Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
Blásarakvintett Reykjavíkur hefur nýja árið í
15:15-tónleikasyrpunni í Norræna húsinu
með tónleikum á sunnudag klukkan 15.15.
Yfirskrift tónleika kvintettsins er „Kvint-
ettar englanna“. Á efnisskránni eru verk eft-
ir þrjú ólík ensk tónskáld; George Onslow
(1784-1852), Gustav Holst (1874-1934) og
Malcolm Arnold (1921-2006); kvintettar
eftir þá fyrrnefndu og „Þrír sjóarasöngvar“
eftir Arnold. Blásarakvintett Reykjavíkur
skipa nú þau Hallfríður Ólafsdóttir á flautu,
Daði Kolbeinsson á óbó, Einar Jóhannesson
klarínettu, Jósef Ognibene horn og Darri
Mikaelsson á fagott.
KVINTETTAR ENGLANNA
BLÁSARAVERK
Blásarakvintett Reykjavíkur. Á efnisskrá tón-
leikanna eru verk eftir ólík ensk tónskáld.
Myndlistarmaðurinn Kristbergur Pétursson
við eitt verkanna á sýningunni í Anarkíu.
Kristbergur Ó. Pétursson myndlistarmaður
opnar sýningu á málverkum í Anarkía listasal
í Kópavogi í dag, laugardag, klukkan 15.
Innblásturinn við vinnuna að þessum nýju
verkum hefur Kristbergur sótt í sitt nánasta
umhverfi í hrauninu í Hafnarfirði og hefur
það orðið honum úrvinnsluefni til mynd-
rænna hugleiðinga og skírskotana.
Kristbergur lauk námi við MHÍ árið 1983
og framhaldsnáami í Hollandi 1988. Hann
hefur síðan haldið allmargar sýningar á verk-
um sínum og tekið þátt í samsýningum.
Anarkía er í Hamraborg 3, norðanmegin,
og er sýningin opin alla daga nema mánudaga
kl. 15-18.
KRISTBERGUR Í ANARKÍU
SÆKIR Í HRAUNIÐ
Myndlistarkonan Jeann-
ette Castioni opnar á
laugardag klukkan 16 sýn-
ingu sem hún kallar „To-
ols“ í gallerí Úthverfu á
Ísafirði, í samstarfi við Ed-
inborg Menningar-
miðstöð. Jeannette er
fædd í Veróna á Ítalíu, hef-
ur verið búsett á Íslandi í
fjölda ára en undanfarin ár
hefur hún verið við framhaldsnám í Lund-
únum. Hún nam áður forvörslu og myndlist á
Ítalíu og útskrifaðist frá myndlistardeild LHÍ
árið 2006. Hún var tilnefnd „Spíra ársins
2012“ af Sjónlistamiðstöðinni á Akureyri.
Í verkum sínum nýtir Jeanette gjarnan sinn
klassíska bakgrunn í myndlist og á í persónu-
legri rökræðu við samtímann, þar sem oft
koma inn menningarlegar eða félagslegar efa-
semdir. Síðustu ár hefur hún aðallega unnið
með vídeómiðilinn í verkum sínum.
JEANNETTE Í ÚTHVERFU
TOOLS Á ÍSAFIRÐI
Jeannette
Castioni
Menning
Ég hlakka mikið til að heimsækja fallegalandið ykkar, það hefur mikið veriðdásamað í mín eyru,“ segir bandaríska
tónskáldið og píanóleikarinn Philip Glass.
Hann kemur fram í Eldborgarsal Hörpu
þriðjudagskvöldið 28. janúar ásamt píanóleik-
urunum Maki Namekawa frá Japan og Vík-
ingi Heiðari Ólafssyni. Þau leika allar tuttugu
Etýðurnar eftir Glass, píanóverk sem hann
hóf að semja fyrir rúmum tveimur áratugum
og lauk við fyrir rúmu ári.
