Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Hagfræði er ung, en orðin fyrirferð- armikil grein. Eft- ir því sem flækju- stig efnahags- lífsins vex eykst mikilvægi greinarinnar. Þessi vísindagrein gerir ekki kröfur til þess, fremur en ýmsar aðr- ar, að flokkast að öllu leyti undir nákvæmnisvísindi, en það dregur þó ekki endilega úr mikilvægi hennar, enda hlýtur hún að styðjast að miklu leyti við slík vísindi. Hagfræðilegar kenningar hafa hins vegar gríðarmikil áhrif í veröldinni og eftir at- vikum til bæði góðs og ills. Og stundum sveiflast heimurinn eins og pendúll á milli slíkra kenninga og minnir það mest á tískusveiflur. Sá mikli hagfræðijöfur John Maynard Keynes átti sviðið upp úr miðri síðustu öld og efnahagsforskriftin sem Roosevelt Bandaríkjaforseti fylgdi, til þess að komast út úr heimskreppu, var þeirrar gerðar, þótt Keynes verði ekki skrifaður persónulega fyrir henni. Þegar nokkuð var liðið á seinni hluta síðustu aldar fluttist hinn efnahagslegi stórisannleikur í átt til Friedrichs von Hayek og að nokkru Miltons Friedman, ekki síst með valdaskeiði Margr- etar Thatcher og Ronalds Reagan og raunar eftir- manna þeirra af báðum vængjum stjórnmál- anna. Eftir þann mikla afturkipp sem varð í efnahagsmálum frá og með árunum 2007 og 2008 hefur hróður Keynes vaxið á ný. En aðstæður fyrir rétt- mæti eða útfærslur hinna and- stæðu kenninga eru ekki endi- lega alls staðar hinar sömu. Grikkland og Spánn, með yfir 25% atvinnuleysi, eru ekki á róli með Íslandi, sem býr við allt annað og betra atvinnu- stig. Þess vegna var Bjarni Benediktson fjármálaráðherra algjörlega á réttu róli þegar hann svaraði aðspurður svo á Alþingi 6. þessa mánaðar: „Það er vissulega mikilvægt að halda uppi fjárfestingastigi hins opinbera á samdráttar- tímum sem þessum en það er enn mikilvægara að skapa skilyrði fyrir almenna atvinnu- vegafjárfestingu. Mér finnst að í umræðu um fjárfestinga- áætlun fyrri ríkisstjórnar hafi verið um of lögð áhersla á þátt hins opinbera í því að halda uppi fjárfestingu með beinum fjárframlögum sem þurfti að fjármagna í gegnum fjárlög.“ Kenningarnar þurfa að falla í réttan farveg} Rétt afstaða Þess verðurminnst í Þýskalandi um helgina að 9. og 10. nóvember eru 75 ár liðin frá krist- alsnóttinni þegar nasistabullur létu til skarar skríða gegn gyð- ingum, rændu verslanir þeirra, kveiktu í bænahúsum og söfn- uðu saman 30 þúsund körlum úr þeirra röðum og sendu í fangabúðir. Hingað til hefur verið talið að banatilræði Herschels Grynszpans, 17 ára unglings, sem var fullur reiði yfir því að foreldrar hans höfðu verið sendir í fangabúðir, við þýska sendierindrekann Ernst vom Rath í þýska sendiráðinu í Par- ís hafi verið átylla nasista til að gera árás á gyðinga í Þýska- landi. Í nýrri bók rannsókn- arblaðamannsins Armins Fu- hrer eru líkur leiddar að því að sennilega hefði erindrekinn lif- að tilræðið af hefði Adolf Hitler ekki sent líflækni sinn til Par- ísar til að tryggja að vom Rath fengi enga aðhlynningu og léti lífið. Vom Rath var nasistum einskis virði lifandi, en látinn gaf hann tilefni til að blása til atlögu. Aðfarir þýskra nasista vöktu óhug. Þýska utan- ríkisráðuneytið bað 48 ríki, sem voru með sendiráð í Berlín 1938, um að láta af hendi gögn um kristalsnóttina. Afrakst- urinn verður til sýnis í Berlín. Þar er að finna óhugnanlegar lýsingar sendiherra og dipló- mata á atburðum þessara daga, sem eru upphaf skipulagðra of- sókna Þjóðverja á hendur gyð- ingum. Í bresku gögnunum er talað um „miðaldavilli- mennsku“ og brasilískum um „viðurstyggilegt sjónarspil“. Nánast einróma fordæma er- indrekarnir ofsóknirnar, en það hafði engin áhrif á samskipti ríkjanna fyrir utan það að Bandaríkjamenn kölluðu sendi- herra sinn heim. Ekki opnuðu þau