint í gær. Íran og Sýr- land í brenni- depli á fundi SÞ  Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna kemur saman í New York AFP Skál Obama skálaði í hádegisverð- arboði fyrir þjóðarleiðtogana í gær. Allsherjarþing SÞ » Skrifstofa forsætisráðherra Ísraels tilkynnti í gær að sendi- nefnd Ísraela við SÞ myndi sniðganga ræðu Íransforseta. » Barack Obama hvatti al- þjóðasamfélagið til að taka nauðsynlega áhættu til að koma á friði milli Ísraela og Palestínumanna. » John Kerry mun í dag skrifa undir alþjóðlegan sáttmála um sölu hefðbundinna vopna. » Forseti Brasilíu, Dilma Rous- seff, gagnrýndi netnjósnir Bandaríkjamanna í ræðu sinni á fundi allsherjarþingsins. Kenískum ráðamönnum ber ekki saman um hvort kona hafi verið meðal árásarmannanna í West- gate en vangaveltur hafa verið uppi um að Samantha Lewt- hwaite, ekkja eins af fjórum sjálfsmorðsárásarmönnum sem urðu 52 að bana í sprengjuárás- um á neðanjarðarlestakerfi Lundúna í júlí 2005, hafi átt þátt í árásinni í verslunarmiðstöðinni. Kenísk lögregluyfirvöld hafa lýst eftir Lewthwaite, þar sem hún er grunuð um að ferðast um á föls- uðu suðurafrísku vegabréfi, með börnin sín þrjú, sem eru á aldr- inum 7-12 ára. Lewthwaite tók íslamstrú 15 ára gömul en lítið er vitað um afdrif hennar eftir árás- irnar í Lundúnum. Kona meðal árásarmanna? „HVÍTA EKKJAN“ Rússnesk fang- elsisyfirvöld til- kynntu í gær að Nadezhda Tolo- konnikova, einn fangelsaðra með- lima Pussy Riot, hefði verið færð í einangrun. Í bréfi sem fjölmiðlar birtu á mánudag sagðist Tolokonnikova í hungurverkfalli vegna lélegs aðbúnaðar og hótana frá stjórnendum vinnubúðanna í Mordóvíu, þar sem henni er haldið. Yfirvöld segja að rannsókn sé hafin á ásökunum Tolokonnikovu en hún hafi verið færð í einangrunarklefa öryggis síns vegna. Hún hafi haft persónulega muni með sér, s.s. bækur og bréfsefni. Eiginmaður Tolokonnikovu stað- festi að hún hefði verið flutt og að hún væri örugg en sagði lítið um þægindi í klefanum. RÚSSLAND Meðlimur Pussy Riot í einangrun Nadezhda Tolokonnikova Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Heyrir þú illa í margmenni? Heyrðu umskiptin, fáðu heyrnartæki til reynslu. Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnar- fræðingi Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Finndu okkur á facebook Veglegur kaupaukifylgir öllum seldumheyrnartækjumí september

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.