Glass er eitt merkasta tónskáld síðustu
hálfrar aldar. Hann er nú orðinn 76 ára gam-
all og slær ekkert af; á síðasta áratug hefur
hann sent frá sér nokkrar óperur, sinfóníur,
konserta og kammermúsík, auk þess að
semja tónlist við margar kvikmyndir. Þá
kemur hann reglulega fram sem píanóleikari.
Glass er einn kunnasti forvígismaður þeirr-
ar stefnu sem oft er kölluð mínimalismi í tón-
list, þótt hann hafi viljað halda sér fjarri slík-
um skilgreiningum, tali frekar um sig sem
„höfund tónlistar með endurtekinni hrynj-
andi“ og að hann sé í raun klassískt tónskáld.
Og hingað kemur hann til að leika fyrir tón-
leikagesti á slaghörpuna.
„Það tók mig miklu mun lengri tíma að
semja þessi verk, Etýðurnar, en ég ætlaði,“
segir Glass þegar slegið er á þráðinn til hans
í New York. „Ég byrjaði að semja þær fyrir
tuttugu árum, 1991. Þá var ég á sextugsaldri
og hugsaði mér að ljúka þeim á nokkrum ár-
um svo ég gæti í kjölfarið lært verkin og flutt
þau sjálfur. En sú varð ekki raunin. Ég náði
að semja sextán en svo hægði ég á mér, fest-
ist í að semja óperur og sinfóníur, en ég lauk
loks við þær í desember 2012.“
Glass þagnar og bætir svo við að það sé í
sjálfu sér áhugavert hvað verkið tók hann
langan tíma, nú gefi etýðurnar nefnilega góða
mynd af því hvernig tónsmíðar hans hafi
þróast á þessu árabili. „Og fyrir vikið hafa
þær orðið mun mikilvægari en ég hugði upp-
haflega.
En þessi verk hafa einnig skapað ný vanda-
mál því nú þarf ég að læra alla þessa tónlist,“
segir hann og hlær. „Ég kann þegar tólf eða
þrettán af þeim en sex eða sjö kann ég ekki.
Það tekur tíma að læra ný verk og þar sem
ég er upptekin við að semja önnur ný, þá
fékk ég þá hugmynd að bjóða öðrum píanó-
leikurum að taka þátt í flutningnum með mér.
Maki Namekawa er afskaplega góður píanó-
leikari sem hefur leikið önnur verk eftir mig,
hún kemur fram á öllum tónleikunum með
mér, en síðan bjóðum við einum heimamanni
að koma fram með okkur á hverjum stað.
Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar: Ég fæ að
kynnast nýjum hljóðfæraleikurum, fleiri
munu læra tónlistina mína og svo byggjum
við smám saman upp net spilara sem tengj-
ast.“
Þessi háttur var hafður á á tónlistarhátíð-
inni í Perth í Ástralíu fyrir tæpu ári, þegar
síðustu fjórar etýðurnar voru frumfluttar í til-
efni af 75 ára afmæli Glass.
„Það er afar ánægjulegt hvað píanóleik-
ararnir sem hafa verið fundnir fyrir mig eru
góðir, því það er ekki auðvelt að flytja þessa
tónlist. En nú vilja góðir hljóðfæraleikarar
takast á við verkin mín, sú var ekki raunin
fyrir um þremur áratugum þegar enginn vildi
snerta á þeim. Nú er fólk farið að þekkja þau
áður en það byrjar að leika og sífellt fleiri
bætast í þann hóp …
En heyrðu,“ segir Glass skyndilega. „Ég á
ungan vin, tónskáld, sem er mikið á Íslandi.
Nico Muhly heitir hann og hefur árum saman
dásamað landið ykkar í mín eyru. Þetta verð-
ur mín fyrsta heimsókn til Íslands og loksins
gat ég sagt honum að ég væri á leið til uppá-
haldslandsins hans.“
Samdi þær fyrstu til að æfa sig
Tónlistarfræðingar segja að hver etýða Glass
hafi sitt þema en saman myndi þær áhrifa-
ríka heild. Hugsaði hann þær þannig?
