Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
HEIMURINN
sem bar sprengjubelti.Talið er að Hasan
hafi með hugrekki sínu bjargað hundruðum
nemenda í skólanum sínum.
JAPAN
TÓKÝO
Kínverjar saka
nú Japana
Christie er vissulega maður
athafna en ekki orðagjálfurs,
þannig ímynd hefur hann
reynt að skapa. En hann seg-
ist nú hljóta að velta því fyrir
sér hvort eitthvað í hans eigin
stjórnunarstíl hafi ýtt undir
óheilbrigð vinnubrögð undir-
manna.
Keppinautar hans hafa oft
sagt að hann sé hefnigjarn
ruddi. Eitt sinn hellti hann sér
yfir kennara og lét síðan birta
atvikið á YouTube. Þótt kenn-
arar séu umdeildir (og
styðji nær allir demó-
krata) er þetta
óvenjulega framlag
Christies víða gagn-
rýnt.
E
r hann ótíndur, hefni-
gjarn ruddi, í stíl við
Richard heitinn Nixon í
sínum versta ham?
Þetta er spurning sem
fjöldi Bandaríkjamanna spyr sig
núna vegna „Bridgegate“, deil-
unnar um þátt Chris Christie, rík-
isstjóra í New Jersey og líklegs
forsetaefnis repúblikana 2016, í því
að lokað var fyrir umferð um ein-
hverja fjölförnustu brú heims í
nokkra daga í september sl. And-
stæðingar Christie segja málið
hneyksli. Um hefndarráðstöfun hafi
verið að ræða, ekki þátt í umferð-
arrannsókn, eins og fullyrt var af
hálfu starfsmanna Christie. Rík-
isstjórinn hafi viljað refsa borg-
arstjóranum í Fort Lee, Mark
Sokolich, sem er demókrati, fyrir
að styðja ekki Christie fyrir síð-
ustu ríkisstjórakosningar í fyrra.
Lokunin olli ringulreið, börn
komust ekki skólann og bráðaliðar
ekki á vettvang til að hlynna að
sjúkum. Christie hefur nú rekið
einn nánasta ráðgjafa sinn, konu
sem ljóst er af tölvuskeytum að
skipulagði ásamt fleira fólki lok-
unina til að klekkja á Sokolich.
Segir Christie hana hafa gert sig
seka um „makalausa heimsku“, hún
hafi einnig skrökvað að sér. Hann
sé núna fyrst og fremst afar
hryggur, reiðin eigi vafalaust eftir
að koma yfir sig síðar.
„Þetta er mjög vandræðalegt og
mér finnst ég hafa verið auðmýkt-
ur með hegðun nokkurra starfs-
manna minna,“ sagði ríkisstjórinn
á blaðamannafundi. „En þegar öllu
er á botninn hvolft er ég ábyrgur
fyrir því sem gerist á minni vakt.“
Hann segist ekkert hafa komið að
málinu og vera óhræddur við boð-
aða rannsókn þingsins í New Jer-
sey, þar sem demókratar hafa
meirhluta, og dómsmálaráðuneyt-
isins í Washington. En margir
spyrja hvort Christie hafi enga
stjórn á sínu eigin fólki, láti það
leika lausum hala, hvort honum sé
treystandi til að stýra sjálfu risa-
veldinu ef nánustu ráðgjafar hans
séu jafn dómgreindarlausir og raun
ber vitni.
Einn þekktasti andstæðingur
hans meðal repúblikana, sjónvarps-
maðurinn og ofurhægrisinninn
Glenn Beck, hefur þegar gripið þá
gagnrýni á lofti. Eitt af því sem
Beck og fleiri hægrimenn finna
Christie til foráttu er að hann
skyldi opinberlega hrósa Barack
Obama forseta fyrir snörp við-
brögð forsetans við fellibyln-
um Sandy sem herjaði á
New Jersey 2012.
Reyndar þótti
Christie sjálfur sýna einstaka rögg-
semi og dugnað við þær aðstæður.
Ein helsta von repúblikana
Möguleikar repúblikana ættu að
vera miklir 2016; Obama hefur
brugðist væntingum fjölmargra og
efnahagsbatinn virðist vera ákaf-
lega brothættur. En margt getur
kollvarpað spádómum.
Christie, sem er 51 árs lögfræð-
ingur, hefur í könnunum síðustu
mánuði þótt líklegur til að sigra
líklegan forsetaframbjóðanda
demókrata, Hillary Clinton, 2016
og verið með ívið meira fylgi í
sumum könnunum. Hann var fyrst
kjörinn ríkisstjóri árið 2000 og hef-
ur að mati flestra staðið sig prýði-
lega, skilaði m.a. hallalausum fjár-
lögum án umtalsverðra
skattahækkana, náði samkomulagi
við demókrata á þingi 2011 um rót-
tækar endurbætur á lífeyriskerfi
opinberra starfsmanna.
Hann hefur höfðað ágætlega til
kjósenda á miðjunni og fékk um
60% atkvæða í fyrra. Ekki skiptir
minna máli að hann hefur umtals-
verðan stuðning meðal fólks með
rætur í Rómönsku Ameríku og hjá
blökkumönnum en þessir tveir
kjósendahópar styðja að jafnaði
demókrata.
En stjórnmálaskýrendur eru
sammála um að komi eitthvað í ljós
sem bendli hann beinlínis við
Bridgegate geti hann kvatt alla
drauma um forsetaembættið. Og
sporhundar demókrata hafa nú
fundið blóðþef, kanna allar sögu-
sagnir og reyna af kappi að finna
eitthvað sem geti eflt þá ímynd að
Christie svífist einskis, sé ekki
bara góðlátlegur, holdugur og oft
hrífandi bangsi heldur hættulegur
maður. Skýringin á því að hann
hafi oft náð miklum árangri sé ein-
mitt að hann beiti vafasömum að-
ferðum í stjórnmálum.
Bangsi
grunaður
um græsku
CHRIS CHRISTIE, RÍKISSTJÓRI Í NEW JERSEY, ER ALÞÝÐLEGUR
MAÐUR OG Á AUÐVELT MEÐ AÐ TJÁ SIG SKÝRT OG
SKORINORT. EN NÚ ER SAUMAÐ AÐ HONUM VEGNA
HNEYKSLIS SEM KALLAÐ ER BRIDGEGATE.
HEFNIGJARN RUDDI?
Chris Christie á leið til fundar við Mark Sokolich, borgarstjóra Fort Lee í New Jersey, til að biðjast afsökunar á því að
starfsmenn ríkisstjórans skyldu láta loka þrem akreinum á George Washington-brúnni yfir til New York í september sl.
AFP
* Ef ekki kemur upp einhver sterk vísbending um að hannhafi skipulagt þetta og önnur mál koma ekki upp getur hannhaldið ótrauður áfram.
David Axelrod, fyrrverandi ráðgjafi Baracks Obama.
Alþjóðamál
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is