Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.09.2013, Qupperneq 24
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rannsóknir á súrnun haf-anna hófust á sjötta ára-tug síðustu aldar. Lítiðfór fyrir þeim í fyrstu en breyting varð þar á við aldamótin og hefur umfang þeirra síðan aukist. Með súrnun hafanna er átt við breytingar á sýrustigi sjávar vegna aukins magns koldíoxíðs í andrúms- lofti samfara bruna jarðefnaelds- neytis. Þegar rætt er um aukinn styrk koldíoxíðs í andrúmslofti er jafnan vísað til mælinga á fjallinu Mount Loa á Havaí. Mælingar þar hófust árið 1957 og hefur styrkur koldíoxíðs síðan aukist úr um 315 milljónustu hlutum í rúmlega 400 milljónustu hluta hverrar rúmmáls- einingar andrúmslofts. Vísindamaðurinn Richard Feely er framarlega í flokki þeirra sem rannsakað hafa súrnun hafanna en hann starfar hjá starfsstöð Haf- og loftslagsrannsóknastofnunar Bandaríkjanna (NOAA) í Seattle. Feely flutti erindi um súrnun haf- anna á ársfundi Alþjóða- hafrannsóknaráðsins sem nú stend- ur yfir í Reykjavík. Hafa súrnað um 30% Feely bendir á að maðurinn hafi losað um 2.000 milljarða tonna af koldíoxíði í andrúmsloftið frá upp- hafi iðnbyltingar og að þar hafi höfin drukkið í sig 550 milljarða tonna. Við það hafi sýrustigið lækkað um 0,1 pH-gildi að meðaltali, sem jafngildi 30% aukningu í sýrustiginu. Til fróð- leiks er pH-gildi vatns 7 og á bilinu 7,7-8,3 í sjó. Því lægra sem gildið er, þeim mun súrara. Að sögn Feelys er því spáð að styrkur koldíoxíðs í lofti verði á bilinu 550-1.000 milljónustu hlutar við lok aldarinnar. Þá sé áætlað að næstu 500 til 1.000 ár muni höfin drekka í sig 80-85% af koldíoxíði sem er tilkomið vegna bruna jarðefna- eldsneytis. Feely segir hringrás heimshafanna taka 1.600 ár sem sé lítið í samanburði við þær tugþús- undir ára, jafnvel hundrað þúsund ár, sem það taki fyrir höfin að ná sýrustiginu aftur í það horf sem það var fyrir iðnbyltinguna. Stærstur hluti koldíoxíðs í höfunum sé á innan við 500 metra dýpi og magn þess mest þar sem sjórinn er kaldur, þ.e. í Norðurhöfum annars vegar og Suð- urhöfum hins vegar. Breytingarnar séu því mestar þar. Spurður hvaða áhrif hækkandi sýrustig hafi haft á lífríki hafsins tekur Feely dæmi af skelfiskiðnaði á vesturströnd Bandaríkjanna. Verulegir hagsmunir í húfi Ostruræktun veltir um 110 milljónum dala á ári og skelfiskiðn- aðurinn í Bandaríkjunum samanlagt um tveimur milljörðum dala. Því hafi það valdið miklu tjóni er breytingar á sýrustiginu drógu úr framleiðslunni á vesturströndinni og var sá vandi leystur með því að blanda natrín-karbónati út í súran sjóinn í tönkunum þar sem ræktunin fór fram. Við það hafi sýrustigið hækkað og framleiðslan aukist á ný. Spurður hvort súrnun hafanna ógni skelfiski í höfunum segir Feely að vísbendingar séu um að súr- ari sjór geri skelfiski erfitt fyr- ir, þ.m.t. humri, ostrum og hörpuskel. Þá geti súrari sjór haft áhrif á hegðun fiska og nefnir Feely í því efni rann- sóknir í Ástralíu sem sýnt hafi fram á að trúðfiskar tóku að synda í átt til ránfiska en ekki frá þeim, vegna brenglunar í taugakerfinu af völd- um súrari sjávar. Höfin talin munu súrna á öldinni AFP Kórallar Súrnun hafanna er talin munu hafa ýmsar afleiðingar. 