heldur landamæri sín fyrir ofsóttum gyðingum, þótt mark- mið nasista hafi á þessum tíma frekar verið að hrekja þá burt en að myrða þá. Þetta kann að hljóma grimmilega og auðvelt að for- dæma athafnaleysi umheims- ins. En hefur eitthvað breyst? Enn er fólk víða ofsótt og kúg- að og ríki heims halda að sér höndum þótt allar upplýsingar liggi fyrir. Mörg ríki vissu hvernig ástandið var en brugðust ekki við } Ofsókna nasista minnst S ú ákvörðun forystu Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs að leggja blessun sína yfir umsókn um inngöngu í Evrópusambandið eftir þingkosningarnar 2009 reyndist flokknum dýrkeypt eins og flestir þekkja. Flokkurinn logaði stafna á milli meira eða minna allt síðasta kjörtímabil og stór hluti þingflokks hans hvarf á braut ekki sízt vegna þeirrar ákvörðunar og þess sem á eftir fylgdi. Kjörtímabilinu lauk síðan með stórfelldu fylg- istapi VG jafnvel þó miðað sé við kosning- arnar 2007 en ekki 2009. Um tíma virtist jafn- vel mögulegt að flokkurinn þurrkaðist nánast eða alfarið út af þingi en á endanum var því bjargað sem bjargað varð með því að skipta um formann. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi for- maður VG, hefur nú gefið út bók þar sem meðal annars er fjallað um það hvernig umsóknin um inngöngu í Evr- ópusambandið kom til. Þar hafnar hann því meðal ann- ars að staðið hafi verið að málinu í andstöðu við stefnu flokksins. Með öðrum orðum að unnið hafi verið að mál- inu af síðustu ríkisstjórn í samræmi við hana. Eðlilega hlýtur þá meðal annars að vakna sú spurning hvers vegna hafi þá þurft sérstakar viðræður við Samfylk- inguna um þessi mál eftir kosningar þar sem ítrekað var haft eftir forystumönnum vinstriflokkanna tveggja að óbrúuð gjá væri á milli flokkanna í þessum efnum enda stefna þeirra á öndverðum meiði. Eins vaknar sú spurning hvers vegna VG hafi á endanum þurft að gera „erfiða mála- miðlun“ vegna málsins, eins og Steingrímur orðaði það meðal annars á Alþingi 10. júlí 2009, ef niðurstaða málsins var í samræmi við stefnu flokksins. Sú málamiðlun fólst í því að Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkis- ráðherra, lagði fram þingsályktunartillögu um að sótt yrði um inngöngu í Evrópusam- bandið en ekki formlega í nafni ríkisstjórn- arinnar. Hvers vegna þurfti slíkt fyrirkomu- lag ef framhald málsins eins og það síðan varð var í samræmi við stefnu VG? Hver var þá tilgangurinn með því? Vitanlega var ástæðan sú að stefna flokksins heimilaði alls ekki slíka umsókn. Því þurfti krókaleiðir. Steingrímur lét þess ennfremur getið í áð- urnefndri ræðu á Alþingi að ríkisstjórnin með Samfylkingunni hefði ekki verið mynduð án þessarar málamiðlunar. Þar stendur hnífurinn vitanlega í kúnni, nokkuð sem ítrekað hefur komið fram og alltaf legið fyr- ir. Tilgangurinn var fyrst og síðast að tryggja áfram- haldandi ríkisstjórnarsamstarf vinstriflokkanna. And- stöðu VG við inngöngu í Evrópusambandið var einfald- lega fórnað í þágu þess, enda sagði Steingrímur í títt- nefndri ræðu sinni að sumir myndu kalla málamiðlunina við Samfylkinguna fórn. Væntanlega hefur hann sann- fært sjálfan sig um að nauðsynlegt væri að færa þá fórn fyrir ráðherrastólana. En það voru bara ekki allir reiðu- búnir til þess. