Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014 Blásarakvintett Reykjavíkur hefur nýja árið í 15:15-tónleikasyrpunni í Norræna húsinu með tónleikum á sunnudag klukkan 15.15. Yfirskrift tónleika kvintettsins er „Kvint- ettar englanna“. Á efnisskránni eru verk eft- ir þrjú ólík ensk tónskáld; George Onslow (1784-1852), Gustav Holst (1874-1934) og Malcolm Arnold (1921-2006); kvintettar eftir þá fyrrnefndu og „Þrír sjóarasöngvar“ eftir Arnold. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa nú þau Hallfríður Ólafsdóttir á flautu, Daði Kolbeinsson á óbó, Einar Jóhannesson klarínettu, Jósef Ognibene horn og Darri Mikaelsson á fagott. KVINTETTAR ENGLANNA BLÁSARAVERK Blásarakvintett Reykjavíkur. Á efnisskrá tón- leikanna eru verk eftir ólík ensk tónskáld. Myndlistarmaðurinn Kristbergur Pétursson við eitt verkanna á sýningunni í Anarkíu. Kristbergur Ó. Pétursson myndlistarmaður opnar sýningu á málverkum í Anarkía listasal í Kópavogi í dag, laugardag, klukkan 15. Innblásturinn við vinnuna að þessum nýju verkum hefur Kristbergur sótt í sitt nánasta umhverfi í hrauninu í Hafnarfirði og hefur það orðið honum úrvinnsluefni til mynd- rænna hugleiðinga og skírskotana. Kristbergur lauk námi við MHÍ árið 1983 og framhaldsnáami í Hollandi 1988. Hann hefur síðan haldið allmargar sýningar á verk- um sínum og tekið þátt í samsýningum. Anarkía er í Hamraborg 3, norðanmegin, og er sýningin opin alla daga nema mánudaga kl. 15-18. KRISTBERGUR Í ANARKÍU SÆKIR Í HRAUNIÐ Myndlistarkonan Jeann- ette Castioni opnar á laugardag klukkan 16 sýn- ingu sem hún kallar „To- ols“ í gallerí Úthverfu á Ísafirði, í samstarfi við Ed- inborg Menningar- miðstöð. Jeannette er fædd í Veróna á Ítalíu, hef- ur verið búsett á Íslandi í fjölda ára en undanfarin ár hefur hún verið við framhaldsnám í Lund- únum. Hún nam áður forvörslu og myndlist á Ítalíu og útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ árið 2006. Hún var tilnefnd „Spíra ársins 2012“ af Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri. Í verkum sínum nýtir Jeanette gjarnan sinn klassíska bakgrunn í myndlist og á í persónu- legri rökræðu við samtímann, þar sem oft koma inn menningarlegar eða félagslegar efa- semdir. Síðustu ár hefur hún aðallega unnið með vídeómiðilinn í verkum sínum. JEANNETTE Í ÚTHVERFU TOOLS Á ÍSAFIRÐI Jeannette Castioni Menning Ég hlakka mikið til að heimsækja fallegalandið ykkar, það hefur mikið veriðdásamað í mín eyru,“ segir bandaríska tónskáldið og píanóleikarinn Philip Glass. Hann kemur fram í Eldborgarsal Hörpu þriðjudagskvöldið 28. janúar ásamt píanóleik- urunum Maki Namekawa frá Japan og Vík- ingi Heiðari Ólafssyni. Þau leika allar tuttugu Etýðurnar eftir Glass, píanóverk sem hann hóf að semja fyrir rúmum tveimur áratugum og lauk við fyrir rúmu ári. Glass er eitt merkasta tónskáld síðustu hálfrar aldar. Hann er nú orðinn 76 ára gam- all og slær ekkert af; á síðasta áratug hefur hann sent frá sér nokkrar óperur, sinfóníur, konserta og kammermúsík, auk þess að semja tónlist við margar kvikmyndir. Þá kemur hann reglulega fram sem píanóleikari. Glass er einn kunnasti forvígismaður þeirr- ar stefnu sem oft er kölluð mínimalismi í tón- list, þótt hann hafi viljað halda sér fjarri slík- um skilgreiningum, tali frekar um sig sem „höfund tónlistar með endurtekinni hrynj- andi“ og að hann sé í raun klassískt tónskáld. Og hingað kemur hann til að leika fyrir tón- leikagesti á slaghörpuna. „Það tók mig miklu mun lengri tíma að semja þessi verk, Etýðurnar, en ég ætlaði,“ segir Glass þegar slegið er á þráðinn til hans í New York. „Ég byrjaði að semja þær fyrir tuttugu árum, 1991. Þá var ég á sextugsaldri og hugsaði mér að ljúka þeim á nokkrum ár- um svo ég gæti í kjölfarið lært verkin og flutt þau sjálfur. En sú varð ekki raunin. Ég náði að semja sextán en svo hægði ég á mér, fest- ist í að semja óperur og sinfóníur, en ég lauk loks við þær í desember 2012.