24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eins og jafn-an á þess-um tíma árs bíða margir spenntir eftir að sjá frumvarp til fjárlaga. Spennan stafar sjaldnast af því að menn búist við stórum pakka frá ríkinu, þó að einhverjir geri það ef til vill nú, en miklu frekar hinu gagnstæða. Þetta má sjá af umræðunni þar sem þeir sem treysta á fjárframlög ríkisins, einkum stofnanir þess, vekja athygli á þröngum kosti og nauðsyn þess að bæta í eða að minnsta kosti að framlög séu ekki skorin frekar en orðið er. Einn helsti vandi rík- isrekstrarins er að hann hef- ur mikla tilhneigingu til að þenjast út og að erfitt er að taka í taumana, stöðva út- þensluna eða vinda ofan af henni. Þess vegna er mik- ilvægt fyrir ríkisvaldið að taka afstöðu til þess hvað það vill gera og hversu mikið, það er að segja að forgangsraða. Vinstristjórnin sem kenndi sig við velferð virðist hafa haft forgangsröðun sem á ekkert skylt við velferð. Í skýrslu Hagfræðistofnunar um þróun ársverka hjá ríkinu á árunum 2007-2011 kemur í ljós að þeim fjölgaði um tæp tvö hundruð. Þrátt fyrir þetta fækkaði um rúmlega þrjú hundruð ársverk hjá vel- ferðarráðuneytinu og árs- verkum fækkaði mest hjá Landspítalanum. Á sama tíma fjölgaði verulega í fjár- málaráðuneyti, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og í um- hverfisráðuneyti. Þetta er af- skaplega sérkennileg for- gangsröðun velferðarstjórnar og sýnir vel hve stjórnvöld geta misst tökin á því verkefni sem þau sjálf segjast vilja taka sér fyrir hendur. Þó að fáar ríkisstjórnir fari svo öfugt í hlutina miðað við yfirlýst markmið og áform glíma fleiri við vanda þegar kemur að því að taka á um- svifum ríkisins. Og þetta ein- skorðast ekki við Ísland held- ur er þetta þekkt vandamál um allan heim. Hér á landi var til að mynda á dögunum stofnandi samtaka skattgreiðenda í Bretlandi, Matthew Elliott, sem sagði frá því hvernig vöxtur ríkisvaldsins þar í landi hefði á liðnum árum ýtt undir skattahækkanir sem farnar væru að þrengja veru- lega að almenn- ingi. Engu að síð- ur væri fjárhagsstaða rík- isins slæm. Íslendingar þekkja þetta vel. Í tíð „velferðarstjórnarinnar“ hækkuðu skattar upp úr öllu valdi en fjárhagur ríkisins batnaði ekki eins og fullyrt var að hann mundi gera. Ástæðan er einkum sú að með hækkandi sköttum dreg- ur úr fjárfestingum og krafti atvinnulífsins og einstakling- arnir halda að sér höndum. Fyrst um sinn tókst þeim að draga úr högginu af hækk- andi sköttum með því að ganga á sparnað sem átti að létta elliárin og ríkið naut þess einnig um sinn. Þegar sá sparnaður er horfinn í hítina standa skattahækkanirnar einar eftir og í stað þess að atvinnu- og efnahagslíf sé á góðri siglingu upp úr öldu- dalnum eru vísbendingar um áframhaldandi erfiðleika framundan. Eins og að framan sagði bíða menn sjaldan eftir stórum pökkum frá ríkinu þegar fjárlagafrumvarpið birtist og fátítt er að skatt- greiðendur geri sér miklar vonir um að hliðrað verið til í þeirra þágu. Og þeir eru ekki hávær þrýstihópur hér á landi og gleymast allt of oft með þeim afleiðingum sem að ofan er lýst. Eftir rúmlega fjögur ár af rangri efnahagsstjórn, óhóf- legum skattahækkunum og öfugri forgangsröðun er lík- legt að fleiri bíði spenntir eft- ir fjárlagafrumvarpinu nú en gengur og gerist. Miklu skiptir hvernig stjórnvöld forgangsraða í frumvarpinu og þar skiptir tvennt mestu máli. Annars vegar að út- gjöldum ríkisins verði for- gangsraðað í þágu grunn- þjónustunnar og að horfið verði frá forgangsröðun vinstri velferðarinnar sem gert hefur grunnstoðum sam- félagsins nægt ógagn. Hins vegar að forgangs- raðað verði í þágu skattgreið- enda, sem er forsenda þess að hér geti á ný hafist vaxt- arskeið og lífskjarabati. Án þeirrar forgangsröðunar munu landsmenn enn um sinn, jafnt í fyrirtækjum sem á heimilum, halda áfram að næra sig á útsæðinu. Mat- arvenjur af því tagi hafa óhjákvæmilega neikvæðar af- leiðingar til framtíðar litið. Enn