Morgunblaðið - 08.11.2013, Page 48

Morgunblaðið - 08.11.2013, Page 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Von - saga Amal Tamimi nefnist bók sem Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar og Bókaútgáfan Hólar send- ir frá sér fyrir jólin. „Amal er fædd og uppalin í Jerúsalem í Palestínu. Hún var sjö ára þegar stríðið skall á, þrettán ára var hún fangelsuð af Ísraelsmönnum vegna grjótkasts, sextán ára var hún gift. Árið 1995 flúði hún heimilisofbeldi eig- inmanns síns og fór með börnin sín fimm til Íslands. Flóttinn var æv- intýralegur og Amal óttaðist um líf sitt. Nafn Amal merkir von. Von Amal hefur ávallt verið að komið sé fram við hana og alla aðra eins og manneskjur. Af virðingu og vænt- umþykju,“ segir m.a. í tilkynningu frá bókaútgáfunni. Hólar gefa út tvær gamansagna- bækur á komandi vikum. Önnur þeirra heitir Húmör í Hafnarfirði og er hún í samantekt Ingvars Viktorssonar, fyrrverandi kennara og bæjarstjóra þar. „Í bókinni koma margir við sögu, s.s. smá- vaxnir Hafnfirðingar á borð við Þóri Jónsson, Leif Garðarsson og nafna hans Helgason. Einnig eru kölluð til Gunnar Rafn Sig- urbjörnsson, Gummi Valda, Hildur Guðmundsdóttir, kennarar í Flens- borg, Gísli pól, Geir Gunnarsson, Adolf Björnsson og margir fleiri.“ Hin gamansagnabókin heitir Skagfirskar skemmtisögur 3. „Skrásetjari hennar er Björn Jó- hann Björnsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, og þar kennir margra grasa. Kaupmaðurinn sí- káti Bjarni Har stígur fram í sviðs- ljósið, sömuleiðis Álftagerð- isbræður, Dúddi á Skörðugili, Pálmi Rögnvalds, Bjarni Marons, Ýtu-Keli, Binni Júlla, Siggi í Vík, Gunni Rögnvalds, Jón Drangeyj- arjarl og eru þá fáir nefndir.“ Sir Alex - hinn magnaði Fergu- son-tími hjá Manchester United 1986-2013 er heiti bókar eftir Guð- jón Inga Eiríksson. „Eins og nafnið bendir til þá er þarna rakin saga Rauðu djöflanna frá því að Sir Alex Ferguson tók þar við stjórn og þangað til hann hætti knatt- spyrnustjórn sl. sumar. Sagt er frá sigrum og sorgum, ýmsu sem gerð- ist bak við tjöldin og fór ekki hátt og hver stórstjarnan af annarri skýst fram á sjónarsviðið. Bókin er stútfull af snilldartilþrifum, rudda- legum tæklingum, rauðum spjöld- um og alls kyns fótboltakryddi.“ Kvikindislegt nafnarím Allir krakkarnir er heiti á bók sem Gunnar Kr. Sigurjónsson, hag- yrðingur og töframaður, tók sam- an. Hún „inniheldur kærleiksríkt og kvikindislegt nafnarím.“ Jón Kristjánsson hefur tekið saman bókina 100 ára saga Kaup- félags Héraðsbúa. Þar „segir sögu þessa merka samvinnufélags sem stofnað var árið 1909. Það var á löngu tímabili burðarás í austfirsku atvinnulífi með mikla starfsemi bæði á Héraði og Fjörðum en með breyttum viðskiptaháttum og sam- félagsþróun í lok 20. aldar tók að fjara undan því.“ Brot úr byggðasögu – mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár nefnist ný bók eftir Björn Ingólfsson. Hún fjallar „á ítarlegan hátt um allt það helsta sem snertir umræddan hrepp, allt aftur á nítjándu öld“. Bókin skiptist í átta hluta. Sá fyrsti fjallar um hreppinn og stjórn hans, einkum á þeim tíma þegar fram- færslumálin vógu þyngst. Annar kaflinn um landbúnað og bændur. Þriðji kaflinn er helgaður sam- göngum og segir frá fyrstu gerð vega og brúa, upphafi bílaaldar í hreppnum, pósti og síma. Fjórði kaflinn er um rafmagn og segir frá fyrstu heimarafstöðvum. Fimmti kaflinn er tileinkaður læknum og ljósmæðrum. Verslunarkaflinn er sjötti kaflinn og skólasagan sá sjö- undi. Síðasti kaflinn fjallar um fé- lagasamtök margs konar. Bókina prýðir hátt á fimmta hundrað mynda. Von væntanleg hjá Bókaútgáfunni Hólum  Skemmtisögur, Mannlíf og kaupfélag til umfjöllunar Amal Tamimi Ingvar Viktorsson Björn Jóhann Björnsson Jón Kristjánsson Húmör Margir koma við sögu. Sá sem vill ná langt í flugu-veiði leggur upp í vegferðsem endist ævina og þarer þekking upphaf og end- ir alls.