“ Glass þagnar og bætir svo við að það sé í sjálfu sér áhugavert hvað verkið tók hann langan tíma, nú gefi etýðurnar nefnilega góða mynd af því hvernig tónsmíðar hans hafi þróast á þessu árabili. „Og fyrir vikið hafa þær orðið mun mikilvægari en ég hugði upp- haflega. En þessi verk hafa einnig skapað ný vanda- mál því nú þarf ég að læra alla þessa tónlist,“ segir hann og hlær. „Ég kann þegar tólf eða þrettán af þeim en sex eða sjö kann ég ekki. Það tekur tíma að læra ný verk og þar sem ég er upptekin við að semja önnur ný, þá fékk ég þá hugmynd að bjóða öðrum píanó- leikurum að taka þátt í flutningnum með mér. Maki Namekawa er afskaplega góður píanó- leikari sem hefur leikið önnur verk eftir mig, hún kemur fram á öllum tónleikunum með mér, en síðan bjóðum við einum heimamanni að koma fram með okkur á hverjum stað. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar: Ég fæ að kynnast nýjum hljóðfæraleikurum, fleiri munu læra tónlistina mína og svo byggjum við smám saman upp net spilara sem tengj- ast.“ Þessi háttur var hafður á á tónlistarhátíð- inni í Perth í Ástralíu fyrir tæpu ári, þegar síðustu fjórar etýðurnar voru frumfluttar í til- efni af 75 ára afmæli Glass. „Það er afar ánægjulegt hvað píanóleik- ararnir sem hafa verið fundnir fyrir mig eru góðir, því það er ekki auðvelt að flytja þessa tónlist. En nú vilja góðir hljóðfæraleikarar takast á við verkin mín, sú var ekki raunin fyrir um þremur áratugum þegar enginn vildi snerta á þeim. Nú er fólk farið að þekkja þau áður en það byrjar að leika og sífellt fleiri bætast í þann hóp … En heyrðu,“ segir Glass skyndilega. „Ég á ungan vin, tónskáld, sem er mikið á Íslandi. Nico Muhly heitir hann og hefur árum saman dásamað landið ykkar í mín eyru. Þetta verð- ur mín fyrsta heimsókn til Íslands og loksins gat ég sagt honum að ég væri á leið til uppá- haldslandsins hans.“ Samdi þær fyrstu til að æfa sig Tónlistarfræðingar segja að hver etýða Glass hafi sitt þema en saman myndi þær áhrifa- ríka heild. Hugsaði hann þær þannig? Glass hikar. „Í rauninni veit ég ekkert hvað ég var að hugsa!“ segir hann síðan og hlær. „En í byrjun var ég að hugsa um að bæta tækni mína í píanóleik. Verkin sem píanóleik- arar fá í hendur að æfa sig á eru ekki alltaf örvandi eða góð tónlist, kannski góð fyrir fingurna en ekki endilega fyrir heilann eða hjartað. Ég var að spila mikið á þeim tíma og ákvað, þar sem ég þyrfti að halda mér í formi í píanóleiknum, að skrifa verk sem höfðuðu til mín sjálfs. Sú var hugsunin að baki fyrstu fimm eða sex og það virkaði. Á þessum tíma, á tíunda áratugnum, lék ég þær fyrstu op- inberlega og get fullyrt að mér fór fram. En upp úr því fór ég að hugsa um þessi verk á annan hátt, fór að sjá þetta sem röð eða hring sem öðlaðist eigið líf og form. Ég vissi engu að síður ekki hvert það myndi leiða mig. Um 2002 náði ég að komast upp í etýðu núm- er 16 en þar hætti ég. Ég var upptekinn við óperur og sinfóníur en samt hugsaði ég alltaf um að ljúka þessum píanóverkum. Að lokum fékk ég pöntun frá tónlistarhátíð í Perth í Ástralíu, um að ljúka við seríuna. Þegar ég reyndi að byrja á þeirri 17. fannst mér að ég ætti að muna eitthvað sem tengdist henni en gat ekki munað hvað. Þetta sótti svo á mig að ég fór að leita í nótunum mínum, fannst að ég ætti jafnvel stef að nota, og rakst þá á verk sem ég hafði samið við ljóð eftir Allen Ginsberg. Á horninu á því stóð talan 17 og nótur með. Það var stórmerkilegt. Ég hafði leikið þetta verk við ljóðið árum saman en aldrei tekið eftir þessu í honrinu. En nú settist ég niður og lék stefið, þurfti að breyta því svolítið, en þarna var það! Svo samdi ég verk númer 18 og 19 og þurfti þá að takast á við það hvernig ég ætti að ljúka serí- unni. Skyndilega kom það 20. þó til mín, hratt og var að mörgu leyti ólíkt hinum. Þau eru öll sex eða sjö mínútur, það síðasta hins vegar tíu eða ellefu; það myndar ákveðna heild en hverfur svo bara! Ég get ekki lýst því betur, þú verður bara að heyra það … Þá