Morgunblaðið - 08.11.2013, Síða 52
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Nauðgað í helgarferð til Íslands
2. Laug í gær eða fyrir fimm árum
3. Björn fékk óvænt forstjórastólinn
4. „Þetta var ekki löglegt“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Requiem, stuttmynd ljósmynd-
arans Marinos Thorlacius og dans-
arans Sigríðar Soffíu Níelsdóttur,
verður sýnd á listahátíðinni Nord-
wind í Dresden í Þýskalandi, 28. og
29. nóvember. Myndin var unnin út
frá rannsókn á mismunandi skynjun
heilans á endurminningum, ímyndun,
draumum og raunveruleika, að því er
segir í tilkynningu. Sigríður Soffía
dansar einnig í sviðsverki belgíska
leikstjórans Kris Verdonck á hátíðinni
og af öðrum Íslendingum sem taka
þátt í hátíðinni má nefna tónlistar-
manninn Ólaf Arnalds og myndlist-
armanninn Egil Sæbjörnsson.
Requiem sýnd á
Nordwind í Dresden
91 stuttmynd verður sýnd á al-
þjóðlegu stuttmyndahátíðinni North-
ern Wave sem fram fer á Grund-
arfirði helgina 15.-17. nóvember.
Hátíðin hefur til þessa verið haldin í
mars en ástæðan fyrir því að hún er
haldin í nóvember í ár er mikil fjölg-
un ferðamanna á svæðinu á vormán-
uðum vegna háhyrninga sem hafa
gert sig heimakomna í firðinum á
þessum tíma, skv. tilkynningu frá
stjórnanda. Margar verðlaunamyndir
verða sýndar á Northern Wave, m.a.
hin íslenska Hvalfjörður og Sandiq
frá Úsbekistan eftir unga leikstýru,
Sabinu Sagadeev. Það verður fleira í
boði en stuttmyndasýningar á hátíð-
inni, m.a. vinnusmiðja með banda-
ríska handritshöfund-
inum Margaret Glover,
tónleikar, dansleikur
og fiskiréttakeppni.
Stjórnandi hátíð-
arinnar og
stofnandi er
Dögg Mós-
esdóttir.
Northern Wave færð
til vegna háhyrninga
Á laugardag Sunnan 3-8 m/s og dálítil él um landið V-vert, en
annars hæg breytileg átt og bjartviðri. Hiti frá frostmarki við SV-
ströndina, niður í 12 stiga frost í innsveitum NA-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s og víða bjartviðri, en
skýjað og lítilsháttar él á NA-verðu landinu fram eftir degi. Kóln-
andi veður, frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.
VEÐUR
Haukar tróna einir á toppi
Olís-deildar karla í hand-
knattleik. Haukar áttu ekki í
vandræðum með að leggja
botnlið HK að velli á heima-
velli sínum. FH-ingar eru
stigi á eftir erkifjendum sín-
um en FH vann öruggan sig-
ur á Akureyringum í Kapla-
krika. Þá fögnuðu Íslands-
meistarar Fram sigri á ÍR-
ingum í Safamýri og með
sigrinum komst Fram upp
að hlið ÍR. »2
Haukarnir tróna
einir í toppsætinu
Sölvi Geir Ottesen er aftur kominn í
íslenska landsliðið í knattspyrnu en
Lars Lagerbäck tilkynnti í gær lands-
liðshópinn sem mætir Króötum í um-
spilinu um sæti á HM í Brasilíu. Fyrri
leikur Íslendinga og Króata verður á
Laugardalsvelli eftir eina
viku. »1
Sölvi Geir aftur kominn
í landsliðshópinn
Keflvíkingar héldu sigurgöngu sinni
áfram í Dominos-deild karla í körfu-
knattleik í gærkvöld. Keflavík hafði
betur á móti Þór Þorlákshöfn í topp-
slag suður með sjó. Stjarnan kippti
nýliðum Hauka niður á jörðina með
því að fagna sigri í Garðabæ og Vals-
menn eru enn án sigurs í deildinni en
þeir lágu á útivelli fyrir ÍR-ingum. »4
Keflvíkingar áfram á
sigurbrautinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hinn landsþekkti skagfirski tónlistarmaður Geir-
mundur Valtýsson sendir frá sér nýja plötu fyrir
jólin. Um jólaplötu er að ræða, þá fyrstu af því tagi
frá Geirmundi. „Það er búinn að vera draumur í
nokkur ár að gefa út jólaplötu. Allur minn tónlist-
arferill er hjá Senu og þeir eru búnir að draga mig
á asnaeyrunum í þrjú ár um útgáfu. Þeir eru með
útgáfurétt á öllum mínum lögum sem hafa komið
út. Ég fer fram á að gefa út jólaplötu og þeir hafa
alltaf hafnað því, svo þegar ég fékk síðustu synjun
ákvað ég að gera þetta sjálfur,“ segir Geirmundur
sem gefur út plötuna sjálfur.
