Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Mikil aukning hefur orðið í íþrótta- iðkun nemenda í 5., 6. og 7. bekk á síðustu sex árum. Árið 2007 æfðu eða kepptu 29% stelpna fjórum sinnum í viku eða oftar með íþróttafélagi sínu en nú er hlutfallið 42%. Strákar æfa þó hlutfallslega meira, en 46% þeirra æfa eða keppa fjórum sinnum í viku eða oftar. Hlutfallið var 34% árið 2007. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum æskulýðsrann- sóknarinnar Ungt fólk 2013 sem voru kynntar í Nauthóli í gær. Könnunin var lögð fyrir nemendur í 5., 6. og 7. bekk í öllum grunnskól- um landsins í febrúar á þessu ári. Rannsóknarmiðstöðin Rannsóknir & greining framkvæmdi rannsóknina í samvinnu við mennta- og menning- armálaráðuneytið. Heilsurækt hefur jákvæð áhrif Fram kom í máli Hrefnu Pálsdótt- ur, sérfræðings hjá Rannsóknum & greiningum, að hlutfall þeirra sem taka aldrei þátt í skipulögðu íþrótta- starfi hafi farið lækkandi undanfarin ár en í dag segjast 13% aldrei taka þátt í slíku. Þetta hlutfall var yfir 20% fyrir sex árum. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við sálfræðisvið viðskiptadeildar Há- skólans í Reykjavík, sagði að rann- sóknir hefðu sýnt að íþróttaiðkun, hreyfing og heilsurækt hefði marg- vísleg jákvæð áhrif í lífi barna og ungmenna, ekki síst þátttaka þeirra í skipulögðu félags-, íþrótta- og tóm- stundastarfi. Þá hefði verið sýnt fram á að hreyfing og þjálfun lík- amans tengdist námsárangri með já- kvæðum hætti. Þegar skoðaður er samanburður á milli skólastiga má sjá að verulega dregur úr skipulagðri íþróttaiðkun eftir því sem nemendur eldast. „Þau toppa í 7. bekk en svo kemur frjálst fall,“ nefndi Hrefna. Í 7. bekk tekur 51% nemenda þátt í skipulögðu íþróttastarfi fjórum sinnum í viku eða oftar en hlutfallið er 25% hjá 17 ára krökkum. Hrefna sagði einnig að mjög hefði dregið úr stríðni meðal nemenda í 5.-7. bekk. Í niðurstöðunum kemur fram að um 88% nemenda í 7. bekk segist aldrei hafa strítt eða tekið þátt í því að stríða með öðrum. Hlutfallið var hins vegar 82% fyrir tveimur ár- um. Langflestir verða fyrir stríðni í frí- mínútunum á skólalóðinni. Sem dæmi upplifa 145 strákar í 5. bekk, eða 8,5%, stríðni í frímínútum stund- um eða oft. Þá vekur það athygli að eftir því sem nemendur eldast hækk- ar hlutfall þeirra sem verða fyrir stríðni á spjallrásum á netinu en 2,3% stelpna í 7. bekk hafa orðið fyr- ir slíku. Kynjamunur áberandi Um fjórðungur stráka í 5. bekk og 18% stelpna svara þannig að þau noti „enga“ klukkustund að jafnaði á dag til að lesa aðrar bækur en skólabæk- ur. Hlutfallið er á svipuðu reki þegar litið er til 6. og 7. bekkjar. Þá segja um 11% nemenda í 5. bekk, 16% nemenda í 6. bekk og 23% nemenda í 7. bekk að þeim finnist frekar eða mjög leiðinlegt að lesa bækur. Kynjamunur er áberandi, að því er fram kom í máli Ingu Dóru. Virðist sem svo að strákum finnist leiðin- legra að lesa bækur en stelpum. Eins virðist slíkur leiði aukast eftir því sem þau verða eldri og á það við um bæði kynin. Hrefna sagði að niðurstöðurnar væru, í heildina litið, mjög góðar. „Þessi aldur er þó afar viðkvæmur og er því mikilvægt að hlúa vel að börnunum, vera vakandi og grípa inn í þar sem skóinn kreppir.“ Hins veg- ar sé það aldrei of oft nefnt að sam- verutími, aðhald og eftirlit foreldra hafi verndandi gildi í forvörnum. Fleiri börn stunda íþróttir en áður  Niðurstöður æskulýðsrannsóknarinnar Ungt fólk 2013 voru kynntar í gær  Mjög hefur dregið úr stríðni meðal nemenda í 5.-7. bekk  Strákum finnst að jafnaði leiðinlegra að lesa bækur en stelpum Hlutfall stráka og stelpna í 5., 6. og 7. bekk sem æfa eða keppa með íþróttafélagi (4 sinnum í viku eða oftar) Hlutfall stráka og stelpna í 5., 6. og 7. bekk sem finnst leiðinlegt að lesa bækur Heimild: Rannsóknir & Greining Strákar Stelpur 50% 40% 30% 20% 10% 0% 34 36 40 46 29 29 32 42 2007 2009 2011 2013 Strákar Stelpur Heild 50% 40% 30% 20% 10% 0% 5. bekkur 6. bekkur 7. bekkur 15% 19% 26% 8% 13% 20% 11% 16% 23% Erfitt með svefn » Nokkuð hátt hlutfall nem- enda í 5.-7. bekk segist eiga erfitt með að sofa eða sofna, hefur litla matarlyst og hefur stundum eða oft fundið fyrir höfuð- og magaverk. » „Þetta eru ansi háar tölur miðað við hvað ungir krakkar eiga í hlut,“ sagði Hrefna. » Þó hefur dregið úr vanlíðan barna undanfarin ár. Eldhúsborð og stólar Íslensk hönnun í gæðaflokki Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is • Útsölustaðir: Bústoð Keflavík, Bjarg Akranesi • www.facebook.com/solohusgogn Máni Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti og harðplastlagðri plötu. Stærð og litur að eigin vali. Verð frá kr. 85.000 E60 stóll, verð frá kr 24.300 Hönnunarverðlaun 2013 (húsgagnaflokki) Hönnuður: Sturla Már Jónsson Aria Nýja Aría borðalínan fékk Hönnunarverðlaun FHI 2013 í húsgagnaflokki. Borðin eru fáanleg í mismunandi stærðum og útfærslum. Verð frá kr. 91.000 Almar stóll, verð frá kr 34.000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.