Morgunblaðið - 25.09.2013, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Eftir að skrifað var
undir verksamninga
1. febrúar sl. vegna
Vaðlaheiðarganga
þurfa vertakar að fá
til landsins bora og
ýmsan annan sér-
hæfðan búnað sem
kostar háar fjár-
hæðir. Þremur árum
áður en fyrrverandi
flugmaður, Tryggvi
Helgason, kynnti
fyrstur manna hugmyndina um
jarðgöng undir Vaðlaheiði var í tíð
Jóhanns Hafstein, þáverandi iðn-
aðarráðherra, borin fram á Al-
þingi tillaga um stóriðju við Eyja-
fjörð. Á undanförnum árum hafa
Vaðlaheiðargöng tengst áformum
um atvinnuuppbyggingu á Eyja-
fjarðarsvæðinu og síðar við Skjálf-
andaflóa sem Steingrímur J. and-
mælir. Lagt var til á sínum tíma
að farið yrði með göngin undir
heiðina í beinu framhaldi af Leiru-
veginum samhliða enn styttri
göngum undir Vaglafjall sem
hefðu komið út í Ljósavatnsskarði,
þegar hugmyndir um vatnsafls-
virkjun voru kannaðar. Til og frá
höfuðstað Norðurlands hefði stytt-
ing hringvegarins þá orðið 25-30
km. Nú verður hún 15 km þar sem
staðsetning gangamunnans er
ákveðin í 60-70 m hæð gegnt Ak-
ureyri og sunnan við Skóga í
Fnjóskadal í 160 m.y.s. Þetta þýð-
ir að Húsavík og Akureyri komast
aldrei nálægt því að mynda eitt
samfellt atvinnusvæði þegar blind-
bylur, snjóþyngsli og snjóflóð í
Ljósavatnsskarði og Dalsmynni
komast í fréttirnar eins og mörg
dæmi eru til um. Allar tilraunir til
að koma byggðunum við Skjálf-
andaflóa og á Eyjafjarðarsvæðinu
inn á eitt samfellt atvinnusvæði
hafa verið eyðilagðar eftir að hug-
myndin um að taka Vaðlaheið-
argöng samhliða styttri göngunum
undir Vaglafjall var endanlega af-
skrifuð. Til þess sá jarðfræðing-
urinn úr Þistilfirði þegar hann
andmælti allri atvinnuuppbygg-
ingu við Skjálfandaflóa. Þannig
eyðileggur Steingrímur J. allar
forsendur fyrir arðsemismati
Vaðlaheiðarganga sem hann vill
troða fram fyrir önnur þarfari
verkefni á Vestfjörðum, Mið-
Austurlandi og í Suðurkjördæmi.
Um 32 þúsund ökutæki eru í um-
ferð á Norðurlandi eystra. Þar
stendur einkaframkvæmd aldrei
undir sér með innheimtu vegtolla.
Í grein sem Kristján Lárus, þing-
maður Norðausturkjördæmis,
skrifaði í Morgunblaðið 1 febrúar
sl. kom hvergi fram hvað með-
alumferð í gegnum Vaðlaheið-
argöng þarf að vera mikil á sólar-
hring til þess að veggjald á hvern
bíl standi undir launum starfs-
manna, afborgunum, vöxtum, við-
haldskostnaði og fjármögnun
ganganna sem verður alltof
áhættusöm. Skammarlegt er að
engin svör skuli fást þegar þing-
menn Norðausturkjördæmis eru
spurðir að því hve margir bílar
séu í umferð á öllu Eyjafjarð-
arsvæðinu og í Þingeyjarsýslum.
Meðalumferð milli Fnjóskadals og
Akureyrar um Vík-
urskarð sem er á
bilinu 1200-1600 bílar
á dag réttlætir ekki
innheimtu veggjalds á
hvert ökutæki án þess
að ráðist verði af full-
um krafti í uppbygg-
ingu atvinnuveganna
á Eyjafjarðarsvæðinu
og í sveitunum austan
Vaðlaheiðar. Í stað
þess að taka veggöng-
in undir Vaðlaheiði í
beinu framhaldi af
Leiruveginum hefur
tekist að afskræma allar for-
sendur fyrir sameiningu sveitarfé-
laganna í Þingeyjarsýslum og
Eyjafirði með því að ákveða gröft
ganganna nálægt Hallandsnesi
gegnt Akureyri og sunnan við
Skóga í Fnjóskadal. Þarna breytir
15 km stytting milli Eyjafjarðar
og Fnjóskadals engu þegar veg-
irnir í Ljósavatnsskarði og Vík-
urskarði lokast vegna illviðris- og
snjóþyngsla. Á sama tíma geta
borist fréttir af því að Dalsmynni
lokist vegna snjóflóðahættu.
Margir heimamenn á Akureyri, í
sveitunum við Eyjafjörð og austan
Vaðlaheiðar hafa áhyggjur af því
að alltof fáir bílar séu í umferð á
þessu svæði til þess að hægt sé að
fjármagna svona rándýrt sam-
göngumannvirki með 1000 króna
vegtolli á hvern bíl þegar með-
alumferðin í Víkurskarði er borin
saman við þann heildarfjölda öku-
tækja sem fer daglega í gegnum
Hvalfjarðargöngin, um Suður-
landsveg og höfuðborgarsvæðið.
Norðan heiða hafa of margir
heimamenn líka áhyggjur af því að
fyrirtæki í fámennum sveit-
arfélögum ráði aldrei ein og sér
við fjármögnun samgöngu-
mannvirkja í formi vegtolla verði
þau 10 sinnum dýrari en Hval-
fjarðargöngin. Engin skynsemi er
í því að réttlæta rándýrar fram-
kvæmdir á landsbyggðinni þótt
Akureyri sé nú orðin segull norð-
urslóðavísinda.
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Á undanförnum
árum hafa Vaðla-
heiðargöng tengst
áformum um atvinnu-
uppbyggingu á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
Guðmundur
Karl Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Áhættusöm fjármögnun Vaðlaheiðarganga
Aukablað
um bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga
Gildir mánudaga og þriðjudaga
til 12. nóvember.
Fordrykkur
5 rétta óvissuferð úr
sushi- og sambaeldhúsi
Eftirréttur
MOGGAKLÚBBUR
2 fyrir 1
af Sushisamba-matseðli
– blanda af
suður-amerískri
og japanskri
matargerð
KORTIÐ GI
LDIR TIL
30. septemb
er 2013
RA FYRIR Á
SKRIFENDU
R
– MEIMOGGAKLÚ
BBURINN
Sushisamba
Þingholtsstræti 5 • 101 Reykjavík
sími 568 6600 • sushisamba.is
Vinsamlega framvísið Moggaklúbbskortinu
við komu á Sushisamba.