Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Sigrún Klara Hannesdóttir, dokt-
or í bókasafns- og upplýsingafræði
og fyrrverandi landsbókavörður,
verður sjötug miðvikudaginn 9.
október. Í tilefni afmælisins stendur
hún fyrir málþingi í Þjóðarbókhlöð-
unni um íslenskar barnabækur.
Málþingið er haldið í samvinnu við
Barnabókasetrið á Akureyri og
Landsbókasafn Íslands. Málþingið
hefst klukkan 13 á miðvikudag.
Það er fremur óvenjulegt að
halda upp á afmæli sitt með mál-
þingi. Af hverju ákvað Sigrún Klara
að gera það? „Núna er ég hætt að
vinna og get gert það sem mér sýn-
ist. Mér fannst upplagt að nota
tækifærið og hóa saman fólki til að
fjalla um barnabækur því ég hef
verið tengd barnabókum alla mína
starfsævi þótt ég hafi aldrei skrifað
barnabók,“ segir hún. „Ég vann um
tíma við að setja upp skólasöfn í
Reykjavík og valdi þá bækur á þau
söfn og komst að raun um að ekkert
var til af fræðibókum fyrir börn. Þá
var næsta mál að stofna bókaforlag
og við vorum nokkrar konur sem
stofnuðum bókaforlagið Bjölluna á
sínum tíma og gáfum út fræðibækur
fyrir börn. Síðan kenndi ég kúrsa í
Háskólanum um barnabækur og var
í fyrstu nefndinni sem valdi bækur
til verðlauna þegar Fræðsluráð
Reykjavíkur byrjaði að verðlauna
barnabækur. Þegar verðlauna-
sjóður Ármanns Kr. var stofnaður
sat ég í stjórn þess sjóðs í tíu ár.
Einnig skrifaði ég í mörg ár rit-
dóma um barnabækur í Morgun-
blaðið. Ég sá allt frá byrjun að það
efni sem var í boði fyrir íslensk
börn á þeirra tungu var fremur fá-
tæklegt. Ég vildi taka þátt í að
breyta þessu og hef aldrei læknast
af þeim kvilla.“
Á þinginu verður fjallað um stöðu
og framtíð íslensku barnabók-
arinnar. Er sú staða ekki bara
nokkuð góð?
„Jú, og það hafa orðið stórkost-
legar framfarir frá því ég byrjaði að
stússast í þessum málum upp úr
1970. Nýlega var tekin sú gleðilega
ákvörðun að hafa sérstakan barna-
bókaflokk innan Íslensku bók-
menntaverðlaunanna og Norrænu
barnabókaverðlaunin eru einnig
lyftistöng fyrir barnabókmenntir.
Fyrir rúmu ári sá ég svo gamlan
draum minn rætast en þá var stofn-
að Barnabókasetur á Akureyri. Þá
notaði ég tækifærið og gaf setrinu
barnabækurnar mínar, 1.400 tals-
ins.
Ég hef séð miklar breytingar í
barnabókaútgáfu í áranna rás og
ekki síst er áberandi hvað barna-
bækur eru orðnar fallegar, hér áður
fyrr var alltof algengt að þær væru
prentaðar á ljótan og lélegan papp-
ír. Á þeim tíma voru barnabækur
neðst í forgangsröðinni þegar kom
að bókaútgáfu. Þetta hefur gjör-
breyst.“
Samsafn af tilviljunum
Sigrún Klara hefur komið víða við
á löngum starfsferli, var fyrsti dokt-
or okkar Íslendinga í bókasafns-
fræði og fyrsta konan til að verða
landsbókavörður. „Líf mitt hefur
verið samsafn af tilviljunum,“ segir
hún. „Ég ætlaði að verða ensku-
kennari, prófaði að kenna ensku og
fannst kennarastarfið hundleið-
inlegt. Ég hugsaði með mér að best
væri að læra bókasafnsfræði því þar
gæti ég látið lítið á mér bera. Ég
fékk Fulbright-styrk, fór til Banda-
ríkjanna og tók meistarapróf í bóka-
safnsfræði. Eftir námið vann ég eitt
ár á háskólabókasafni í Michigan.
Dvölin í Bandaríkjunum var nokkuð
strembin því þetta var á tímum Ví-
etnamstríðsins og mikið um mót-
mæli. Bæði Martin Luther King og
Robert Kennedy voru drepnir á
þeim tíma sem ég var þarna.
