Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 25

Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Genf. AFP. | Talið er að eiturefna- mengun ógni heilsu meira en 200 milljóna manna í heiminum, ef marka má nýja skýrslu tveggja umhverfis- verndarstofnana sem birtu lista yfir menguðustu staði í heiminum. Á meðal þeirra er svæði í Gana þar sem notuð rafeindatæki frá Evrópu eru endurunnin. „Við áætlum að heilsu meira en 200 milljóna manna stafi hætta af mengun í þróunarlöndum,“ sagði Richard Fuller, forstöðumaður um- hverfisverndarstofnunarinnar Black- smith Institute í Bandaríkjunum. Blacksmith-stofnunin og Græni krossinn í Svisslandi hafa birt nýjan lista yfir tíu menguðustu staði í heim- inum og hann er sá fyrsti sem stofn- anirnar tvær gefa út frá árinu 2007. Listinn byggist á rúmlega 2.000 skýrslum um hættu sem stafar af eiturefnum á menguðum svæðum í 49 löndum. Á meðal staða sem eru nú í fyrsta skipti á listanum er Agbogbloshie í Gana þar sem notuð rafeindatæki eru endurunnin. Agbogbloshie er í grennd við Accra, höfuðborg Gana. Ár hvert eru um 215.000 tonn af notuðum rafeindatækjum flutt inn til Gana, aðallega frá Vestur-Evrópu. Áætlað er að innflutningurinn tvö- faldist innan sjö ára. Heilsu íbúanna í grennd við endur- vinnslustöðvarnar stafar einkum hætta af brennslu slíðurkapla til að endurvinna kopar. Skýrsluhöfund- arnir benda á að ýmsir þungmálmar, meðal annars blý, geta verið í köpl- unum. Rannsóknir á sýnum úr jarð- vegi í grennd við endurvinnslustöðv- arnar leiddu í ljós að blýmagnið í þeim var 45 sinnum meira en við- unandi getur talist samkvæmt reglum um mengunarvarnir. „Raftækjaúrgangur verður sér- lega erfitt úrlausnarefni. Hann margfaldast. Allir vilja borðtölvu, fartölvu, nýjustu græjur, þannig að ég tel að við sjáum aðeins toppinn á ísjakanum,“ sagði Jack Caravanos, sem stjórnar rannsóknum Black- smith-stofnunarinnar. Drekka vatn blandað blýi Á meðal annarra staða sem eru nú í fyrsta skipti á listanum er vatna- svæði árinnar Citarum á Vestur- Jövu í Indónesíu. Á svæðinu búa um níu milljónir manna en þar eru einnig um það bil 2.000 verksmiðjur. Áin sér íbúunum fyrir drykkjar- vatni og hrísgrjónabúum fyrir áveituvatni, en í henni hefur fundist mikið magn af áli, mangan og fleiri efnum. Rannsóknir á drykkjarvatn- inu úr ánni hafa leitt í ljós að blý- magnið er meira en þúsund sinnum meira en viðunandi getur talist sam- kvæmt bandarískum mengunar- varnareglum. Öðru svæði í Indónesíu, Kalim- antan á Borneó-eyju, var bætt á listann vegna mengunar sem rakin er til gullgraftar. Margir gullgraf- arar á svæðinu nota kvikasilfur til að vinna gull úr bergi og kvikasilfurs- mengunin í heiminum er að miklu leyti rakin til þeirra, að sögn skýrslu- höfundanna. Á listanum er einnig Hazaribagh, borg í Bangladess þar sem flestar af 270 sútunarstöðvum landsins eru reknar. Dag hvern dæla sútunar- stöðvarnar í borginni um 22.000 lítr- um af úrgangi í Buriganga, stærstu á Dhaka, höfuðborgar landsins. Vatn úr ánni er notað til drykkjar þótt í því hafi fundist hættuleg efni, meðal annars efni sem geta valdið krabba- meini. Óseyri Nígerár í Nígeríu og vatna- svæði árinnar Matanza-Riachuelo var einnig bætt á listann. Tvö iðnaðarsvæði í Rússlandi, Tsjernobyl í Úkraínu og blýnámu- borgin Kabwe í Sambíu, eru talin á meðal tíu menguðustu staða heims- ins og voru einnig á listanum árið 2007. Nokkrir staðir í Kína og á Ind- landi voru þá á listanum en eru þar ekki lengur vegna hreinsunarstarfs sem hefur borið tiltölulega góðan ár- angur, að sögn skýrsluhöfundanna. Heimildir: Græni krossinn í Sviss, Blacksmith Institute Menguðustu staðir í heiminum ÚKRAÍNA Tsjernobyl Citarum-á Dzerzhinsk Verksmiðjur Efnaverksmiðjur Meira en 160.000 Meira en 300.000 Hazaribagh Kabwe SAMBÍA BANGLADESS Kalimantan Matanza-Riachuelo Óseyri Nígerár INDÓNESÍA ARGENTÍNA NÍGERÍA RÚSSLAND Gullnámur Iðnaðarsvæði Meira en 225.000 Meira en 20.000 Fjöldi óljós Sútunarstöðvar Námur Allt að 10 milljónir Meira en 500.000 (skaða allt að fimmmilljónir manna með óbeinum hætti) 300.000 Áætlaður fjöldi fólks semmengunin skaðar Norilsk 135.000 Þungmálmaverksmiðjur GANA Agbogbloshie Rafeindabúnaður endurunninn Meira en 40.000 Olíuvinnslusvæði Tíu menguðustu staðirnir Kjarnorkuver AFP Mengunarbæli Verkamenn við sútunarstöð í Hazaribagh í Bangladess.  Nýr listi yfir tíu helstu mengunar- bæli í heiminum Mengun talin ógna heilsu meira en 200 milljóna manna Lopi 33 Sjá sölustaði á istex.is bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.