Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 Eðlilegt er að afmælisbarn dagsins, hönnuður og hugmynda-fræðingur Íslendingabókar, sé í upphafi spurður um eiginættir. „Ég lít fyrst og fremst á mig sem Reykvíking, en eins og gerist með þá liggja rætur ættartrés míns um allt land. Föður- ættin er frá Keldum á Rangárvöllum og leggur af henni úr Þingeyj- arsýslum. Móðurættin er úr Breiðafirði og af Norðurlandi vestra,“ segir Friðrik Skúlason tölvunarfræðingur sem er fimmtugur í dag. Ferill Friðriks er fjölbreyttur. Hann starfaði t.d. við Reiknistofn- un Háskóla Íslands og hóf eigin rekstur við hugbúnaðargerð árið 1987 og þekktustu afurðirnar úr smiðju hans eru t.d. villuleitar- forritið Púkinn en hæst ber Íslendingabókin góða. Hún fór í loftið árið 2002 og er bakland rannsóknarstarfs Íslenskrar erfðagrein- ingar enda sýnir hún skyldleika og blóðbönd allra Íslendinga svart á hvítu. Hún hefur jafnframt eflt ættfræðiáhuga landans og allir eru skyldir öllum þótt langt þurfi að fara aftur. „Áhugamálin eru fjölmörg. Við fjölskyldan erum með sumarhús austur í sveitum og ræktum þar skóg og garðyrkjan er skemmtileg. Einnig hef ég ánægju af því að taka ljósmyndir, til dæmis af náttúru landsins og svipbrigðum hennar, þó segjast verði að tími til að sinna þessum hugðarefnum sé takmarkaður,“ segir Friðrik. sbs@mbl.is Friðrik Skúlason er 50 ára í dag Morgunblaðið/Heiddi Íslendingur „Ég lít fyrst og fremst á mig sem Reykvíking,“ segir Friðrik Skúlason sem er stórt nafn í hugbúnaðariðnaðinum. Ættfræðingurinn á rætur um allt land Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Sandra Ósk Birgis- dóttir, Eiður Logi Sig- fússon og Hafdís Björg Birgisdóttir héldu tombólu við Kúluna á Háaleitis- braut. Þau söfnuðu 3.222 kr. sem þau gáfu Rauða kross- inum. Hlutavelta Reykjavík Katrín Inga fæddist 30. janúar kl. 19.24. Hún vó 4.140 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Þór- unn Hjaltadóttir og Bergþór Már Arn- arson. Nýir borgarar Hnífsdalur Ólafur Hrafn fæddist 26. janúar kl. 20.26. Hann vó 4.405 g og var 57 cm langur. Foreldrar hans eru Rikka Emilía Böðvarsdóttir og Daníel Merlin Taroni. S tjörnuparið Steinunn Inga Óttarsdóttir og Brynjar Ágústsson fæddust bæði á FSA, 7.10. 1963. Þau gengu í Barnaskóla Akureyrar og voru saman í bekk í Gagganum svokallaða, en veittu hvort öðru ekki athygli fyrr en eina septembernótt þegar fyrrv. nem- endur í Barnaskólanum á Akureyri fögnuðu endurfundum 2003. „Þegar við komumst að því að við áttum af- mæli sama dag og sama ár var þetta bara ekki spurning. Þremur vikum síðar skelltum við okkur í fertugs- afmælisferð til Portúgal og höfum verið saman síðan.“ Brynjar ólst upp í innbænum á Akureyri, lauk matartæknanámi frá VMA og hefur verið sölumaður, nú hjá Eggert Kristjánssyni ehf. Hann er dellukarl sem kann ekki að hræð- ast, á yfir 700 fallhlífarstökk að baki, sigldi mikið á seglbretti á Pollinum áður fyrr og var fyrsti Íslendingur- inn sem fór yfir norðurheimskauts- baug á slíku farartæki. Ljósmyndun er hans nýjasta æði en sjá má mynd- ir hans á panorama.is. Steinunn Inga ólst upp á brekk- unni, lauk stúdentsprófi frá MA 1983, kennaraprófi 1991, M.Paed.