Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Smáauglýsingar Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi NÝKOMIÐ - Leðurskór Litir: Svart, vínrautt. St. 37-42. Sími 588 8050. - vertu vinur                    !   Silki silki silki Pasmínur í 12 litum úr silki og ull. Verð kr. 2.900. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. FERLEGA FLOTTIR PUSH UP Teg. LIDIA - push up á kr. 6.850, buxur við kr. 2.680. Teg. AURORA - push up á kr. 6.850, buxur við á kr. 2.680. Teg. AIDA - push up á kr. 6.850, buxur við á kr. 2.680. Teg. ROKSANA - push up á kr. 6.850, buxur við á kr. 2.680. Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18. Opið á lau. 10-14. Þú mætir - við mælum og aðstoðum. www.misty.is - vertu vinur Teg. 99504 Mjúkir og vandaðir dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir. Vatnsheldur sóli. Stærðir: 36-40. Verð: 16.500. Teg. 1001 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36-42. Verð: 16.500. Teg. 99405 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Vatnsheldur sóli. Stærðir: 36-42. Verð: 16.700. Teg. 8783 Vandaðir dömuskór úr leðri, fóðraðir. Vatnsheldur sóli. Stærðir: 36-40. Verð: 18.700. Teg. 804502 Sérlega vandaðir dömuskór úr mjúku leðri og gæruskinnsfóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36-42. Verð: 23.750. Teg. 802501 Sérlega vandaðir dömuskór úr mjúku leðri og gæruskinnsfóðraðir. Góður sóli. Stærðir: 36-42. Verð: 24.750. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán. - fös. 10 - 18, laugardaga 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Bíldudalur er lítill fallegur dalur við lygnan vog í Arnar- firði. Á Bíldudals- eyri var löngum lög- giltur verslunarstaður. Á síðari hluta nítjándu aldar urðu miklar breytingar og á Eyrinni reis heilt þorp upp úr jörðu á undraskömmum tíma. Hvellurinn sem fylgdi þess- um umbyltingum var svo mikill að hann heyrðist um allt land og til Bíldudals flykktist fólk alls staðar að sem vildi taka til hend- inni í þeirri viðleitni að afla sér og sínum betra viðurværis. Menn- ingin blómstraði í þorpinu og strax fyrir aldamót var búið að setja upp nokkrar leiksýningar í Bryggjuhúsinu og þar á meðal Skugga-Svein sem hefur verið leikin fjórum sinnum á Bíldudal. Til marks um þessa viðleitni til menningarlífs má segja frá því að leiktjöld voru send suður til Reykjavíkur að styðja við nýtt leikfélag sem þar hafði verið stofnað. Það kallaðist Leikfélag Reykjavíkur. Þann 8. nóvember 1913 fædd- ist á Bíldudal sveinbarn sem hlaut nafnið Bjarni Þórarinn. Foreldrar hans, Jónfríður Bjarnadóttir og Valdimar Bjarnason, stóðu eins og margir á þeim tíma með annan fótinn í hinu forna bændasamfélagi en hinn í nýfenginni kaupstaða- menningu. Bjarni var elstur níu systkina og að auki ólu foreldrar hans upp barn föðurbróður hans svo alls voru börnin tíu. Fjöl- skyldan bjó í Sælundi á Bíldudal. Tvær ungar manneskjur eru á leiðinni ofan í Sælund í heimsókn með móður sinni. Þau eru bæði spennt og hlakka til. Ekki veitir heldur af upplyftingunni því nokkru áður höfðu þau misst föð- ur sinn í hörmulegu sjóslysi. Í Sælund var gaman að koma. Þar var spilað, leikið á ýmis hljóðfæri Bjarni Valdimarsson og sungið og hús- bóndinn var annál- aður fyrir frásagn- arlist sína. Bjarni var auðvitað þar og lagði sitt af mörkum ásamt systkinum sínum. Um þrítugt fer Bjarni til Akureyr- ar. Þar var starfandi húsamálari, Haukur Stefánsson, en hann hafði numið málaralist við lista- skóla í Chicago. Bjarni nemur listmálun hjá honum og heim- kominn til Bíldudals eftir nokkur ár á Akureyri fetar Bjarni í fót- spor hans. Hann gerist húsamál- ari og listmálari í frístundum, teiknaði og málaði með olíu- og vatnslitum, gerði veggmálverk í hýbýlum fólks og varð fljótlega