Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 31
Óttar Einarsson, f. 3.10. 1940, d. 7.2. 2013, og Þuríður Jónsdóttir, f. 13.5. 1914, d. 6.8. 1993. Stjörnuparið stefnir á að heim- sækja Suður-Ameríku í tilefni af fimmtugsafmælinu, klifra upp á Machu Picchu og villast í frumskóg- inum en fyrst verður fagnað með veisluhöldum í Reiðhöllinni í Víðidal þar sem m.a. hljómsveitin Loft- skeytamenn kemur fram og svo mun diskóið óma inn í haustnóttina. Frændgarðar Brynjars og Steinunnar Ingu Brynjar Ágústsson Sigríður V. Rögnvaldsd. húsfr. á Akureyri Hans Ágúst Ásgrímsson verkam. á Akureyri Sigríður Helga Jónsdóttir húsfr.á Blönduósi Valdimar Jóhannsson verkam. á Blönduósi Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir húsfr. á Blönduósi Sumarliði Tómasson b. á Blönduósi Ragnheiður Þorleifsdóttir á Akureyri Hans Ágúst Guðjónsson á Akureyri Þórunn Gunnarsdóttir húsfr. í Heiðarhöfn Óli Jóhannes Jónsson b. í Heiðarhöfn á Langanesi Ingiríður Árnadóttir húsfr. í Holti Kristján Þórarinsson b. í Holti í Þistilfirði Guðrún Pálsdóttir húsfr. á Hermundarfelli Kristján Einarsson b.á Hermundarfelli í Þistilfirði Þórdís Konráðsdóttir Jóhannes Jósefsson Steinunn Inga Óttarsdóttir Jóhanna Þ. Þorsteinsdóttir kennari í Hafnarfirði Óttar Einarsson kennari í Hafnarfirði Þuríður Jónsdóttir verkakona á Þórshöfn Matthildur Magnúsdóttir húsfr. á Læknisstöðum Jón Ólafsson b. á Læknisstöðum á Langanesi Guðrún Kristjánsdóttir húsfr. á Akureyri Þorsteinn Ólason útvegsb. á Þórshöfn Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli, rithöfundur og útvarpsm. á Akureyri Rögnvaldur Sumarliðason verkam. á Blönduósi Ingibjörg Judit Hansdóttir húsfr. á Akureyri Ásgrímur Leonard Jóhannesson verkam. á Akureyri Helga Sigríður Valdimarsdóttir húsfr. á Blönduósi Ferðapæjur Steinunn og Arwen. Ofurhuginn Brynjar Ágústsson. ÍSLENDINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 Klara Björg Jakobsdóttir hefurvarið doktorsritgerð sína viðLíf- og umhverfisvísindadeildHáskóla Íslands. Titill ritgerð- arinnar er Langtímabreytileiki í erfða- samsetningu þorsks (Gadus morhua) við Ísland (á ensku: Historical genetic var- iation in Atlantic cod (Gadus morhua) in Icelandic waters). Tengill á ritgerð: http://skemman.is/handle/1946/ 13858. Markmið ritgerðarinnar var að kanna erfðabreytileika þorsks á seinni hluta síð- ustu aldar og meta áhrif fiskveiða. Í meg- inhluta ritgerðarinnar var notað erfðaefni af kvörnum sem safnað var á árunum um 1948-2002 auk líffræðilegra upplýsinga til að kanna langtímabreytingar á arf- gerðatíðni Pan I erfðamarksins sem og hlutlausra erfðamarka (örtungl) í hrygnandi þorski við Ísland. Helstu niðurstöður voru þær að jafnframt því sem meðalaldur fiska lækkaði á tímabilinu urðu breytingar á arfgerðatíðni Pan I erfðamarksins. Þessar niðurstöður bentu eindregið til þess að hlutfall Pan I BB arfgerðar sem ein- kennir djúpfarshópinn hafi minnkað í kjölfar aukins fiskveiðiálags á rannsóknar- tímabilinu. Ítarleg rannsókn á langtímabreytileika í hlutlausum erfðamörkum (ört- ungl) leiddi í ljós töluverðan breytileika og erfðafræðilegan mun á milli ára, sér í lagi yfir seinni hluta tímabilsins. Virk stofnstærð (Ne) var metin vera á bilinu nokk- ur hundruð til þúsunda fiska sem er mjög lág miðað við eiginlegan hrygningarstofn. Niðurstöður bentu til þess að sá mikli breytileiki sem einkennir ýmis lífsöguleg at- riði í íslenska þorskinum endurspeglist í breytilegri erfðasamsetningu en um leið tiltölulega lágri erfðafræðilegri stofnstærð. Jafnframt sýna niðurstöður fram á mik- ilvægi endurtekinnar söfnunar yfir lengri tímabil svo greina megi erfðafræðilegar langtímabreytingar frá skammtímasveiflum.  