Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.11.2013, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Hin spaugsama, húsvíska hljóm- sveit Ljótu hálfvitarnir heldur síð- ustu tónleika sína á árinu í kvöld og annað kvöld kl. 22 á Café Rosen- berg við Klapparstíg í Reykjavík. Helgina 15. og 16. nóvember munu Ljótu hálfvitarnir leika á Græna hattinum á Akureyri en að þeim tónleikum loknum munu þeir snúa sér að öðrum verkefnum og taka þráðinn upp að nýju með vori. Ljótu hálfvitana skipa níu ljótir hálfvitar og sendu þeir frá sér sína fjórðu breiðskífu í sumar, 17. júní, og er hún án titils líkt og fyrri plöt- ur þeirra. Nafn hljómsveitarinnar er ritað í appelsínugulu á kápu plöt- unnar og hefur hún því verið nefnd „appelsínugula platan“, til aðgrein- ingar frá fyrri þremur. Hress Þorgeir Tryggvason er einn af níu Ljótum hálfvitum. Hálfvitar á Rosenberg Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Með þessari uppfærslu langar mig að þakka formlega fyrir mig, enda er ég mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að sinna leiklist- inni öll þessi ár og fengið að gefa af mér. Einnig langar mig að þakka Þorvaldi Þorsteinssyni sem lést langt fyrir aldur fram fyrr á þessu ári,“ segir Arnar Jónsson leikari sem frumsýnir einleikinn Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson í leik- stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur á Stóra sviði Þjóðleikhússins sunnu- daginn 10. nóvember kl. 20. Verkið er sett upp á þeim tíma- mótum þegar Arnar kveður Þjóð- leikhúsið eftir langan og farsælan feril við húsið en Arnar varð nýlega sjötugur. „Formlega séð er þetta því kveðjuverkefnið samtímis því sem verið er að minnast þess að hálf öld er síðan ég steig á þetta sama svið í Þjóðleikhúsinu í Gísl,“ segir Arnar og tekur fram að hann sé þó alls ekk- ert að setjast í helgan stein strax. „Ég er til dæmis að fara í mjög stórt hlutverk á útmánuðum í Eldrauninni eftir Arthur Miller. Næsti vetur er enn alveg óráðinn, en mig langar að halda áfram að leika meðan ég hef til þess bæði þrek og úthald. Ég er í fínu formi og get greinilega enn munað texta úr því að þessar 40 blað- síður hafa síast inn,“ segir Arnar og vísar þar til handritsins að Sveins- stykki. Ánægjulegt símtal Þorvaldur skrifaði Sveinsstykki árið 2003 fyrir Arnar að beiðni Þor- leifs Arnar Arnarssonar í tilefni af tvöföldum tímamótum Arnars, þ.e. 40 ára leikafmæli hans og sextugs- afmæli, og leikstýrði Þorleifur Örn föður sínum í frumuppfærslunni. Í samtali við Morgunblaðið í desember 2003 sagði Þorvaldur að símtalið frá Þorleifi hefði verið „eitthvert ánægjulegasta símtal“ sem hann hefði fengið lengi. Aðspurður sagði Þorvaldur það mikil forréttindi að fá að skrifa einleik með ákveðinn leik- ara í huga. „Sérstaklega þegar leik- arinn heitir Arnar Jónsson. En því fylgja líka ákveðnar hættur. Arnar er ákaflega tilfinningaríkur og sterk- ur leikari og hefur gefið mörgum eft- irminnilegustu persónum sem sést hafa á íslensku leiksviði nánast eilíft líf. Það var þess vegna ákveðin ögrun fyrir mig að skrifa fyrir hann heils kvölds sýningu án þess að reyna að toppa Þorleif Kortsson, Don Kíkóta, Galdra-Loft og Bjart í Sumarhúsum. Niðurstaðan varð þessi tiltölulega látlausi, hljóðláti karakter sem þó er að takast á við nokkurn veginn sömu tilvistarspurningar góðbændurnir,“ sagði Þorvaldur. Líf manns í rjúkandi rúst Í Sveinsstykki segir af reglu- manninum, íslenskumanninum og lagerstarfsmanninum Sveini Krist- inssyni sem á bæði stórafmæli og starfsafmæli og fagnar þessum tíma- mótum með því að bjóða til veislu. Hann er að halda upp á það að hafa alla sína ævi aldrei gert annað en það sem rétt getur talist. En fyrst allt lít- ur svona vel út á pappírnum, hvernig stendur þá á því að líf þessa blíða, greinda og framsýna manns er rjúk- andi rúst á þessum hátíðisdegi? Er hægt að gera allt svo rétt að það verði rangt? Spurður hvernig sé að koma aftur að texta Þorvaldar tíu árum seinna segir Arnar það dásamlegt. „Þessi texti er alveg einstakur. Hann er svo djúpur, fullur af innsæi og skilningi, enda var Þorvaldur öflugur texta- smiður,“ segir Arnar og tekur fram að Þorvaldur fari alla leið inn að kviku. Að sögn Arnars nálgast þau Þórhildur verkið á nýjum for- sendum. „Enda verða áherslurnar alltaf aðrar með nýjum leikstjóra. Mér fannst ég alltaf skulda Þorvaldi það að klára þetta dæmi almenni- lega,“ segir Arnar og þegar blaða- maður hváir heldur hann áfram til útskýringar: „Mér fannst ég aldrei ná þeim tökum sem ég vildi á hlut- verkinu á sínum tíma. Mér fannst ég aldrei ná að fara alla leið, því ég þorði á þessum tíma ekki alveg yfir sársaukamörkin, en þori núna.