leiktjaldamálari staðarins. En á Bíldudal var oft ekki vinnu við húsamálun að hafa og þá var um fátt annað að ræða en bregða sér í fiskistíurnar í frystihúsinu og oftar en ekki vann Bjarni þar. En þau voru ófá leiktjöldin og leik- munirnir sem Bjarni málaði og skipti þá engu hvort það voru fullorðnir sem voru að sviðsetja eða börnin. Einnig smíðaði hann smáhluti úr tré og brenndi og málaði, smíðaði litlar skútur og kúttera og svo klippti hann hár karla og drengja. En mestan áhuga hafði hann á málara- listinni. Opinberlega má sjá tvö verk Bjarna á Bíldudal, annað er stórt olíumálverk í anddyri fé- lagsheimilisins Baldurs af þorp- inu og nánasta umhverfi þess. Bjarni gaf félagsheimilinu það í kjölfar endurreisnar eftir bruna sem þar varð. Hitt er veggmál- verk í forkirkju Bíldudalskirkju yfir innganginum í kirkjuskipið, bogadregið að ofan, sýnir tré til hvorrar handar og leiðir áhorf- andann áfram inn í kirkjuskipið. Í þessum tveim verkum Bjarna má segja að sjá megi það sem skipti marga miklu máli; heimahagana upphafna og vísun til einhvers sem er æðra og ofar manninum. Á þessum tíma gengu margir karlmenn með sixpensara fyrir höfuðfat, sumir voru jafnvel með kaskeiti og einhverjir áttu hatta en ekkert af þessu hentaði Bjarna. Hann valdi sér baska- húfu fyrir höfuðfat og fóru gár- ungarnir upp frá því að kalla hann Senjorinn. Eftir að Bjarni kom aftur til Bíldudals frá Akureyri bjó hann í Sælundi hjá foreldrum sínum en fékk lítið steinhús við höfnina undir vinnustofu. Húsið kallaði hann Dimmalimm eftir ævintýri Muggs. Þar vann hann fyrst um sinn að list sinni en síðar færði hann vinnustofuna yfir í lítið hús sem nefndist Sæból og stóð skammt frá Sælundi. Húsið nefndi hann uppá nýtt eftir höf- uðborg málaralistarinnar. Sauð- svartur almúginn kunni hins veg- ar ekki réttan framburð svo húsið var í daglegu tali kallað París. Hirðskáld Bílddælinga og góð- vinur Bjarna, Hafliði Magnússon, eða Skáldið eins og hann var oft nefndur, tók að sér að kenna al- múganum réttan framburð og í frægum brag sem hann samdi um Bjarna rímaði hann saman lista- mannaskapið sem Senjorinn „vanalega var í“ við hið nýja heiti hússins. Seinna átti Skáldið reyndar eftir að setja saman nó- vellu um listug ævintýri sín og Senjorsins og fleiri skrautlegra karaktera á Bíldudal. Það er erfitt að sjá að það hafi verið mikið annað en áhuginn sem dró Bjarna að málaralistinni. Ungur maður úr barnmargri verkamannafjölskyldu gat varla átt von á miklum stuðningi við þá hugmynd að leggja málaralist fyrir sig. Á Akureyri hefur hon- um gefist tækifæri til að læra eitthvað í málaralist, tækifæri sem hann hefur sjálfsagt gripið fegins hendi. Bjarni lést á Bíldu- dal þann 2. júlí 1972, 58 ára gam- all, og er hans sárt saknað af mörgum. Helgi Hjálmtýsson og Jón Kr. Ólafsson, söngvari, Bíldudal. Aldarminning ✝ Haukur Jóns-son fæddist á Haugum í Skriðdal 24. apríl 1947. Hann lést á heimili sínu 27. október 2013. Hann var sonur hjónanna Bergþóru Stefánsdóttur frá Mýrum í Skriðdal og Jóns Hrólfs- sonar frá Hall- bjarnarstöðum í Skriðdal. Haukur ólst upp á Haugum ásamt sex systkinum, þau eru: Þorgerður búsett á Seyðisfirði, Ingifinna, b. á Hvanná í Jökuldal, Sigrún, b. í Noregi, Jóna Björg, b. í Kópa- vogi, Stefán, b. á Haugum og Freyr, b. í Reykjavík. Haukur stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan sem búfræð- ingur árið 1967. Haukur stund- aði búskap á Haugum allt til árs- ins 1988, en þurfti þá að láta af störfum vegna veikinda. Árið 1994 slitu Haukur og Anna sam- vistir og flutti þá Haukur til Eg- ilsstaða. Þar var hann m.a. starfsmaður hjá Kaupfélagi Héraðsbúa og Fóðurblöndunni. Haukur hætti að vinna árið 2011 en nýtti sér dagvistarúrræði í Hlymsdölum á Egilsstöðum til dauðadags. Sambýliskona