Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Blaðsíða 26
Dagatalið fengu Bergþóra og Ásgeir í Saltfélaginu en krí-
urnar á veggnum eru úr Hrími.
V
ið hugsum mikið um birtuna á heimilinu, okkur
finnst mikilvægt að geta stjórnað henni og reynum
því að hafa mikið af lömpum og ljósum sem við
getum kveikt og slökkt á eins og hentar og eftir
því hvaða árstíð er,“ segir Bergþóra. Ásgeir hefur fengið
þónokkuð af tekkhúsgögnum í arf og gæta Bergþóra og Ás-
geir þess að blanda saman húsgögnum úr ólíkum áttum svo
heimilið verði sem hlýlegast. Það er opið á milli stofu og
eldhúss og hefur stofan orðið að ákveðnum kjarna heimilis-
ins en parið hefur eytt mestum tíma í að breyta henni og
bæta. „Yfir sófanum er svo stór leslampi en mér finnst
mjög kósí að hjúfra mig þar með bók eða yfir sjónvarpinu
á kvöldin,“ segir Bergþóra.
Bergþóra Góa, sem hefur lokið BA-námi í arkitektúr, seg-
ir hönnun, myndlist og arkitektúr sín helstu áhugamál. „Ég
geri mikið af því að skoða hönnunarblogg og -tímarit og
get alveg dottið inn í það að skoða falleg rými tímunum
saman.“
Morgunblaðið/Þórður
Falleg uppröðun á myndahillu. Verkið til vinstri er eftir
Kristinu Krogh en skordýramyndirnar eru frá París.
Kisan Bella nýtur sín í glugganum meðal hönnunarmuna.
Stofan kjarni heimilisins
BERGÞÓRA GÓA KVARAN ARKITEKTANEMI OG ÁSGEIR MÁR ÓLAFSSON SÉRKENNARI EIGA
FALLEGA ÍBÚÐ Á GRETTISGÖTU. BERGÞÓRA OG ÁSGEIR LEGGJA MIKINN METNAÐ Í HEIMILIÐ
ENDA HÖNNUN OG ARKITEKTÚR ÞEIRRA HELSTA ÁHUGAMÁL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
* „Ég geri mikið af því að skoða hönnunarbloggog -tímarit og get alveg dottið inn í það að skoða
falleg rými tímunum saman.“
MIKILVÆGT AÐ GETA STJÓRNAÐ BIRTUNNI
Á sófanum hvílir sels-
hamur frá Vík Prjóns-
dóttur en bláa ljósið er
frá Pantone.
Fallegu tekkhúsgögnin fékk Ásgeir Már í arf.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
Heimili og hönnun