Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
Bull er grínistanum Þorsteini
Guðmundssyni og konu hans El-
ísabetu Önnu Jónsdóttur hug-
leikið en þau ræða útgáfu nýs
tímarits í viðtali í blaðinu í dag.
Þau telja í hinni mestu alvöru að
bull og hvers kyns grín eigi að
vera meira áberandi í almennri
umræðu. Líklega er það hárrétt
hjá þeim að það er gott að bulla
meira, en stundum þegar horft er
yfir fréttir vikunnar er tilfinn-
ingin þó einmitt sú að bullinu sé
hressilega ofaukið.
Í vikunni voru stóru málin
rædd. Kjarasamningar, verðbólg-
an, verðhækkanir, verðlækkanir,
sátt á vinnumarkaði, stöðugleiki
og fleira var í brennidepli. Hið eft-
irsóknarverða jafnvægi sem þarf
að vera í þjóðfélaginu til að allt
geti virkað sem skyldi og allir fái
sitt var umtalað nú eins og oft áð-
ur. Hvernig á að halda niðri verð-
bólgu? Hvað eru sanngjarnar
hækkanir til launþega? Hvaða
leiðir eru færar til að halda aftur
af verðhækkunum? Ótal spurn-
ingar brenna á fólki og svörin
liggja ekki alltaf fyrir.
Eins og jafnan í kjara- og verð-
bólguumræðum eru aðalleikarar á
borð við verkalýðsforkólfa og for-
svarsmenn liðs atvinnurekenda
snöggir fram á svið. Að þessu
sinni spruttu þó fram óvæntir
meðleikarar; framlínusveit sæl-
gætisframleiðenda lagði orð í
belg. Við fengum að heyra af því
að Nói Siríus og Freyja hygðust
hækka verð á sínu sælgæti um
einhver prósent en frá sælgæt-
isgerðinni Góu bárust aftur á móti
þau tíðindi að súkkulaðið skyldi
ekki hækkað heldur ætti að segja
verðbólgunni stríð á hendur.
Engu var líkara en að upphæð
vörukörfunnar okkar og raun-
verulegur kaupmáttur myndi ráð-
ast af verðlagi á súkkulaðirús-
ínum. En jú, líklega er bara best
að bulla meira.
RABBIÐ
Sælgæti í brennidepli
Eyrún Magnúsdóttir
Þjóðin var full tilhlökkunar í ársbyrjun 1974 þegar beðið var eftir því að Heimsmeistaramótið í handbolta hæfist í Austur-Þýskalandi. Undirbúningsleikir
voru nokkrir síðustu dagana fyrir mótið og sá síðasti fyrir mótið var leikur Íslendinga við Norðmenn sem fór þannig að Íslendingur unnu yfirburðasigur.
Norsku blöðin sögðu íslenska liðið svo sterkt að það ætti möguleika á verðlaunum en svo fór engu að síður að það lenti í 14. sæti. Handboltinn heltók
þjóðina, líkt og hann gerir enn í dag, Ólafur K. Magnússon ljósmyndari Morgunblaðsins fór ekki varhluta af því. Hann heimsótti á þessum tíma leikarana
Val Gíslason og Róbert Arnfinnsson í Þjóðleikhúsið af allt öðru tilefni, þeir brugðu á leik og myndin er að sjálfsögðu í takt við tíðarandann; tóbaksreykur
innandyra án þess að nokkur kippti sér upp við það. julia@mbl.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ALLIR VORU SPENNTIR
FLAUTAÐ VERÐUR TIL LEIKS ÍSLENDINGA OG NORÐMANNA Á EVRÓPUMEISTARAMÓTINU Í HANDBOLTA
Á SUNNUDAG. FYRIR 40 ÁRUM BEIÐ ÞJÓÐIN EINNIG Í OFVÆNI EFTIR LANDSLEIK ÍSLENDINGA OG
NORÐMANNA Í HANDBOLTA.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Bluegrass-hátíð.
Hvar? Gamla Gauk og Dillon.
Hvenær? Laugardag kl. 22.
Nánar Hljómsveitin Illgresi ásamt
Hjalta Þorkelssyni og öðrum góðum
gestum stígur á svið á Gamla Gauk.
Fivebellies og Dýrðin spila á Dillon. Að-
gangur er ókeypis.
Tónlistarveisla
Hvað? Einleikurinn
Eldklerkurinn.
Hvar? Tjarnarbíó.
Hvenær? Sunnudag
kl. 20.
Nánar Sögð sagan af
Jóni Steingrímssyni bónda, lækni og
presti sem flutti eldmessu í miðjum
Skaftáreldum. Verð: 3.500.
Eldmessa
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Flóamark-
aður.
Hvar? Kolaportinu.
Hvenær? Opið
laugardag og sunnu-
dag kl. 11-17.
Nánar: Allir básar eru upppantaðir í
Kolaportinu um helgina, markaðstorgið
verður líflegt.
Keypt og selt
Hvað? Skíðakennsla.
Hvar? Bláfjöllum.
Hvenær? Laugardag
og sunnudag kl.11-15.
Opið í Bláfjöllun
kl.10-17 báða dagana
ef veður leyfir.
Nánar Skíðakennari er við kaðallyftuna
við Bláfjallaskála um helgar og veitir
kennslu í grunntækninni. Ekki er þörf á
skráningu heldur bara mæta.
Byrjaðu á skíðum
Hvað? Ball með Bryndísi Ásmunds-
dóttur og bandinu hennar.
Hvar? Spot í Kópavogi.
Hvenær? Laugardag, hefst á miðnætti.
Nánar Bryndís Ásmundsdóttir hefur
sett saman hljómsveitina Bryndís og fol-
arnir og munu þau leika fyrir dansi.
Bryndís og folarnir
Hvað? Þrjúbíó fyrir 3-6 ára börn.
Hvar? Borgarbókasafni Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15.
Hvenær? Sunnudag, kl. 15.
Þrjúbíó
* Forsíðumyndina tók Golli.