Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.11.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjónsdóttir Ástríða Berglind vill draga úr sykurneyslu ungs fólks. bestu uppskriftirnar. „Ástæðan fyrir því að mig langaði að fara af stað með þessa keppni er sú að maður tekur eftir þvi að óhollu jólasmákökurnar eru að koma í verslanir í lok september þannig að við sem megum alls ekki við því að borða meiri sykur erum kannski að borða jólasmákökur í þrjá mánuði og þar sem þetta er verksmiðjuframleitt veit maður ekki hversu mikill syk- ur eða bara hvað nákvæmlega er í þessum smákökum.“ Þess vegna vill Berglind hvetja fólk til að hverfa Malín Brand malin@mbl.is Ást á mat er sannarlega einkennandi á heim-ili hjónanna Sigurðar Gíslasonar og Berg-lindar Sigmarsdóttur. Hann er mat-reiðslumeistari og hún hefur skrifað fjölda matreiðslubóka. Bók hennar Heilsuréttir fjölskuldunnar var met- sölubók og nú er komið út sjálfstætt framhald þeirrar bókar sem nefnist einfaldlega Nýir heilsuréttir fjöl- skyldunnar. „Mér fannst ég verða að halda áfram því það eru margir sem vilja breyta mataræðinu og rétt- irnir í þessum bókum eru ætlaðir allri fjöslyldunni,“ segir höfundurinn. Þau hjónin eiga fjögur börn á aldr- inum þriggja til þrettán ára og því veit hún mætavel hvað krökkum finnst gott og hvað ekki. Of mikill sykur dags daglega Í bókinni er, auk uppskrifta, að finna reynslusögur fimm barna sem foreldrar þeirra hafa skrifað. Börnin eiga það sammerkt að hafa glímt við vandamál á borð við ADHD og einhverfu. Breytt mataræði hefur verið lykillinn að betra lífi hjá börnunum. Þá eru óþolsvaldar á borð við kúamjólk, glútein og sykur teknir út úr mataræðinu og því bætt inn í sem vantar í mataræðið. Berglind er sannfærð um að sykur sé mjög slæm- ur fyrir heilsu fólks og að almennt sé sykurneysla allt of mikil. „Ég er ekki sammála því að sykurinn sé bara tómar hitaeiningar og ekkert meira en það. Ég held að hann valdi ýmsum vanda hjá okkur af því að við erum farin að taka hann inn í svo stórum skömmtum og ég held að það sé aðalvandamálið,“ segir Berglind. Börn og fullorðnir sem drekka gos- og ávaxta- drykki átta sig ekki alltaf á því hversu stóra syk- urskammta þau innbyrða í einu. Nartað í jólasmákökur í þrjá mánuði Berglind óskar nú eftir uppskriftum frá almenn- ingi að hollari smákökum, enda mikið borðað af þeim í aðdraganda jóla og ekki úr vegi að hugsa aðeins um hvað þær innihalda. Hún ætlar að veita verðlaun fyrir Hollari smákökur fyrir smáfólkið Óhjákvæmilegur fylgifiskur jólanna, ef svo má að orði komast, eru smákökurnar og þær eru nú mishollar. Berglind Sigmarsdóttir er höfundur bókanna um heilsu- rétti fjölskyldunnar. Hún þekkir vel hvernig gera má mat og líka smákökur mun hollari með því að gera sem flest sjálfur. Heimabakaðar smákökur þurfa ekki að vera óhollar og nú stendur yfir leitin að bestu hollu smákökuuppskriftinni. Margir segja að sykur sé af hinu illa og hann sé eins skaðlegur og eiturlyf. Hvað er hæft í því verður ekki fullyrt neitt um hér en ljóst er að til eru margar gerðir sykurs og ekki hægt að setja allt undir sama hatt. Á vefsíðunni www.sugar.org er að finna áhugaverða punkta um sykur og er um að gera að vera gagnrýninn í hugsun þegar slíkir punktar eru settir fram fyrir lesendur. Hér er saga sykurs rakin, ólíkar vinnsluaðferðir, ólíkur uppruni sykurs og nokkuð fjallað um önnur sætuefni. Hunang, síróp