“ Þannig hefst einn fjölda stuttra kafla um stangveiði sem mynda meginhluta áhugaverðrar bók- ar Pálma Gunn- arssonar, Gengið með fiskum. Pálmi er ekki bara firna- slyngur bassaleik- ari og ástsæll söngvari, hann hef- ur líka verið ástríðufullur flugu- veiðimaður um langt árabil. Hefur hann ritað og birt reglulega grein- ar um þá vegferð alla og skoðanir sínar á veiði og veiðimenningu. Skoðanir sem geta verið býsna af- dráttarlausar en undirbyggðar af mikilli virðingu og væntumþykju fyrir gangverki náttúrunnar. Pálmi bætir við í þessum kafla, að án þekkingar verði fluguveiðin lítið meira en sóun á tíma. Það sem er undir er náttúran „í öllum sínum margbreytileika, veðrið, vatnið, skordýrin, fiskurinn og veiðimað- urinn, veiðifélagar, lífið, dauðinn“. Bók Pálma skiptist í þrjá hluta. Hann segir að líf sitt hafi allt með einhverjum hætti snúist um veiði og fyrsti hlutinn, sem er afar áhugaverður og heildstæður, snýst um uppvöxt höfundarins, nánustu fjölskyldu og það hvernig hann uppgötvaði veiðieðlið. Þetta er lit- ríkur og vel skrifaður texti; minn- ingabrot austan af fjörðum þar sem veiðin er límið sem heldur flæðinu saman. Þessum hluta bókarinnar lýkur þar sem hljómsveitarlífið tek- ur yfir, með tilheyrandi slarki og vímuefnaneyslu. Leitin að frægð og frama tók yfir, skrifar Pálmi, og „veiðiástríðan fór í frí“. Hún fannst ekki aftur fyrr en hann handlék flugustöng á kastnámskeiði löngu síðar. Meginhluti bókarinnar byggist síðan á mörgum frekar stuttum textum, hálf síða til þrjár hver; minningum, frásögnum af fólki, þönkum um fluguveiði og ýmiss konar sögulegum brotum. Þetta eru býsna ólíkir textar. Nokkur prédikunartónn er í sumum, enda er höfundi ekki sama hvernig menn veiða og ganga um viðkvæma nátt- úruna, réttilega. Í öðrum, og oft þeim best lukkuðu, er brugðið upp svipmyndum af veiðifélögum og stöku ævintýrum á bakkanum. Á stundum segir frá því hvar sögu- maður reynir að snúa félögum frá veiðum með beitu eða þungum túp- um, yfir í að nota smáar flugur og allra helst þurrflugur. Lokahluti bókarinnar, „Epi- logue“, er hugljúf saga um upp- fræðslu drengs á bökkum vatnanna, þar sem honum er kennt að veiða og lesa náttúruna. Er hún falleg samantekt í bókarlok um þá nálgun sem höfundi finnst greini- lega að veiðimenn eigi að hafa í umgengni sinni við þann ómet- anlega náttúruauð sem fiskarnir í íslenskri náttúru eru. Gengið með fiskum er góð viðbót í veiðibókaflóruna, með frásögnum sem eiga eflaust eftir að ylja veiði- mönnum á köldum vetrarkvöldum – og mögulega beina einhvejum á þá ævilöngu vegferð, fluguveiðina. Fiskurinn og veiði- maðurinn, veiðifélag- ar, lífið, dauðinn Morgunblaðið/Einar Falur Næturveiði Pálmi Gunnarsson tog- ast á við sjóbirting í Litluá. Stangveiði Gengið með fiskum bbbmn Eftir Pálma Gunnarsson. Uppheimar, 2013. 209 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Sagan gerist árið 1965 ogfjallar um íbúa í nýrri blokksem í eru átta íbúðir, tvær áhverri hæð. Konurnar eru heima allan daginn hvort sem þær eiga börn eða ekki og karlarnir vinna úti, eru fyrirvinna fjölskyldunnar eins og tíðkaðist. Konurnar hafa ýmislegt fyrir stafni á daginn til að drepa tímann. Sumar þrífa óbæri- lega mikið, aðrar fylgjast með ná- grönnunum, hugsa fyrir kvöldmatnum eða opna hár- greiðslustofu í eld- húsinu. Síðan koma eiginmennirnir heim síðdegis og þá hefst dekstrið í kringum þá. Í einni íbúðinni býr ekkjumaður með ungri dóttur sinni sem hann á erfitt með að sýna ástúð, í annarri íbúð vinnur eig- inmaðurinn stundum heima, konunni til armæðu, og efst uppi á fjórðu bíður fallega frúin eftir því að maður henn- ar komi heim úr söluferðum. Hver íbúi á sína sögu en leikur sitt hvers- dagslega hlutverk vel enda verða þeir sem bregða út af því snarlega kjafta- sögunum að bráð. Kaflaskil verða svo í lífi íbúanna þegar upp á bankar ung- ur maður sem selur gægjugöt. Lesandinn fær að kíkja inn í íbúð- irnar og sjá heimilislífið en það er ekki endilega það líf sem nágrann- arnir sjá. Íbúarnir í stigaganginum eru eins og fólk er; misjafnir. Það hef- ur hver sína eiginleika og tekst höf- undi vel til við að fanga fjölbreytileika manneskjunnar þó að við fyrstu sýn virðist allir steyptir í sama mótið. Þetta er létt og skemmtileg bók um lífið eins og það var fyrir 48 árum. Höfundi tekst vel að fanga tíðarand- ann. Persónurnar eru áhugaverðar og auðvelt að tengja við þær. Þetta er bók sem nær manni strax, hún er fljótlesin og í lokin vill maður fram- hald því það er erfitt að fá ekki að vita meira um fólkið í stigaganginum. Lesandinn verður eins og forvitni ná- granninn sem stendur allan daginn við gægjugatið á hurðinni og fær aldrei nóg af lífi hinna. Hangið á gægjugatinu Skáldsaga Ég skal gera þig svo hamingjusaman bbbmn Eftir Anne B. Ragde. Íslensk þýðing: Halla Sverrisdóttir. Kilja, 304 bls. Mál og menning 2013. INGVELDUR GEIRSDÓTTIR BÆKUR Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS ÚRVA L - GÆ ÐI - Þ JÓNU STA MIKIÐ ÚRVAL AF VEGGFÓÐRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.