Klara er fædd 1968. Hún lauk diplómgráðu í líffræði frá Háskólanum í Regens- burg, Þýskalandi, 1995. Hún hefur gegnt störfum við Læknadeild Yale í Banda- ríkjunum og hjá Hafrannsóknastofnun. Klara er dóttir hjónanna dr. Jakobs Magn- ússonar og Vilhelmínu Vilhelmsdóttur. Hún er gift dr. Pétri Henry Petersen, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands, og synir þeirra eru Jakob Alexander og Einar Tryggvi. Doktor Doktor í líffræði 95 ára Guðjón Jónsson 90 ára Ragnheiður Gísladóttir 85 ára Steinunn Bjarman Svava Högnadóttir 80 ára Hildur Hansen 75 ára Björgúlfur Þorvarðarson Hólmfríður Jóhannsdóttir Lárus Lárberg Guðmundsson 70 ára Kristín Stefánsdóttir Skúli Magnússon 60 ára Birna Garðarsdóttir Björg Rannveig Ágústsdóttir David Allan Ball Hulda Karen Daníelsdóttir Ragnheiður B. Sverr- isdóttir Sigrún Áskelsdóttir Sigurður Ómar Jónsson Sigurgeir Már Jensson Þóranna Halldórsdóttir 50 ára Eiður Einar Kristinsson Guðmundur Ingi Einarsson Guðni Kristjánsson Guðný Sigríður Víkingsdóttir Helga Ingibjörg Reynisdóttir Martha Jónasdóttir Snæbjörn Pálsson Steingrímur Árni Pálsson Sveinn Axel Sveinsson Sæmundur J.Þ. Andr- ésson Valdimar Sigurðsson Þórunn Jónsdóttir Þröstur Ólafsson 40 ára Artur Marek Szczodrowski Dagmar Sigrún Guðmundsdóttir Daniela Disca Erla Hrönn Randversdóttir Ingimar Kári Loftsson Jóhann Þórðarson Kristín Ýr Pétursdóttir Magnús Geir Þórðarson Malvina Chukhlib Muriel Claude Daniele Léglise Óskar Aðalbjörn Aðalbjörnsson Rúnar Magnússon Unnur Ýr Kristjánsdóttir 30 ára Bryndís Guðmundsdóttir Daníel Gestur Tryggvason Jón Heiðar Ingólfsson Þórhildur Halldórsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Hjalti lauk prófi frá Keili og stundar nám í tannlækningum við HÍ. Maki: Júlíana Bjarnadótt- ir, f. 1973, lögreglukona. Börn: Elenora Rós, f. 2006; Maríana, f. 2009, og Hörður, f. 2012. Börn Júlíönu: Bjarni, f. 1991; Sunneva, f. 1993, og Elísabet, f. 1998. Foreldrar: Hörður V. Sig- marsson, f. 1953, og Sig- urbjörg E. Guðmunds- dóttir, f. 1956. Hjalti Harðarson 30 ára Guðmundur ólst upp í Kópavogi, býr á Neskaupsstað og öryggis- fulltrúi hjá ALCOA. Maki: Kristín Ella Guð- mundsdóttir, f. 1984, nemi við HÍ. Börn: Ásrún Ingibjörg, f. 2008; Benedikt Helgi, f. 2010, og Friðrika María, f. 2012. Foreldrar: Þorsteinn Ein- arsson, f. 1952, og Soffía Ingibjörg Guðmunds- dóttir, f. 1956. Guðmundur B. Þorsteinsson 30 ára Guðrún ólst upp í Vogunum, er þar búsett, lauk BS-prófi í líffræði frá HÍ og starfar hjá Actavis. Maki: Sveinn Finnur Helgason, f. 1981, blikk- smiður. Synir: Daníel Örn, f. 2001, og Heiðar Sær, f. 2008. Foreldrar: Særún Jóns- dóttir, f. 1949, kennari, og Ragnar Karl Þorgrímsson, f. 1945, fyrrv. fiskverk- andi. Guðrún Kristín Ragnarsdóttir Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LAUGARDAGA 11-14 MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR LINSUMÁTANIR TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í 17 ÁR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.