- prófi í íslensku 1994, MA-prófi í ís- lenskum bókmenntum 1996, diploma í mannauðsstjórnun 2008 og vett- vangssnámi í stjórnun framhalds- skóla 2012 en hún hefur verið áfangastjóri bóknáms í MK frá 2002. Steinunn hefur skrifað bók- menntagagnrýni í DV og Morgun- blaðið, skrifað pistla og greinar og haldið fyrirlestra um bókmenntir, sat í stjórn Félags um 18. aldar fræði og Félags íslenskra fræða og situr í stjórn Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Hún var í vinnu- hóp um tilnefningar til þýðingar- verðlaunanna 2009 og 2010 fyrir Bandalag þýðenda og túlka og sat í úthlutunarnefnd listamannalauna 2011 og 2012. Steinunn er lestrarhestur og nautnabelgur. Hún skokkar með hlaupahópnum Bíddu aðeins í Kópa- vogi þegar hún er í stuði og er í dul- arfullum „blönduðum“ leshring þar sem pælt er í heimsbókmenntunum. Sameiginleg áhugamál þeirra eru útivist og ferðalög en þau eiga gaml- an fjallatrukk sem þau ferðast á um landið. Ávallt er tíkin Arwen með í för en hún fær að sitja í framsætinu og stjórnar yfirleitt ferðinni. Fjölskylda Börn Brynjars og Kristbjargar Þ. Kolbeinsdóttur eru Sandra Dögg, f. 19.10. 1981, og Arnþór, f. 22.12. 1982. Börn Ágústs, föður Brynjars, og Elísabetar Geirmundsdóttur, f. 16.2. 1915, d. 9.4. 1959, listakonunnar í fjörunni, eru Iðunn, f. 6.12. 1939, myndlistarkona á Akureyri; Ásgrím- ur, f. 9.9.1944, ljósmyndari á Akur- eyri, og Geir, f. 20.1.1952, d. 16.10.1990. Dætur Sigríðar Valdísar, móður Brynjars, og Ámunda Rögnvalds- sonar, f. 16.1. 1935, d. 18.4. 1977, eru Sigrún, f. 23.9. 1953, húsfreyja, og Kolbrún, f. 7.4.1956, d. 13.10.1991. Albróðir Brynjars er Heiðar Ingi, f. 10.6. 1968, eigandi Everest. Foreldrar Brynjars eru Ágúst Ás- grímsson, f. 23.11. 1911, d. 26.12. 1991, og Sigríður Valdís Rögnvalds- dóttir, f. 14.10. 1935, d. 9.2. 2011. Börn Steinunnar eru Óttar Vign- isson, f. 27.3. 1987, kvikmyndagerð- armaður, og Inga Haraldsdóttir, f. 10.6. 1995, nemi. Systur Steinunnar Ingu eru Guð- rún Arnbjörg, f. 21.9. 1964, skrif- stofustjóri RARIK á Selfossi, og Þuríður, f. 22.8. 1968, aðstoðar- skólastjóri Kársnesskóla. Foreldrar Steinunnar Ingu eru Steinunn Inga Oddsdóttir, áfangastjóri við MK, og Brynjar Ágústsson, sölumaður og ljósmyndari – 50 ára Ferðbúin Steinunn Inga, Brynjar og Arwen fyrir framan fjallatrukkinn. Samstiga inn í tilveruna Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæri í miklu úrvali Allt til listmálunar Strigar, penslar, olíulitir, acryllitir, trönur, pallettur, spaðar, svampar, lím, íblöndunarefni, varnish, þekjulitir, teikniblokkir, pappír og arkir Mikið úrval af listavörum Trönur á gólf 7.995 frá 1.495 Startkaplar frá 2.495 Slípirokkur frá 6.995 Verðmætaskápar frá 2.495 Airbrush sett frá 4.995 Fjölslípari frá 4.995 Hleðslu- tæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.