meiri spenna ríkir vegna fjárlaga- frumvarpsins nú en oftast áður} Fjárlagafrumvarp og forgangsröðun É g gleymi því seint þegar ég fékk taugaveikibróður, þá nýstiginn uppúr beriberi og mýrarköldu þar á undan. Mér fannst það reyndar hálfaumingjalegt að fá bara taugaveikibróður, það hlyti að vera magnaðra að fá taugaveiki en bróður hennar, en tók gleði mína að nýju þegar ég fékk gulu og Lyme-sjúkdóm í framhaldinu. Alla þessa sjúkdóma hafði ég af bókum, eins og Bakteríuveiðum eftir Paul De Kruif og Undir gunnfána lífsins eftir Milton Silverman, sem segja frá glímu lækna og vísindamanna við óttalega sjúkdóma, en í þannig bókum lá ég þegar ég var krakki og las mér til mikillar ánægju. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þar sem ég fletti ónefndri nýútkominni metsölubók, þar sem safnað hefur verið saman allskyns fróðleik um fjölda alvarlegra sjúkdóma, stóralvarlegra sjúkdóma, sem flestir eru eiginlega merkilegastir fyrir það að læknavís- indin hafa aldrei heyrt þeirra getið. Annað sem gerir þessa sjúkdóma merkilega er að lækningar við þessum sjúkdómum eru langt frá því sem maður myndi annars kalla lækningar, felast aðallega í því að kaupa allskyns bætiefni og vítamín og andoxunarefni og ofurfræ og svo framvegis og svo framvegis. (Segir sitt að þeir sem upp- götvað hafa þessa sjúkdóma eru flestir einmitt að selja lækningu við þeim – nema hvað.) Legíó af slíkum bókum hefur komið út hér á landi á síðustu árum, frumsamdar og þýdd- ar, og netið er óendanleg uppspretta sjúk- dóma. Oftar en ekki eru fræðin frá ein- hverjum sem hefur uppgötvað „sannleik“ sem gengur þvert á viðurkennda þekkingu, oft frá læknum sem passa sig á að nafn þeirra sé ekki birt opinberlega án þess að dr. sé skeytt fyrir framan (nokkuð sem étið er upp af þeim sem útbreiða fræðin hér á landi og átta sig ekki á því í sínum kjánagangi að dr. er öðruvísi notað í íslenski málhefð en enskri). Bækurnar sem ég nefndi í upphafi, Bakt- eríuveiðar og Undir gunnfána lífsins, eru uppfullar af gleði í frásögn sinni af þrekvirkj- um vísindamannanna og bjartsýni á það hvert læknavísindin muni skila okkur. Bæk- ur, og vefpistlar, af þeirri gerð sem ég nefndi síðar eru aftur á móti uppfullar af rangfærslum og misskilningi á vísindalegum aðferðum, útúrsnúningi á hugtökum og af- bökun á þekkingu. Sífellt er hamrað á því að Vest- urlandabúar þjáist af krónískum velmegunarsjúkdóm- um, að við séum öll meira og minna veik, en staðreyndin er sú að mannkyn hefur aldrei verið eins vel á sig komið, jafn margir haft í sig og á, verið heilbrigðari og lífslíkur verið hærri. Vissulega þarf víða að gera betur, en miss- um ekki sjónar á því sem þegar hefur áunnist um leið og við höfnum ruglinu. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Handbækur í rugli STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Feely segir að rannsóknir á af- leiðingum súrnunar hafanna séu á frumstigi. Því sé ekki hægt að fullyrða hvaða áhrif það muni hafa á allar lífverur í höfunum ef höfin haldi áfram að súrna. Þannig sé ekki óhugsandi að sumar tegundir muni jafnvel þrífast betur, enda búi lífverur yfir aðlög- unarhæfni. Það eigi þó líklega ekki við sumar skelfiskteg- undir. Hann telur aðspurður að súrnun hafanna geti haft áhrif á dreifingu fiski- stofna. Loks sé því spáð að súrnun hafanna geti dregið úr vexti kóralla um 30-60%. Það geti haft afleiðingar enda séu kóralrif heimkynni að minnsta kosti fjórðungs fisk- tegunda í haf- inu. Sumar gætu þrifist betur ÁHRIFIN Á TEGUNDIR Richard Feely

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.