Glass hikar. „Í rauninni veit ég ekkert hvað
ég var að hugsa!“ segir hann síðan og hlær.
„En í byrjun var ég að hugsa um að bæta
tækni mína í píanóleik. Verkin sem píanóleik-
arar fá í hendur að æfa sig á eru ekki alltaf
örvandi eða góð tónlist, kannski góð fyrir
fingurna en ekki endilega fyrir heilann eða
hjartað. Ég var að spila mikið á þeim tíma og
ákvað, þar sem ég þyrfti að halda mér í formi
í píanóleiknum, að skrifa verk sem höfðuðu til
mín sjálfs. Sú var hugsunin að baki fyrstu
fimm eða sex og það virkaði. Á þessum tíma,
á tíunda áratugnum, lék ég þær fyrstu op-
inberlega og get fullyrt að mér fór fram. En
upp úr því fór ég að hugsa um þessi verk á
annan hátt, fór að sjá þetta sem röð eða
hring sem öðlaðist eigið líf og form. Ég vissi
engu að síður ekki hvert það myndi leiða mig.
Um 2002 náði ég að komast upp í etýðu núm-
er 16 en þar hætti ég. Ég var upptekinn við
óperur og sinfóníur en samt hugsaði ég alltaf
um að ljúka þessum píanóverkum. Að lokum
fékk ég pöntun frá tónlistarhátíð í Perth í
Ástralíu, um að ljúka við seríuna.
Þegar ég reyndi að byrja á þeirri 17.
fannst mér að ég ætti að muna eitthvað sem
tengdist henni en gat ekki munað hvað. Þetta
sótti svo á mig að ég fór að leita í nótunum
mínum, fannst að ég ætti jafnvel stef að nota,
og rakst þá á verk sem ég hafði samið við
ljóð eftir Allen Ginsberg. Á horninu á því stóð
talan 17 og nótur með. Það var stórmerkilegt.
Ég hafði leikið þetta verk við ljóðið árum
saman en aldrei tekið eftir þessu í honrinu.
En nú settist ég niður og lék stefið, þurfti að
breyta því svolítið, en þarna var það! Svo
samdi ég verk númer 18 og 19 og þurfti þá að
takast á við það hvernig ég ætti að ljúka serí-
unni. Skyndilega kom það 20. þó til mín, hratt
og var að mörgu leyti ólíkt hinum. Þau eru öll
sex eða sjö mínútur, það síðasta hins vegar
tíu eða ellefu; það myndar ákveðna heild en
hverfur svo bara! Ég get ekki lýst því betur,
þú verður bara að heyra það … Þá segirðu
bara: Já, einmitt, þetta er þá endirinn …“
Hann hlær.
Eftir að nýju etýðurnar voru frumfluttar
hefur Glass leikið þær allar tuttugu tvisvar
sinnum með tveimur öðrum píanóleikurum. Í
Mexíkó og Lundúnum. „Þessi verk eru að
byrja að taka meiri tíma á tónleikadagskránni
hjá mér og verða fyrirferðarmikil á henni
næstu tvö árin,“ segir hann. „Það verður tals-
verður viðburður þegar þau verða frumflutt
hér í New York í desember, þá verða tvennir
tónleikar, tíu etýður hvort kvöld, og átta pí-
anóleikarar leika með mér. Það verður eig-
inlega lítil píanóhátíð!
Þá er ég að verða búinn að fara yfir nót-
urnar og þær fara að koma út. Auðvitað
munu menn leika verkin á sinn hátt, og engir
tveir eins, en fyrsta útgáfan verður engu að
síður eins og ég leik þau sjálfur. Hvað gerist
með þau eftir það kemur mér ekki við …“
Ný tónlist alla daga
Glass segist alltaf njóta þess að leika á píanó-
ið. Það var þó ekki fyrsta hljóðfærið hans.
„Nei, sem strákur lærði ég á flautu og fór
frekar seint að spila á píanó. Foreldrar mínir
höfðu aðeins ráð á að láta hvert barn læra á
eitt hljóðfæri og bróðir minn lærði á píanó.
