Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Stjórnarandstaðan á þingi hefur ekki dregið úr þrýstingi sínum á ríkisstjórnina að hætta við að lækka skatta á næsta ári. Þvert á móti er haldið áfram að færa þetta í tal við hvert tækifæri til að reyna að gera stjórnvöldum erfitt fyrir að byrja að vinda ofan af öll- um þeim gríðar- legu skattahækk- unum sem dundu á almenningi á síðustu fjórum árum.    Í fyrradag kvaddi þingmaður Bjartrar framtíðar sér hljóðs og lagði til að fyrirhuguð tekjuskatts- lækkun verði dregin til baka.    Björt framtíð sýnir í þessu eina ferðina enn að enginn munur er á þeim flokki og hinum vinstri flokkunum fyrir utan að leiðtogi flokksins hefur starfað í fleiri flokkum en aðrir menn á jafn skömmum tíma.    En hvernig stendur á því að vinstri flokkarnir mega hvergi sjá tillögu um skattalækkun án þess að reyna að hindra að hún verði að veruleika?    Sennilega er ástæðan sú sama og olli því að þeir heyrðu aldrei hug- mynd um skattahækkun á síðasta kjörtímabili sem þeim leist ekki vel á. Stefna vinstri stjórnarinnar afsannaði sig hins vegar rækilega á síðustu árum og henni var al- gerlega hafnað í kosningunum í vor.    Það var vegna þess að fólk er bú- ið að fá nóg af stöðugum skatta- hækkunum og vill skattalækkun. Og fólk ætlast til að þingmenn leysi vanda ríkissjóðs á annan hátt en þann sem engu skilaði nema vonbrigðum á síðasta kjörtímabili. Úr sér gengin vinstri stefna STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.11., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík 0 skýjað Akureyri 0 snjókoma Nuuk -7 léttskýjað Þórshöfn 5 léttskýjað Ósló 0 alskýjað Kaupmannahöfn 8 skýjað Stokkhólmur 5 skýjað Helsinki 3 skýjað Lúxemborg 12 skýjað Brussel 11 skúrir Dublin 9 léttskýjað Glasgow 7 skýjað London 11 heiðskírt París 16 skýjað Amsterdam 11 léttskýjað Hamborg 10 skýjað Berlín 12 skúrir Vín 17 skýjað Moskva 6 skúrir Algarve 18 skýjað Madríd 17 skýjað Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 22 heiðskírt Róm 17 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -7 léttskýjað Montreal 7 skýjað New York 16 alskýjað Chicago 4 léttskýjað Orlando 22 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:35 16:49 ÍSAFJÖRÐUR 9:56 16:38 SIGLUFJÖRÐUR 9:39 16:21 DJÚPIVOGUR 9:08 16:15 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Ríkislög- reglustjóri hefur skipað Bjarneyju S. Annelsdóttur aðalvarðstjóra við embætti lög- reglustjórans á Suðurnesjum. Bjarney er önnur konan sem er skipuð aðalvarð- stjóri innan lög- reglunnar, en í fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra starfar Frið- gerður B. Jónsdóttir og er hún fyrsta konan sem skipuð var aðal- varðstjóri í lögreglu ríkisins. Bjarney var metin hæfust úr hópi 15 umsækjenda. Hún er skipuð til fimm ára frá og með 6. nóvember. Nýr aðalvarðstjóri á Suðurnesjum Bjarney S. Annelsdóttir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is Verjendur sakborninga í svokölluðu Aurum-máli lögðu fram yfirmat á verðmæti Aurum Holding við fyrir- töku í málinu í gær. Samkvæmt því er eignarhluti félagsins, sem Fons hélt á, metinn á bilinu 345 til 2.080 milljónir króna. Búið var að leggja fram undirmat sem var á bilinu 0 til tæpar 1.000 milljónir kr. „Þetta er tvöföldun á því [undir- matinu] en út á þetta voru lánaðir sex milljarðar. Það vantar ennþá eitthvað upp á,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Í Aurum-máli sérstaks saksókn- ara eru þeir Lárus Welding, Jón Ás- geir Jóhannesson, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik og hlut- deild í umboðssvikum sem eru sögð hafa átt sér stað þegar Glitnir veitti félaginu FS38 sex milljarða króna lán til kaupa á Aurum Holding. „Við metum þessa yfirmatsgerð mjög sterka fyrir vörnina,“ segir Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding. Hann segir ennfremur, að yfirmatsmennirnir líti ekki svo á að forsendur um framtíðarrekstur Aur- um Holding, sem Glitnir og aðrir bankar hafi lagt til grundvallar við sínar ákvarðanatökur um fjármögn- un félagsins, hafi verið óraunhæfar. Yfirmat lagt fram í Aurum-máli Morgunblaðið/Styrmir Kári Réttarhöld Lárus Welding ásamt Óttari Pálssyni, verjanda sínum.  Tvöföldun frá undirmati  Verjendur telja yfirmatið vera sterkt fyrir vörnina Ríkissaksóknari hefur ákært tvo unga karlmenn fyrir húsbrot, eignaspjöll og stórfellda líkamsárás gagnvart eldri karlmanni á Skaga- strönd í febrúar sl. Ruddust þeir í heimildarleysi inn á heimili manns- ins og veittust að honum í samein- ingu. Annar árásarmannanna er barnabarn mannsins en árásin tengist kæru á hendur afanum fyrir kynferðisbrot. Árásarmennirnir, sem eru báðir um tvítugt, slógu manninn ítrekað í andlit og höfuð með krepptum hnefa. Tveir ákærðir fyrir árás á Skagaströnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.