og fjölmargt fleira sætt á þessari síðu sem áhugavert er að skoða. Vefsíðan www.sugar.org Morgunblaðið/Ernir Sykur Ýmsar kreddur eru til um sykur. Vinsa þarf úr og vera gagnrýninn. Sætt frá náttúrunnar hendi Listahátíð ungs fólks verður nú hald- in í 22. sinn og er dagskráin afar fjöl- breytt venju samkvæmt. Markmið Unglistar er að hefja hina ýmsu menningarkima ungs fólks á Íslandi til vegs og virðingar. Dagskráin hefst með veglegum rokktónleikum í Tjarnarbíói klukkan 20 í kvöld. Fram koma ungsveitirnar RetRoBot, Kjurr, Aragrúi, Kælan Mikla og In The Company of Men. Á laugardagskvöldið munu nem- endur fataiðndeildar Tækniskólans sýna notuð föt sem þeir hafa end- urbætt og breytt „úr drasli í demant“ eins og þeir segja. Á sunnudag sýnir Ungleikur leik- verk í Tjarnarbíói og nemendur úr tónlistarskólum höfuðborgarsvæð- isins halda klassíska tónleika í Dóm- kirkjunni. Þetta og fjölmargt til við- bótar á Unglist 2013 sem stendur frá deginum í dag til 16. nóvember. Endilega … … mætið á Unglist 2013 Hátíð Ungir listamenn sýna víða. Fyrir fimmtíu árum fóru félagarnir Bjarni Stefánsson og Sverrir Sigfús- son til Gautaborgar til að skoða jap- önsk hljómflutningstæki sem sýnd voru um borð í stóru flutningaskipi. Á þessum tíma var fátt um fína drætti hvað „græjur“ varðaði og síð- ur en svo um auðugan garð að gresja. Sala á tækjum fór fram í gegnum við- tækjaverslun ríkisins og til þess að annast sölu á hljómflutningstækjum hvers konar þurfti sérstakt leyfi. „Maður gat ekki keypt tæki til end- ursölu öðruvísi en að fá þau í gegnum ríkið,“ segir Bjarni sem þá, árið 1963, var nýútskrifaður rafeindavirki. Þegar vinur hans sagði honum frá japanska vörusýningaskipinu sem var á leið til Svíþjóðar ákváðu þeir að láta hendur standa fram úr ermum, því þeir vildu jú að Íslendingar gætu hlustað á „músík“ í almennilegum gæðum án þess að viðtækjaverslun ríkisins þyrfti að stýra því hvers kyns var. Þegar út var komið var þeim Bjarna og Sverri boðið um borð í skipið þar sem tækjasýningin var. Þar var aragrúi af vörumerkjum og úr vöndu að ráða. „Maður var svolítið ráðvilltur þarna í sjálfu sér en það varð úr að ég gat komist í viðskipti við nokkur fyr- irtæki og af þeim leist mér best á Pioneer og ég held að ég hafi verið afar lánsamur í þeim efnum,“ segir Bjarni sem átti eftir að selja Pioneer- tækin í 33 ár á Íslandi, bæði hjá Karnabæ og síðar hjá Bræðrunum Ormsson. Þegar hann lítur til baka, alla leið til þess dags sem þeir félagar örkuðu um borð í japanskt skip í Svíþjóð og skoðuðu ótal hljómtæki, er hann sáttur við hvert það leiddi hann. Við- skiptin gengu vel og hann eignaðist verslanir og fór í viðskiptaferðir til Japans. Fyrstu hljómflutningstækin fyrir bíla sem bárust hingað til lands um árið 1970 voru einmitt þau sem Bjarni flutti inn. Í tilefni 50 ára af- mælis Pioneer á Íslandi mun Orms- son standa fyrir sérstökum Pioneer- degi á morgun í Skeifunni 11. Pioneer-hljómflutningstæki flutt til landsins fyrir 50 árum Sáttur Bjarni lítur glaður yfir árin 50. Tuttugu og tveggja ára hug- sjónamaður lagði land undir fót Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. CRONUT Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Frá Bandaríkjunum til Evrópu og nú hjá Reyni Bakara í Kópavoginum! CRONUT er snilldar blanda af Crossant og Donut. Nýbakaður og fylltur með vanillufyllingu Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.