Platan nefnist Jólastjörnur Geirmundar Valtýs-
sonar og kemur út seinnihluta nóvembermánaðar.
Þrettán lög eru á plötunni, ellefu glæný jólalög og
tvö aukalög sem tengjast ekki jólunum.
Sveifla í sumum lögunum
„Þetta eru venjuleg lög með jólatextum, það er
sveifla í sumum en önnur eru róleg. Sigga Bein-
teins syngur t.d. diskólag sem heitir „Jólin eru að
koma“,“ segir Geirmundur. Fjöldi flytjenda er með
honum á plötunni m.a. Helga Möller, Sigga Bein-
teins, Páll Rósinkrans, Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps og tvær afastelpur Geirmundar sem syngja
lagið „Jólastelpurnar“.
„Mér hefur fundist vanta ný jólalög undanfarin
ár. Á milli ’80 og ’90 var mikið gefið út af jólaplötum
með nýjum lögum en það hefur ekki gerst mikið
síðan. Nú eru tekin erlend lög og gerðir íslenskir
jólatextar við þau. En á minni plötu er frumsamin
íslensk tónlist eftir mig með frumsamda íslenska
texta, en hin og þessi skáld gerðu textana fyrir
mig.“
Þetta er fjórtánda plata Geirmundar og nú þegar
hann er búinn að láta drauminn um jólaplötuna
rætast stefnir hann næst að því að gefa út
barnaplötu.
Þrátt fyrir að vera kominn undir sjötugt
hefur Geirmundur ekkert slegið af. Hann
spilar enn ásamt hljómsveit sinni um
hverja helgi, ýmist fyrir sunnan eða norðan.
„Þetta er þvælingur en ég sé enga ástæðu
til að slá af. Jólaplatan er ekki bein tilkynn-
ing um það,“ segir Geirmundur glettinn.
Geirmundur verður með tvenna útgáfu-
tónleika í Miðgarði í Skagafirði 8. desember,
klukkan 18 og 20:30, og þar koma allir flytj-
endur plötunnar fram.
Lét jólaplötudrauminn rætast
Fyrsta jólaplata Geir-
mundar Valtýssonar
frá Skagafirði á leiðinni
Sveifla Geirmundur Valtýsson lét gamlan draum rætast og sendir frá sér jólaplötu fyrir komandi jól.
Flest lögin á plötunni eru samin á þessu ári. Geirmundur segist semja best
undir pressu. „Ég var búinn að taka ákvörðun um að gefa út jólaplötu og
þá varð ég að standa við það. Ég lagðist bara í verkið og þá gekk það. Ég
verð að vera undir pressu til að geta samið grimmt.“
Geirmundur segist hafa rokið í að semja jólalögin á milli annarra verka.
„Þetta er búið að ganga svona hjá mér í gegnum lífið. Eins og með lagið
„Ort í sandinn“, ég samdi það bara á nokkrum mínútum. Ég botna sjálfur
ekkert í því hvað þetta gengur vel hjá mér.“
Megnið af lögunum samdi Geirmundur á harmónikku. Þrátt fyrir það
er ekki mikið af nikku í lögunum.
„Það liggur vel fyrir mér að semja á nikkuna. Hún hentar vel í flest en
ef maður ætlar að semja rokk eða brjálaða sveiflu verður að gera það á
píanóinu.“
Lögin samin á milli verka
JÓLASTJÖRNUR GEIRMUNDAR VALTÝSSONAR