segirðu bara: Já, einmitt, þetta er þá endirinn …“ Hann hlær. Eftir að nýju etýðurnar voru frumfluttar hefur Glass leikið þær allar tuttugu tvisvar sinnum með tveimur öðrum píanóleikurum. Í Mexíkó og Lundúnum. „Þessi verk eru að byrja að taka meiri tíma á tónleikadagskránni hjá mér og verða fyrirferðarmikil á henni næstu tvö árin,“ segir hann. „Það verður tals- verður viðburður þegar þau verða frumflutt hér í New York í desember, þá verða tvennir tónleikar, tíu etýður hvort kvöld, og átta pí- anóleikarar leika með mér. Það verður eig- inlega lítil píanóhátíð! Þá er ég að verða búinn að fara yfir nót- urnar og þær fara að koma út. Auðvitað munu menn leika verkin á sinn hátt, og engir tveir eins, en fyrsta útgáfan verður engu að síður eins og ég leik þau sjálfur. Hvað gerist með þau eftir það kemur mér ekki við …“ Ný tónlist alla daga Glass segist alltaf njóta þess að leika á píanó- ið. Það var þó ekki fyrsta hljóðfærið hans. „Nei, sem strákur lærði ég á flautu og fór frekar seint að spila á píanó. Foreldrar mínir höfðu aðeins ráð á að láta hvert barn læra á eitt hljóðfæri og bróðir minn lærði á píanó. Kennarinn kom heim að segja honum til og ég sat í herberginu mínu á meðan, en þegar kennarinn var farinn hljóp ég að píanóinu og lék æfingarnar sem hann setti bróður mínum fyrir. Þá elti bróðir minn mig um stofuna, því honum fannst ég vera að stela tónlistinni frá honum, sem var líklega rétt. En hann varð ekki tónlistarmaður heldur ég. Ég byrjaði því að leika aðeins á píanó á þessum tíma en fimmtán ára var ég farinn að leika af alvöru á píanóið. Ég hélt áfram að leika á flautu þar til ég varð þrítugur en þá hófst tónleikaferill minn á píanóið. Síðan hef ég haldið mig við það.“ Foreldrar Glass voru gyðingar, innflytj- endur frá Litháen, og þau studdu soninn við tónlistarnámið en jafnframt lærði hann heim- speki og stærðfræði í háskóla. Síðan lagði hann stund á tónlistarnám við Juilliard- tónlistarskólann í New York og tók að vekja athygli og hreppa virt verðlaun fyrir tón- smíðar. Hann hefur samið allrahanda verk en margir halda upp á píanóverkin hans. Til dæmis Metamorphosis-röðina og Mad Rush. Nálgast hann þau með öðrum hætti en viða- meiri hljómsveitarverk? „Vissulega eru verkin ólík, samin fyrir pí- anóið eitt eða hljómsveit, en mörg tónskáld hafa tekið píanóið mjög alvarlega. Debussy og Beethoven eru góð dæmi um það. Þeir sömdu mikið af hljómsveitartónlist, allrahanda verk, og ég vil ekki bera mig saman við þá að öðru leyti en því að ég deili þessu vinnulagi með þeim. Píanóið varð mikilvægt fyrir mig og pí- anótónlist þeirra Beethoven og Debussy – og ég dái þá báða – er með því besta sem þeir sömdu. Það er auðséð hvers vegna; ef þú ert með píanó í húsinu geturðu sest niður hvenær sem er og leikið á það! Sjálfur byrja ég dag- inn á því að leika þá tónlist sem ég er að vinna að. Ég reyni líka alltaf að finna tíma seinnipart dags til að æfa mig, en ef ég finn hann ekki þá hef ég þó alltaf leikið tónlist einu sinni þann daginn á píanóið. Suma daga á ég erfitt með að finna tíma til að koma öllu í verk sem mér finnst ég þurfa að gera, en það er ekki hægt að láta píanóið eiga sig. Ef þú skilur fugl, hund eða plöntu eftir heima PHILIP GLASS KEMUR FRAM Í HÖRPU ÁSAMT MAKI NAMEKAWA OG VÍKINGI HEIÐARI ÓLAFSSYNI „Það er ekki hægt að láta píanóið eiga sig“ PHILIP GLASS ER EITT ÁHRIFAMESTA TÓNSKÁLD SÍÐUSTU HÁLFRAR ALDAR. ÞAU GLASS, VÍKINGUR HEIÐAR OG MAKI NAMEKAWA MUNU FLYTJA HINAR TUTTUGU ETÝÐUR HANS Í HÖRPU 28. JANÚAR OG PÍANÓIÐ STENDUR HINU FJÖLHÆFA TÓNSKÁLDI NÆRRI. „EF ÞÚ SKILUR FUGL, HUND EÐA PLÖNTU EFTIR HEIMA HJÁ ÞÉR ÁN ÞESS AÐ SINNA ÞEIM ÞÁ DREPAST ÞAU HREINLEGA. ÞANNIG ER ÞAÐ LÍKA MEÐ PÍANÓLEIK,“ SEGIR HANN. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is * „… nú vilja góðirhljóðfæraleikarartakast á við verkin mín, sú var ekki raunin fyrir um þremur áratugum þegar enginn vildi snerta á þeim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.