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Steingrímur og ESB-umsóknin STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Öryggi notenda vefsíðnaundir íslenska höfuðléninu.is kemur til með aðaukast á næstu misserum en Internet á Íslandi hf. (ISNIC) hefur nú virkjað svonefnd DNSSEC-öryggiskerfi. Að sögn Jens Péturs Jensen, framkvæmda- stjóra ISNIC, verða væntanlega all- ar síður með viðkvæmt efni á borð við banka, tryggingafélög og heil- brigðisstofnanir komnar með kerfið á næstu mánuðum og árum. Í einfölduðu máli tryggir DNSSEC-kerfið að þegar netnot- andi slær inn slóð vefsíðu þá fái hann upp síðu frá réttmætum eiganda hennar. Brögð eru að því að óprúttn- ir aðilar trufli leitarferli að vefsíðu þannig að í stað þess að birta raun- verulegu síðuna komi upp síða sem líti jafnvel nákvæmlega eins út og sú rétta, sem þeir stjórna þá. Tilgang- urinn er yfirleitt að komast yfir not- endanöfn, lykilorð og kortanúmer fólks, til dæmis í heimabanka, vef- verslunum eða öðru í þeim dúr. Jens segir að DNSSEC-kerfið sé í raun næsta kynslóð öryggiskerfa fyrir lén og notendur muni ekki taka eftir breytingunni. Hann segist ekki þekkja til þess að íslensk lén hafi verið sérstök skotmörk fyrir vef- þrjóta en það geti þó breyst. ISNIC býður þjónustuna ókeypis til þess að breiða kerfið út sem hraðast og var það virkjað á fyrstu .is-lénunum fyrr í vikunni. Þjált og mikið laust Lén undir .is-höfuðléninu eru nú rétt rúmlega 46 þúsund talsins og segir Jens að það sé það langminnsta sem hafi tekið upp DNSSEC- öryggiskerfið. Af þeim eru um ellefu þúsund rétthafa með aðsetur erlend- is, eða tæpur fjórðungur allra rétt- hafa .is-léna. Flestir þeirra eru í Bandaríkjunum, rúmlega 3.500. Jens segir þetta ekki nýja þróun því erlendir aðilar hafi átt .is-lén nánast frá upphafi. ISNIC hafi þó enga sérstaka greiningu á hvers kon- ar aðilar eigi lénin erlendis. Hann hefur þó ýmsar getgátur um hvers vegna útlendingar sækist eftir .is- lénum. „Punktur is svæðið er nánast óskrifað og það er svo mikið laust af góðum heitum undir því,“ segir Jens. Þá nefni menn að það sé öruggt og ekki spilli fyrir að endingin sjálf sé svo þjál að hægt sé að lesa hana og búa til orð með henni. Til dæmis nefnir Jens bandarískan mann að nafni Willis sem eigi lénið will.is. Auk þess gæti verið að menn telji að réttindi séu betur tryggð með .is-léni en t.d. .com. Skilar sér til Íslendinga Þessi kaup erlendra aðila á .is- lénum skila Íslendingum gjaldeyr- istekjum að sögn Jens en um fjórð- ungur tekna ISNIC kemur af út- flutningi. Þær nemi tæpum 57 milljónum króna það sem af er ári. Lénum undir .is-höfuðléninu fjölgar um um það bil 10% á ári og segir Jens að vöxturinn sé mestur hjá erlendum rétthöfum. Þetta komi íslenskum rétthöfum til góða. „Ég get fullyrt að ef það hefði ekki komið til útflutnings þá hefðum við ekki getað lækk- að árgjald léna og fellt niður stofngjaldið sem við gerðum fyrir nokkrum árum,“ segir Jens sem telur vaxtar- möguleika höfuðlénsins gríð- arlega. Ekkert sé því til fyrirstöðu að milljón .is-lén gætu heyrt undir það í framtíð- inni. Útlendingar eiga fjórðung allra .is-léna Heimild: ISNIC Ísland 35.037 Bandaríkin 3.576 Þýskaland 1.243 Bretland 985 Noregur 845 Svíþjóð 514 Danmörk 498 Annað* 2.479 *Önnur lönd: Sviss: 354, Holland: 347, Kanada: 306, Frakkland: 275, Ástralía: 216, Finnland: 170, Spánn: 152, Austurríki: 142, Belgía: 134, Ítalía: 121, Brasilía: 106, Rússland: 104, S-Kórea: 52 Rétthafar .is-léna eftir aðsetri 76% 24% Fyrsta deilumálið um .is-lén á milli erlendra aðila var tekið fyrir hjá óháðri úrskurð- arnefnd á vegum ISNIC nú í október. Þar hafði erlendur aðili skráð lénið zoet.is og boðið bandaríska dýraheilsu- fyrirtækinu Zoetis það til sölu. Fyrirtækið gerði þá kröfu um að lénið væri umskráð til þess á þeirri forsendu að það ætti vörumerkið Zoetis hér á landi. Úrskurðarnefndin féllst ekki á þá kröfu þar sem lénið hefði ekki verið sam- hljóða vörumerkinu. Ekki væri hægt að telja höf- uðlénið hluta af léninu. Stjórn ISNIC skipar nefndarmennina þrjá. Guðmundur Ragnar Guð- mundsson, Tryggvi Þór- hallsson og Erla S. Árnadóttir sitja í nefndinni. Erlendir aðilar deila ÚRSKURÐARNEFND Jens Pétur Jensen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.