Kennarinn kom heim að segja honum til og
ég sat í herberginu mínu á meðan, en þegar
kennarinn var farinn hljóp ég að píanóinu og
lék æfingarnar sem hann setti bróður mínum
fyrir. Þá elti bróðir minn mig um stofuna, því
honum fannst ég vera að stela tónlistinni frá
honum, sem var líklega rétt. En hann varð
ekki tónlistarmaður heldur ég. Ég byrjaði því
að leika aðeins á píanó á þessum tíma en
fimmtán ára var ég farinn að leika af alvöru á
píanóið.
Ég hélt áfram að leika á flautu þar til ég
varð þrítugur en þá hófst tónleikaferill minn
á píanóið. Síðan hef ég haldið mig við það.“
Foreldrar Glass voru gyðingar, innflytj-
endur frá Litháen, og þau studdu soninn við
tónlistarnámið en jafnframt lærði hann heim-
speki og stærðfræði í háskóla. Síðan lagði
hann stund á tónlistarnám við Juilliard-
tónlistarskólann í New York og tók að vekja
athygli og hreppa virt verðlaun fyrir tón-
smíðar. Hann hefur samið allrahanda verk en
margir halda upp á píanóverkin hans. Til
dæmis Metamorphosis-röðina og Mad Rush.
Nálgast hann þau með öðrum hætti en viða-
meiri hljómsveitarverk?
„Vissulega eru verkin ólík, samin fyrir pí-
anóið eitt eða hljómsveit, en mörg tónskáld
hafa tekið píanóið mjög alvarlega. Debussy og
Beethoven eru góð dæmi um það. Þeir sömdu
mikið af hljómsveitartónlist, allrahanda verk,
og ég vil ekki bera mig saman við þá að öðru
leyti en því að ég deili þessu vinnulagi með
þeim. Píanóið varð mikilvægt fyrir mig og pí-
anótónlist þeirra Beethoven og Debussy – og
ég dái þá báða – er með því besta sem þeir
sömdu. Það er auðséð hvers vegna; ef þú ert
með píanó í húsinu geturðu sest niður hvenær
sem er og leikið á það! Sjálfur byrja ég dag-
inn á því að leika þá tónlist sem ég er að
vinna að. Ég reyni líka alltaf að finna tíma
seinnipart dags til að æfa mig, en ef ég finn
hann ekki þá hef ég þó alltaf leikið tónlist
einu sinni þann daginn á píanóið. Suma daga
á ég erfitt með að finna tíma til að koma öllu
í verk sem mér finnst ég þurfa að gera, en
það er ekki hægt að láta píanóið eiga sig. Ef
þú skilur fugl, hund eða plöntu eftir heima
PHILIP GLASS KEMUR FRAM Í HÖRPU ÁSAMT MAKI NAMEKAWA OG VÍKINGI HEIÐARI ÓLAFSSYNI
„Það er ekki hægt að
láta píanóið eiga sig“
PHILIP GLASS ER EITT ÁHRIFAMESTA TÓNSKÁLD SÍÐUSTU HÁLFRAR ALDAR. ÞAU GLASS, VÍKINGUR HEIÐAR OG
MAKI NAMEKAWA MUNU FLYTJA HINAR TUTTUGU ETÝÐUR HANS Í HÖRPU 28. JANÚAR OG PÍANÓIÐ STENDUR
HINU FJÖLHÆFA TÓNSKÁLDI NÆRRI. „EF ÞÚ SKILUR FUGL, HUND EÐA PLÖNTU EFTIR HEIMA HJÁ ÞÉR ÁN ÞESS
AÐ SINNA ÞEIM ÞÁ DREPAST ÞAU HREINLEGA. ÞANNIG ER ÞAÐ LÍKA MEÐ PÍANÓLEIK,“ SEGIR HANN.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
* „… nú vilja góðirhljóðfæraleikarartakast á við verkin mín,
sú var ekki raunin fyrir
um þremur áratugum
þegar enginn vildi snerta
á þeim.