Morgunblaðið - 07.10.2013, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 07.10.2013, Qupperneq 15
Þórshöfn er hluti Langanesbyggðar og stendur í landi Syðra- Lóns, á Langanesi fyrir austan Þistilfjörð. Þar er útgerð og ýmis þjónusta við nærliggjandi sveitir og þar er miðstöð stjórnsýslu byggðarlagsins. Á Þórshöfn búa um 380 manns og hefur íbúum lítið fækkað þar undanfarin ár, öfugt við flestar aðrar byggðir á þessum slóðum. Byggð tók að myndast á Þórshöfn í lok 19. aldar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 Verkfræðingur í Noregi Katrín Jóhannesdóttir býr í Þrándheimi og vill að dætur sínar kynnist sauðburði. frí fyrir börnin úr skóla en ég hef sótt um það á þeirri forsendu að þessar hefðir og menningu þurfi að upplifa, það lærist ekki eingöngu af bókum. Það er mikilvægt að mynda tengsl við dýrin og náttúruna, það þroskar mann sem einstakling og gerir mann að betri manneskju. Svo er þetta líka svo ægilega gaman,“ sagði Katrín. Hulda Þórey Garðarsdóttir kom úr öllu fjarlægari heimshluta eða frá Hong Kong í Kína, þar sem hún hefur í mörgu að snúast. Hún er ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur að mennt og rekur fæðingarheimili í Hong Kong en auk þess er hún ræðismaður Íslands í Kína. Býr um borð í lystisnekkju „Haustið er uppáhaldstíminn minn,“ sagði Hulda Þórey, nýkomin til byggða í Þistilfirði eftir smölun á Álandstungunni en þangað fór hún líka í síðastliðið haust. Hulda er fædd og uppalin á Kópaskeri í Norður-Þingeyjarsýslu og tók þá mikinn þátt í sveitastörf- um í heimabyggðinni áður en hún flutti búferlum til Kína. Þar býr hún nú í lystisnekkju með fjöl- skyldu sinni og líkar vel. Norð- lensku stúlkunni frá Kópaskeri þótti oft þröngt um sig í fjölmennu borginni Hong Kong og segir að mun rýmra og þægilegra sé að búa úti á flóanum í þessari 30 tonna tví- bytnu þar sem öll þægindi eru til staðar heldur en í þrengslum stór- borgarinnar. „Ég stefni á að koma á hverju ári í víðáttuna og hreina loftið heima á Íslandi og fara í smala- mennsku, sagði Hulda, ég fæ alltaf góða hesta og hlakka til að komast á hestbak.“ Fráar á fæti Lagðprúðum kindum smalað úr Álandstungunni að réttunum við Syðra-Áland í miklu blíðskaparveðri í september. Ísfélag Vestmannaeyja er lang- stærsti vinnuveitandinn og burð- arás í atvinnulífinu. Þar eru um 70 manns fastráðir en vinna um 200 þegar mest er að gera og þótt ótrúlega kunni að hljóma er Þórshöfn ein stærsta útskipunar- höfn landsins; þar er unnið úr einum 80 þúsundum tonnum af fiski árlega og skipað út rúmlega 30 þús. tonnum af afurðum. Ísfélagið rekur bæði frystihús og fiskimjölsverksmiðju á staðn- um. Fyrirtækið keypti Hrað- frystistöð Þórshafnar árið 2007 og hefur byggt upp jafnt og þétt síðan. „Ísfélagið er burðarás í at- vinnulífinu á Þórshöfn og ná- grenni, það er lykillinn að vel- gengni okkar í Langanesbyggð að fá svona öflugt fyrirtæki hér inn,“ segir Siggeir Stefánsson, framleiðslustjóri frystihússins, við Morgunblaðið. „Þetta get ég sagt bæði sem íbúi hér og sveit- arstjórnarmaður,“ segir hann, en Siggeir er oddviti sveitarfé- lagsins. „Hér er nóg að gera allt árið. Við höfum verið að fjölga fast- ráðnu starfsfólki og svo koma þessar tarnir, sem nú standa yfir í 4-5 mánuði á ári, og þá kemur til okkar fólk bæði héðan úr ná- grenninu og annars staðar af landinu.“ Þá er unnið á vöktum allan sólarhringinn. „Hér eru alls um 200 manns frá því seinni partinn í júlí og fram í október. Makríllinn er að verða búinn, við erum enn að veiða síld og svo er það loðnan í janúar og febrúar.“ Siggeir nefnir að skólafólk á svæðinu hafi möguleika á mikilli vinnu, eins og oft hefur verið í sjávarplássum í gegnum árin. „Þetta hjálpar mörgum í náminu. Það er mikilvægt að eiga mögu- leika á svona vinnu og þeir sem standa 12 tíma vaktir geta fengið hörkulaun. En fólk vinnur sann- arlega fyrir þeim,“ segir Siggeir. Ísfélagið langstærsti vinnuveitandinn Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fjör Allir sprækir á dagvaktinni. Siggeir Stefánsson með makríl. Lykill að velgengni í Langanesbyggð Mjölpoki Kristinn Lárusson og Rafn Jónsson í bræðslunni. og málar, heldur borðar hún þenn- an nýjasta Íslandsvin oft og segir hann hnossgæti. Tvennum sögum fer reyndar af því; sumir segja ekk- ert varið í makríl. „Þeir hafa þá bara ekki fengið hann rétt hanter- aðan,“ segir hún. „Hér heima borð- um við hann aðallega reyktan; hann minnir á blöndu af reyktum laxi og rauðmaga, en pönnusteiktur er makríll líka algjört æði.“ Birna málar ekki bara fisk heldur hvað sem henni dettur í hug. „Ég vann á vertíð sumarið fyrir síð- asta skólaárið mitt, var í vandræð- um með hvað ég ætti að fjalla um í lokaritgerðinni og á einni nætur- vaktinni sló niður í hugann að auð- vitað myndi ég nota fiskinn frá ein- hverju sjónarhorni; það er endalaust hægt að skrifa um síld- arvertíðir og þær eru enn til, þó ekki í sama formi og á gullaldarár- unum. Hingað kemur fólk enn alls staðar að á vertíð. Og makríllinn er mjög fallegur; litbrigðin í honum eru alveg ótrúleg.“ Birna hefur ekki málað nógu mikið að undanförnu, að eigin áliti. „Ég vinn á 12 tíma vöktum með frá- bæru fólki en þegar vertíðinni lýk- ur get ég farið að mála á fullu. Mér finnst reyndar fara mjög vel saman að vinna í fiski og vera myndlist- armaður; það róar hugann að vinna svona. Og ég þekki fyrirsæturnar mjög vel!“  Næsti viðkomustaður á 100 daga hringferð Morgun- blaðsins er Vopnafjörður. Á morgun Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is Erum með allar gerðir af heyrnartækjum Fáðu heyrnartæki til reynslu og stjórnaðu þeim með ReSound Appinu Komdu í greiningu hjá faglærðum heyrnarfræðingi Heyrðu umskiptin og stilltu heyrnartækin í Appinu Finndu okkur á facebook 20% afsláttur afþráðlausum Uniteaukabúnaði íoktóber

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.