Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013
Genf. AFP. | Talið er að eiturefna-
mengun ógni heilsu meira en 200
milljóna manna í heiminum, ef marka
má nýja skýrslu tveggja umhverfis-
verndarstofnana sem birtu lista yfir
menguðustu staði í heiminum. Á
meðal þeirra er svæði í Gana þar sem
notuð rafeindatæki frá Evrópu eru
endurunnin.
„Við áætlum að heilsu meira en
200 milljóna manna stafi hætta af
mengun í þróunarlöndum,“ sagði
Richard Fuller, forstöðumaður um-
hverfisverndarstofnunarinnar Black-
smith Institute í Bandaríkjunum.
Blacksmith-stofnunin og Græni
krossinn í Svisslandi hafa birt nýjan
lista yfir tíu menguðustu staði í heim-
inum og hann er sá fyrsti sem stofn-
anirnar tvær gefa út frá árinu 2007.
Listinn byggist á rúmlega 2.000
skýrslum um hættu sem stafar af
eiturefnum á menguðum svæðum í
49 löndum.
Á meðal staða sem eru nú í fyrsta
skipti á listanum er Agbogbloshie í
Gana þar sem notuð rafeindatæki
eru endurunnin. Agbogbloshie er í
grennd við Accra, höfuðborg Gana.
Ár hvert eru um 215.000 tonn af
notuðum rafeindatækjum flutt inn til
Gana, aðallega frá Vestur-Evrópu.
Áætlað er að innflutningurinn tvö-
faldist innan sjö ára.
Heilsu íbúanna í grennd við endur-
vinnslustöðvarnar stafar einkum
hætta af brennslu slíðurkapla til að
endurvinna kopar. Skýrsluhöfund-
arnir benda á að ýmsir þungmálmar,
meðal annars blý, geta verið í köpl-
unum. Rannsóknir á sýnum úr jarð-
vegi í grennd við endurvinnslustöðv-
arnar leiddu í ljós að blýmagnið í
þeim var 45 sinnum meira en við-
unandi getur talist samkvæmt
reglum um mengunarvarnir.
„Raftækjaúrgangur verður sér-
lega erfitt úrlausnarefni. Hann
margfaldast. Allir vilja borðtölvu,
fartölvu, nýjustu græjur, þannig að
ég tel að við sjáum aðeins toppinn á
ísjakanum,“ sagði Jack Caravanos,
sem stjórnar rannsóknum Black-
smith-stofnunarinnar.
Drekka vatn blandað blýi
Á meðal annarra staða sem eru nú
í fyrsta skipti á listanum er vatna-
svæði árinnar Citarum á Vestur-
Jövu í Indónesíu. Á svæðinu búa um
níu milljónir manna en þar eru einnig
um það bil 2.000 verksmiðjur.
Áin sér íbúunum fyrir drykkjar-
vatni og hrísgrjónabúum fyrir
áveituvatni, en í henni hefur fundist
mikið magn af áli, mangan og fleiri
efnum. Rannsóknir á drykkjarvatn-
inu úr ánni hafa leitt í ljós að blý-
magnið er meira en þúsund sinnum
meira en viðunandi getur talist sam-
kvæmt bandarískum mengunar-
varnareglum.
Öðru svæði í Indónesíu, Kalim-
antan á Borneó-eyju, var bætt á
listann vegna mengunar sem rakin
er til gullgraftar. Margir gullgraf-
arar á svæðinu nota kvikasilfur til að
vinna gull úr bergi og kvikasilfurs-
mengunin í heiminum er að miklu
leyti rakin til þeirra, að sögn skýrslu-
höfundanna.
Á listanum er einnig Hazaribagh,
borg í Bangladess þar sem flestar af
270 sútunarstöðvum landsins eru
reknar. Dag hvern dæla sútunar-
stöðvarnar í borginni um 22.000 lítr-
um af úrgangi í Buriganga, stærstu á
Dhaka, höfuðborgar landsins. Vatn
úr ánni er notað til drykkjar þótt í því
hafi fundist hættuleg efni, meðal
annars efni sem geta valdið krabba-
meini.
Óseyri Nígerár í Nígeríu og vatna-
svæði árinnar Matanza-Riachuelo
var einnig bætt á listann.
Tvö iðnaðarsvæði í Rússlandi,
Tsjernobyl í Úkraínu og blýnámu-
borgin Kabwe í Sambíu, eru talin á
meðal tíu menguðustu staða heims-
ins og voru einnig á listanum árið
2007. Nokkrir staðir í Kína og á Ind-
landi voru þá á listanum en eru þar
ekki lengur vegna hreinsunarstarfs
sem hefur borið tiltölulega góðan ár-
angur, að sögn skýrsluhöfundanna.
Heimildir: Græni krossinn í Sviss, Blacksmith Institute
Menguðustu staðir í heiminum
ÚKRAÍNA
Tsjernobyl
Citarum-á
Dzerzhinsk
Verksmiðjur
Efnaverksmiðjur
Meira en
160.000
Meira en
300.000
Hazaribagh
Kabwe
SAMBÍA
BANGLADESS
Kalimantan
Matanza-Riachuelo
Óseyri Nígerár
INDÓNESÍA
ARGENTÍNA
NÍGERÍA
RÚSSLAND
Gullnámur
Iðnaðarsvæði
Meira en 225.000
Meira en 20.000
Fjöldi óljós
Sútunarstöðvar
Námur
Allt að 10
milljónir
Meira en 500.000
(skaða allt að fimmmilljónir
manna með óbeinum hætti)
300.000
Áætlaður fjöldi fólks semmengunin skaðar
Norilsk
135.000
Þungmálmaverksmiðjur
GANA
Agbogbloshie
Rafeindabúnaður endurunninn
Meira en 40.000
Olíuvinnslusvæði
Tíu menguðustu staðirnir
Kjarnorkuver
AFP
Mengunarbæli Verkamenn við sútunarstöð í Hazaribagh í Bangladess.
Nýr listi yfir tíu
helstu mengunar-
bæli í heiminum
Mengun talin ógna heilsu
meira en 200 milljóna manna
Lopi 33
Sjá sölustaði á istex.is
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís