Morgunblaðið - 08.11.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Jólabækurnar streyma nú inn í
bókabúðir hver á fætur annarri.
Langflestar eru þær í formi prent-
aðra bóka og einungis brot af þeim
kemur samhliða út sem rafbók. Af
þeim bókaútgáfum sem haft var
samband við voru tvö forlög sem
gefa samtímis út rafbók og inn-
bundna bók.
Um 15 rafbækur af nýjum titlum
koma út hjá Forlaginu um þessar
mundir. Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Forlagsins, seg-
ir ekki ólíklegt að fjöldi rafbóka á
nýjum titlum eigi eftir að aukast
þegar nær dregur jólum. „Það er
tiltölulega fljótgert að bæta við titl-
um og það munum við gera ef
ástæða er til.“
Þá bendir Egill á að bæði sé
snúnara og kostnaðarsamara að
gefa út myndskreyttar bækur sem
rafbækur, en skáldsögur.
Samtals hefur Forlagið gefið út
um 40 nýjar rafbækur á árinu af
öllum stærðum og gerðum. Heild-
arfjöldi rafbóka frá Forlaginu er
nokkru meiri en í fyrra.
Egill segir frekar erfitt að segja
til um hvað sé eiginleg „jólabók“ og
hvað ekki, þar sem þau gefa út
bækur allan ársins hring. „Margar
þeirra sem komu út fyrr á árinu
eiga án efa eftir að gera fína hluti í
jólabókaflóðinu.“
Verðbilið á rafbókunum er frá
1.500 til 3.500 króna, segir Egill.
Bókaútgáfan Bjartur gefur út 6-8
titla í rafbók sem er ívið meira en í
fyrra.
Gefa engar rafbækur út
Bókaútgáfan Salka gefur ekki út
neinar bækur í formi rafbóka. Það
er þó í skoðun og ekki útilokað að
einhverjar rafbækur komi út fyrir
jólin. Sömu sögu er að segja hjá
Uppheimum.
„Það svarar ekki enn þá kostnaði
að setja þær í rafbók, þá er enginn
hvati til að setja þær á það form,“
segir Jakob Ásgeirsson, útgefandi
hjá Bókafélaginu Uglu. Hann segir
að heildarsalan á rafbókinni sé um
5-10%.
Bókafélagið gefur heldur ekki út
neinar rafbækur fyrir jólin. Ein raf-
bók hefur komið út hjá útgáfunni í
ár. „Við fylgjumst grannt með
markaðnum og hvort og hvenær
rafbækur kunna að bera sig,“ segir
Jónas Sigurgeirsson hjá Bókafélag-
inu. Þá gefur Crymogea ekki út
neinar rafbækur. „Það er alltof
dýrt að gefa út rafbækur fyrir
markað sem hefur í raun engan
áhuga á þeim enn sem komið er,“
segir Kristján B. Jónasson útgef-
andi hjá Crymogeu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókajól Flestir útgefendur gefa út prentaðar bækur fyrir jólin.
Fáar nýjar raf-
bækur um jólin
Prentaða bókin heldur enn velli
Jólablað
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 18. nóvember.
❆
❆
❆
❆
❆
Morgunblaðið
gefur út
stórglæsilegt
jólablað
laugardaginn
23. nóvember
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum fjölda fólks
og verðum með fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa
❆
SÉRBLAÐ
Ný sending
Kjólar
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
kr. 10.900.-
Str. S-XXL
Sími 8948060 www.rolo.is Facebook
Barnafataverslun
in
Róló Glæsibæ.
Vandaður og fallegur
barnafatnaður
www.birkiaska.is
Birkilauf-Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Baldur Arnarson, Seattle
baldura@mbl.is
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, bauð í gær
bandarísk fyrirtæki velkomin til
fjárfestinga og viðskipta á Íslandi á
fundi á vegum Amerísk-íslenska við-
skiptaráðsins í Seattle.
Nokkrir forystumenn úr íslensku
efnahagslífi voru viðstaddir fundinn
og má þar nefna fulltrúa Marels,
Össurar og Icelandair.
Fram kom í máli Ragnheiðar El-
ínar að ríkisstjórnin hefði einsett sér
að einfalda regluverk og draga úr
skriffinnsku til að greiða fyrir við-
skiptum.
„Við viljum senda skýrt merki til
umheimsins um að við fögnum fjár-
festingu,“ sagði Ragnheiður Elín.
Vék hún síðan að ýmsum þáttum
sem gerðu Ísland að fýsilegum fjár-
festingarkosti. Frumorkuframleiðsl-
an kæmi úr endurnýjanlegri orku,
nettengingar góðar og gott framboð
af vel menntuðu vinnuafli.
„Skilvirkni í ríkisrekstrinum er að
aukast, þá að sjálfsögðu síðan í maí,“
sagði Ragnheiður Elín og vísaði til
stjórnarskiptanna. Uppskar hún þá
hlátur.
Ragnheiður Elín sagði ríkisstjórn-
ina áhugasama um gerð fríverslun-
arsamnings við Bandaríkin. Þá
fylgdist stjórnin náið með framvindu
fríverslunarviðræðna Bandaríkj-
anna og ESB.
Ráðherrann upplýsti jafnframt að
hún hefði falið sérfræðingum í iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu að
kanna hvernig greiða mætti fyrir
innflutningi á bandarískum vörum til
Íslands. Reistar hefðu verið hindr-
anir í veg innflutnings sem þyrfti að
ryðja úr vegi. Ragnheiður Elín vék
að efnahagshruninu á Íslandi og
hvernig það væri stærsta áskorunin í
íslensku efnahagslífi að afnema fjár-
magnshöft. Afnema þyrfti höftin
eins fljótt og auðið er.
Vill greiða fyrir viðskiptum
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið með fund í Seattle í gær
Ljósmynd/Þorleifur Þór Jónsson
Bandaríkin Ragnheiður Elín Árna-
dóttir á fundinum í Seattle í gær.
Aukablað
alla þriðjudaga