Frá Michigan fór ég til Perú og
var þar í tvö ár. Þegar ég kom aftur
heim fór ég að kenna bókasafns-
fræði þannig að ég komst ekkert frá
þeim örlögum að verða kennari. Ég
kenndi bókasafnsfræði í rúmlega
tuttugu ár í Háskólanum. Þegar ég
svo fékk stöðu landsbókavarðar var
ég fyrsta konan til þess. Ég var í
því starfi í fimm ár og á þeim tíma
urðu miklar breytingar því þá var
byrjuð stafræn endurgerð á dag-
blaðaefni og efnið gert aðgengilegt
á vefnum. Það hafði til dæmis mikil
áhrif þegar Morgunblaðið var sett í
stafrænt form og var aðgengilegt
öllum á vefnum, en blaðið veitti
styrk til þess verkefnis. Önnur blöð
fylgdu í kjölfarið og nú þarf fólk
ekki að sitja á bókasafni og fletta
blöðum. Timarit.is er vefur sem er
opinn öllum og gífurlega mikið not-
aður.“
Sigrún Klara var í nokkur ár
framkvæmdastjóri NORDINFO
norrænni stofnun sem styrkti verk-
efni til að auðvelda vísindamönnum
aðgang að upplýsingum. „Vegna
þess starfs flutti ég til Finnlands ár-
ið 1998 og var þar í fjögur ár,“ segir
hún. „Yfirráðasvæði mitt var öll
Norðurlöndin, Grænland, Færeyjar,
Eystrasaltslöndin og vesturhluti
Rússlands þannig að ég hafði ansi
stórt og vítt svið. Það var sérstakt
áhugamál mitt að styrkja Norðvest-
ursvæðið, þ.m.t. Grænland, og þar
duttum við niður á frábæra hug-
mynd sem var að setja stærsta dag-
blað Grænlands, Grönlandsposten, í
stafrænt form þannig að allir Græn-
lendingar hefðu eitthvað á sínu
móðurmáli aðgengilegt á netinu. Því
miður er nú búið að leggja niður
NORDINFO eins og svo margar
aðrar norrænar stofnanir.“
Sigrún Klara fékk á dögunum
viðurkenningu Delta Kappa Gamma
sem er félag kvenna í fræðslustörf-
um. Hún er fyrsta Evrópukonan
sem fær viðurkenningu hjá félaginu.
Hún segist vera mjög þakklát og
stolt fyrir þá viðurkenningu. Hún
hefur ferðast til fleiri landa en flest-
ir og náði því marki á árinu að kom-
ast til hundraðasta landsins. Þegar
hún er spurð hvert sé skemmtileg-
asta landið sem hún hafi komið til
segir hún: „Það er eiginlega alltaf
síðasta landið sem ég heimsæki. Ég
fór á Suðurskautslandið fyrr á árinu
og var sex vikur í Suður-Ameríku,
en toppurinn á því ferðalagi var við-
koma á Páskaeyjunni sem mér
fannst ótrúlegur staður lengst úti í
hafi. Á þessari eldfjallaeyju er 5.000
manna þjóð sem er búin að lifa
hörmungar en ber höfuðið hátt og
viðheldur menningu sinni.“
Hún segist ekki vilja blóm eða
gjafir á afmælisdaginn. „Ég á svo
miklu meira en nóg af dóti,“ segir
hún. „Mig langar hins vegar til að
biðja fólk að styðja samtök sem ég
hef unnið með að undanförnu og eru
kölluð Vinir Perú. Draumur minn er
að koma upp skólabókasafni í einu
af fátækrahverfum Líma í Perú sem
kallast La Quebrada. Ég verð með
bauk í afmælinu fyrir þá sem vilja
styrkja verkefnið.“
Af hverju viltu styrkja börn í
Perú?
„Perú hefur alltaf átt sérstakan
stað í hjarta mínu. Ég bjó þar um
tíma af því að ég gifti mig þangað
og vann þar sem ráðgjafi fyrir Bank
of Inter-American Development í
tvö ár. Í Perú lenti ég í 8 stiga jarð-
skjálfta, háskólinn sem ég átti að
vinna við hrundi og verkefnið varð
allt hálfónýtt. 60.000 manns fórust
Lestur er
lykill að
þekkingu
Sigrún Klara Hannesdóttir fagnar
sjötugsafmæli með málþingi um
íslenskar barnabækur
Styttusafnari „Mér hefur tek-
ist að finna styttur og myndir af
fólki við lestur í nær öllum þeim
löndum sem ég hef heimsótt,“
segir Sigrún Klara.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Movie Star
hvíldarstóll
Verð 439.000,-