Hauks síðustu 19 ár ævi hans var Ragnhildur Þórhallsdóttir frá Langhúsum í Fljótsdal. Útför Hauks fer fram frá Eg- ilsstaðakirkju í dag, 8. nóv- ember 2013, kl. 14. Jarðsett verður í Þingmúlakirkjugarði. Hrólfur Árni, b. í Fellabæ. Árið 1971 kvænt- ist Haukur, Önnu Guðbjörgu Gunn- laugsdóttur frá Heiðarseli í Hróars- tungu. Börn Hauks og Önnu eru: Berg- hildur Fanney, b. á Vopnafirði. Dætur hennar eru Anna Guðný og Marta. Viðar Gunnlaugur, b. á Egilsstöðum, kvæntur Kol- brúnu Nönnu Magnúsdóttur. Börn þeirra eru Markús Máni og Gígja Rún. Sigrún Jóna, b. í Fellabæ, gift Óttari Orra Guð- jónssyni. Börn þeirra eru Emilía Anna og Ari Jökull. Bjarki Haukur er dáinn. Mín fyrsta hugsun var hvort virkilega væri komið að því að fyrsta systkinið okkar sé látið. Haukur var stóri bróðir annarrar okkar og litli bróðir hinnar. Sem litli bróðir eins og samloka við mig. Við systkinin vorum leikfélagar og vorum stundum öll saman í bíla- leik í bílabúinu eða í hornabúinu okkar. Þarna vorum við oft dag- langt þegar hlé var á vinnu heima við. Sú yngri okkar erfði stóra trébílinn hans Hauks þeg- ar hann hætti að leika sér með hann. Bíllinn var með þeim flottari, smíðaður af honum sjálfum. Við bústörfin má segja að Haukur hafi verið sem hægri hönd pabba. Þeir áttu gott skap saman og gekk vel samvinna meðan sá búskapur varði. Tíminn leið og Haukur náði sér í konu, hana Önnu og þau byrjuðu að búa í Haugum í tví- býli við foreldra okkar. Hann var duglegur og natinn bóndi og átti fallegt fé. Hann stækkaði fjárhúsin, lagaði gömul hús og bætti vélakostinn en þá voru ný og fullkomnari tæki að koma til allra bústarfa. Eftir um átján ára búskap dundu yfir tvö áföll yfir. Heilsu föður okkar hafði hrakað og í lok október greind- ist hann með krabbamein og hann var frá vegna veikindanna um lengri tíma. Réttum mánuði seinna varð annað stórt áfall. Haukur fékk heilablæðingu og var fluttur á spítala í Reykjavík. Hann dvaldi eftir þetta lang- dvölum á spítala og í endurhæf- ingu fyrstu árin og náði aldrei fullri heilsu. Anna hélt áfram að búa með hjálp barna sinna. Rétt er þó að minnast mikillar hjálp- ar vina, nágranna og sveitunga í þessum erfiðleikum. Árið 1993 ákváðu þau að hætta að búa og byggðu hús á Egilsstöðum. Fljótlega eftir þetta skildu Anna og Haukur og hann flutti í litla íbúð. Hann hitti Ragnhildi og saman örkuðu þau veginn síðustu árin. Þau keyptu sér íbúð og hjálpuðust að við að halda heimili og hlúa hvort að öðru. Eftir áfallið fannst Hauki betra að hafa skipulag á hlut- unum. Við sögðum stundum að hann lifði eftir stundaskrá. Búðaferðir voru á vissum dög- um, sundferðir á vissum tímum og einnig gönguferðir. Egils- staðabúar kannast vísast við það að sjá þau Ragnhildi á göngu í bænum á vissum tím- um. Mér eru mjög minnisstæðar ýmsar stundir á síðustu 25 ár- um. Þá er nú fyrst að telja alla litlu sigrana í átt til heilsu, sér- staklega fyrstu árin eftir áfallið. Ég minnist þess að eitt sinn þegar ég kom upp á gjörgæslu þegar hann var að vakna eftir þriggja vikna svæfingu og hann gat ekki talað vegna erfiðleika við öndun að ég sá hann mynda nafnið mitt með vörunum. Ég gat með gleði sagt fjölskyldunni að hann hefði þekkt mig. Ég man eftir óöryggi hans ef breyta þurfti út af stunda- skránni. Það er einstakt hvað heilsugæslulæknar á Egilsstöð- um gátu gert mikið fyrir hann. Það er þakkarvert hvað Anna og börn þeirra voru dugleg að berjast með honum í gegnum veikindin. Síðan tók Ragnhildur við og bjó honum gott heimili til hins síðasta. Þau eiga öll miklar þakkir skildar. Fjölskyldu hans vottum við samúð á erfiðum stundum. Guð blessi minningu Hauks og ástarþakkir fyrir allt, kæri bróðir. Jóna Björg og Ingifinna. Haukur Jónsson Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.