“ Þroskaðasta verk Þorvaldar Við þessi orð Arnars rifjast upp fyrir blaðamanni lofsamlegur dómur Þorgeirs Tryggvasonar, leiklist- argagnrýnanda Morgunblaðsins, en hann skrifaði á sínum tíma: „Af Sveinsstykki að dæma getur Arnar Jónsson allt. […] Þó svo tæknin og færnin fari aldrei á milli mála er það einlægnin, samúðin og hlýjan sem leikarinn hefur lagt til persónunnar sem gerir þennan fráhrindandi mann að vini okkar þessa tvo tíma. Arnar leikur sér að því að sýna okk- ur Svein á öllum æviskeiðum, við ýmsar aðstæður, og brunar af óskeikulum krafti hins þrautþjálfaða listamanns inn í ólíkustu tilfinningar og aðstæður. Ég minnist þess ekki að hafa verið jafn snortinn af leik Arnars Jónssonar og í þessari af- mælissýningu.“ Um verkið sjálft skrifaði Þorgeir: „Sveinsstykki er við fyrstu kynni besta og þrosk- aðasta verk Þorvaldar fram að þessu.“ Þórhildur hefur alla tíð verið minn besti gagnrýnandi En telur Arnar að Þorvaldur hafi meðvitað skrifað einleikinn þannig að í því fælist mikil áskorun fyrir hann sem leikara? „Ég er ekkert viss um að hann hafi hugsað það þannig. En það varð þannig vegna þess að þessi persóna er töluvert ólík flest- um þeim persónum sem ég hef glímt við,“ segir Arnar og rifjar upp að á tímabili hafi Þorvaldur verið kominn á fremsta hlunn með að hætta við leikritaskrifin. „Hann var í öngum sínum vegna þess að hann var að reyna að skrifa mikið glæsiverk og hringdi í Þorleif og tjáði honum að hann gæti ekki gert þetta og yrði að gefast upp. Þor- leifur lagði bara áherslu á að við hefðum ekki verið að biðja um eitt- hvað sem væri langt fyrir ofan allt. Við værum bara að biðja um ósköp venjulegt verk. Og svo læddist Sveinn Kristinsson hljóðlega inn í tölvuna hans, eins og Þorvaldur orð- aði það við okkur, og úr varð þetta frábæra verk.“ Að lokum er ekki úr vegi að spyrja aðeins um samstarfið við Þórhildi sem leikstýrir eiginmanni sínum. „Samstarf okkar á sér langa sögu og hefur verið bæði farsælt og gott. Ég hugsa að ég hafi verið svolítið erfiður lengi framan af, svona eins og ungir menn oft eru. Leikari sem hefur góða rödd, útlit og hreyfigetu getur freistast til þess að halda að hann komist nógu langt á þessum hlutum og þurfi ekkert að fara neitt mikið dýpra í hlutina. Þórhildur hefur alla tíð verið minn besti gagnrýnandi og aldrei gefið neinn afslátt í kröfum sínum, sem aftur hefur þvingað mig til að fara út úr þægindaramm- anum,“ segir Arnar að lokum. Fer nær sársaukamörkum  Arnar Jónsson tekst á við Sveinsstykki Þorvaldar Þorsteinssonar í annað sinn á leikferli sínum  Kveður Þjóðleikhúsið formlega eftir 50 ára farsælt starf en segist þó alls ekkert hættur að leika Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveinsstykki „Mér fannst ég alltaf skulda Þorvaldi það að klára þetta dæmi almennilega,“ segir Arnar Jónsson. Meistaranemar í hagnýtri menn- ingarmiðlun við Háskóla Íslands standa fyrir nemendaráð- stefnunni Menn- ingarbræðingi ásamt málfræð- ingnum Margréti Pálsdóttur í dag milli kl. 9 og 16 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Þar verða flutt 37 ólík og fróðleg erindi. Allar nán- ari upplýsingar eru á vefnum nem- endafelog.hi.is/hmm. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Menningarbræð- ingur við HÍ Margrét Pálsdóttir Einrúm Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Sófi úr hljóðísogsefni sem býr til hljóðskjól í miðjum skarkala opinna skrifstofurýma, auk þess að bæta hljóðvist rýmisins Sturla Már Jónsson Húsgagna- og innanhússarkitekt hannaði Einrúm Tvennir tón- leikar til heiðurs Black Sabbath verða haldnir nú um helgina. Þeir fyrri eru í kvöld á Græna hatt- inum kl. 22, en seinni á Gamla Gauknum kl. 23. Heiðurssveitina skipa söngvarinn Jens Ólafsson, Franz Gunnarsson á gítar, Flosi Þorgeirsson á bassa og Hallur Ing- ólfsson á trommur. Efniviður tón- leikanna er fenginn að mestu úr lagasarpi sveitarinnar sem Ozzy Osbourne syngur Black Sabbath heiðurstónleikar Ozzy Osbourne

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.