Morgunblaðið - 25.09.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það gerist ekkert nema þú berir þig
eftir hlutunum. Reyndu að sigla milli skers og
báru. Notaðu tímann til gönguferða og hollr-
ar útivistar.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að mæta samkeppni og notar
tækifærið til þess að auka staðfestu þína og
skuldbindingu. Umbætur eru það sem þú ert
að leita eftir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er aldrei til góðs að eyða fé fyr-
irhyggjulaust, jafnvel þótt góðir tímar séu.
Það er alltof mikið að gera hjá þér. Reyndu
að hægja á og njóta betur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sumum finnst skemmtilegra að fá
hugmyndir og gera áætlanir en að fram-
kvæma þær. Sýndu þeim tillitssemi sem
trufla þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekkert ganga fyrir fjölskyldu þinni
því hún er grundvöllur lífs þíns og án hennar
værir þú ekki það sem þú ert. Misstu ekki
móðinn, bíddu bara þar til lánið leikur við þig
á ný.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að koma fram við aðra eins
og þú vilt að aðrir komi fram við þig. Skráðu
þig í keppni – þú gætir unnið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Notaðu hæfileika þína til að tala við þá
sem hafa það á valdi sínu að geta gert breyt-
ingar í þína þágu og annarra. Kannski þú
ættir að punta þig í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að finna þér tíma til
þess að sinna þér betur. Gættu þess bara að
skaða ekki aðra í leiðinni. Þú þarft á hvíld að
halda.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þemað hjá þér er að eiga við
sterka karaktera. Fjölskyldumeðlimur leggur
þér lið í dag. Einhver kergja er í ungviðinu en
hún líður hjá.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur ákveðnar hugmyndir um
hvernig siðsamt og hamingjusamt líf eigi að
vera. Þú ert lukkunnar pamfíll bara ef þú
opnar augun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hláturinn lengir lífið og það er
mikil guðsgjöf að geta séð spaugilegar hliðar
tilverunnar. Ekki ýta hugmyndum út af borð-
inu, ræddu þær við þína nánustu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki búast við kraftaverkum, en erfiði
ástvinurinn virðist svo sannarlega vera á
batavegi. Láttu ekkert byrgja þér sýn svo þú
verðir ekki fyrir vonbrigðum.
Guðmundur Arnfinnsson sendirVísnahorninu limrukorn í til-
efni þess að þingið er að byrja að
nýju:
Á þinginu rausið og rexið,
röflið og karpið og pexið
upphefst á ný,
ég hef yndi af því
og ekki vantar það sexið.
Helgi Seljan sendir Vísnahorninu
kveðju: „Í umfjöllun Moggans um
Guðmund frænda minn Árnason í
gær slæddist sú villa að undirrit-
aður væri fyrrverandi ráðherra
sem hann aldrei var. En þetta varð
tilefni vísukorns:
Svo ótalmargt gleðilegt öðlast maður:
Ég átti við Moggann svo góðan fund.
Og mikið varð þessi gamli glaður
að geta ráðherra orðið um stund.“
Pétur Stefánsson yrkir heilræða-
vísur:
Það að eiga gæsku góða
er gjöf sem flestir óska sér.
Hafa ást og yl að bjóða
öllum þeim sem lifa hér.
Hjúkra veikum, sorgir sefa,
sæl og glöð við yrðum þá.
Svo er ætíð sælla að gefa
en sjálfur þiggja öðrum frá.
Sérhvern dag skal góðverk gera,
gleðja þá sem eiga bágt.
Hreinn og beinn er best að vera
með bros á vör, og lifa í sátt.
Besta borgin er yfirskrift vísu
eftir Ármann Þorgrímsson:
Alltaf gleði, aldrei sorg
enginn vandi á höndum
er í stærstu álfaborg
á öllum Vesturlöndum.
Jón Gissurarson skrifar á Leir-
inn, póstlista hagyrðinga: „Það var
hér norðan hríð dagana 15.-17.
september sem setti niður mikinn
snjó. Ég var á vélsleða að smala
kindum bæði í gær og fyrradag.
Snjórinn er þó að minnka og sinu-
stráin farin að gægjast upp með
bleikum lit að sjálfsögðu.
Bleik við sjáum sinustrá
sveipast hér um grundir.
Meðan felast fjöllin há
fannaslæðu undir.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af þinginu, ráðherra
og stærstu álfaborginni
Í klípu
„ÞETTA ER VISSULEGA FÍN EINKAFLAUG,
EN ÉG BAÐ ÞIG AÐ HANNA EINKALAUG!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VIL GETA ANDAÐ ÞÓ ÉG SÖKKVI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í blóma.
JÓN GAF
MÉR GJÖF.
HANN VEIT ÞAÐ
BARA EKKI.
ÞAÐ ER EKKI SVO SLÆMT AÐ
VERA VÍKINGUR, ÞÓ AÐ ALLIR
SEM ÞÚ HITTIR HATI ÞIG.
ÞÚ VEIST ÞÁ ALLAVEGA HVERJIR
ÓVINIR ÞÍNIR ERU.
HEITIR POTTAR
OG LAUGAR
Hvítá rennur fram hjá breið oglygn undir fölgulri haustsól,
hólmar standa upp úr mjólkurlitu
straumvatninu, gulnuð strá bærast í
svalri golunni og loftið er svo tært
að fjallahringurinn blasir við, Ing-
ólfsfjall, Langjökull, Hekla, Tind-
fjallajökull og Eyjafjallajökull. Vík-
verji drakk í sig náttúruna í
flatneskjunni í Flóanum um helgina
og velti fyrir sér hvort hann ætti að
prísa sig sælan að rigningasumarið
mikla væri loks á enda og komið
haust.
x x x
Víkverji hefur reyndar oft leitthugann að því hvernig einn
góðviðrisdagur getur bætt upp fyrir
rysjótta tíð og þurrkað hana út og
um leið reynst veganesti inn í kom-
andi ótíð.
x x x
Víkverji hefur oft velt fyrir sérhvernig á því standi að Íslend-
ingar séu svona sólgnir í ís. Í Ísbúð
Vesturbæjar við Hagamel er nánast
alltaf biðröð út úr dyrum og gildir
þá einu hvernig viðrar, hvort það er
blíðskaparveður um hásumar eða
rok og nístingskuldi í svartasta
skammdeginu. Í sumar var ísbúðin
Valdís opnuð úti á Granda og þar er
það sama upp á teningnum; tugir
manna standa og bíða eftir að komi
að þeim. Kannski er réttnefni að
kalla Íslendinga ísþjóðina þegar öllu
er á botninn hvolft.
x x x
Lýsingar á íþróttakappleikjumgeta verið furðulegar. Um
helgina var fullyrt að lið hefði sigr-
að vegna þess að það vann varn-
arvinnuna sína vel. Öllu áhrifaríkara
hefði verið að segja að liðið hefði
varist vel. Íþróttaþulir tala einnig
iðulega um miðsvæði vallar í staðinn
fyrir miðju. Svona orðalag virðist
komið í vana, en auðvelt væri að
losna úr þessum viðjum vanans og
einfalda mál sitt. Víkverji hefur þó
ákveðna samúð með íþróttaþulum.
Þeir þurfa að vera fljótir að hugsa
og greina það sem fyrir augu ber og
koma því út úr sér jafnharðan. Þeir
búa ekki við þann munað að geta
lesið yfir og prófarkalesið, heldur
verða einfaldlega að láta gamminn
geisa. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur
LEGUR
Í BÍLA OG TÆKI
www.falkinn.is
Það borgar sig að nota það besta!
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
TRAUSTAR VÖRUR
...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur