Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Side 8
„Ég átti ekki von á því þegar ég horfði á Kiss í
Reiðhöllinni 1988 að ég myndi einhvern tím-
ann spila með einum af meðlimum bandsins,“
segir Þráinn Árni Baldvinsson, meðlimur í ís-
lenska KISS heiðursbandinu MEIK.
Bruce Kulick, fyrrverandi gítarleikari
KISS, kemur til landsins nú í lok janúar og
spilar með MEIK. Tónleikarnir verða á Spot í
Kópavogi föstudaginn 31. janúar.
Bruce Kulick gekk til liðs við KISS 1984 og
var hann meðlimur allt til ársins 1996 þegar
upprunalegir meðlimir KISS komu saman aft-
ur. „Það er mikil tilhlökkun að spila með hon-
um – alveg voðaleg,“ segir Þráinn en ásamt
honum eru þeir Magni Ásgeirsson, Einar Þór
Jóhannsson, Jón Elvar Hafsteinsson, Eiður
Arnarsson og Jóhann Hjörleifsson í hljóm-
sveitinni.
Bruce Kulick, Gene Simmons, og Paul Stanley á
Animalize-túrnum 1985.
Kulick spilar með Meik
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
Fyrir áramótin fluttu fjölmiðlar fréttir af þvíað ýmsir landeigendur og sveitarstjórn-armenn væru farnir að ókyrrast yfir því að
geta ekki byrjað að rukka fólk fyrir að njóta nátt-
úrunnar. Seljalandsfoss og Skógafoss voru nefnd-
ir í þessu sambandi. Ekkert hef ég við það að at-
huga að greiða gjald fyrir að nýta aðstöðu og
þjónustu við ferðamannastaði. Sums staðar hefur
tekist vel til við þjónustustöðvar, til dæmis við
Geysi í Haukadal. Margoft hef ég komið þangað
með erlenda gesti og í sumum tilvikum hópa og
snætt þar málsverð. Ráðstefnu hef ég setið við
Geysi í tvígang við mikla ánægju þátttakenda.
Þó þarf að fara varlega í þessu efni og forðast
ókosti og öfgar markaðsvæðingar og sölu-
mennsku við ferðamannastaði. Hrikaleg dæmi
fyrirfinnast erlendis um skrumskælingu á nátt-
úruperlum og sögulegum minjum.
Fyrir skömmu reistu eigendur Kersins í Gríms-
nesi rukkunarskúr með tilheyrandi sjóðvélum við
þessa „eign“ sína. Þess er nú farið á leit að allir
sem vilja skoða eldgíginn greiði eigendunum gjald
fyrir. Í bókhaldi má eflaust til sanns vegar færa að
Kerið sé í einkaeign sem landspilda, en sem nátt-
úruperla er Kerið hins vegar okkar allra. Það á
einnig við um aðrar náttúrugersemar.
Fyrir nokkru skrifaði landeigandi á norð-
austurhorninu, sem segist eiga Dettifoss, grein í
Morgunblaðið þar sem hann kveðst vilja fá leyfi til
að rukka fyrir aðgang að sinni náttúruperlu.
Hann nefnir náttúruperlur „sem gætu staðið und-
ir og séð um gjaldtöku … til dæmis Geysir, Kerið,
Jökulsárlón, Dyrhólaey, Reynisfjörur, Dettifoss/
Selfoss, Leirhnjúkasvæðið, hverir Námafjalls,
Gjástykki, Gullfoss og Dimmuborgir, o.fl, o.fl.“
Landeigandinn sér fyrir sér að öryrkjar og
börn fengju að skoða Dettifoss og Gullfoss ókeyp-
is en að gjaldtakan verði „undir stjórn þeirra sem
hafa umráðaréttinn á svæðinu og þeir skuli ráða
því hvað gert verður til uppbyggingar og vernd-
unar náttúrunnar“.
Í þeim dæmum sem hér eru nefnd skilur annars
vegar á milli atvinnustarfsemi ásamt þjónustu,
sem ég hygg að fáir andmæli að greitt sé fyrir, og
hins vegar þegar fegurð náttúrunnar er gerð að
söluvöru. Þá held ég líka að almennt sé ríkjandi
skilningur á því að verja þurfi umhverfið við fjöl-
farna ferðamannastaði og hlúa vel að því.
En það kostar peninga. Skiptar skoðanir eru
um það hvernig þeirra skuli aflað. Gjald á komu
ferðamanna til landsins er að mínu mati vel fallið
til að láta renna í slíkar framkvæmdir. Það gjald
yrði greitt án tillits til þjóðernis enda greiddu Ís-
lendingar, sem væru í förum til og frá landinu,
gjaldið ekkert síður en útlendingar. Þetta þyrfti
ekki að vera hátt gjald til að skipta máli.
Við þurfum að taka þessa umræðu alvarlega.
Núverandi ferðamálaráðherra er hlynnt gjald-
töku en hefur ekki tjáð sig endanlega um hvert
form skuli vera á henni. Vill hún rukka í Leifsstöð
og láta þannig greiða almennt gjald til stígagerðar
og annarrar aðstöðu? Eða vill Ragnheiður Elín
Árnadóttir, ferðamálaráðherra, rukka nemendur í
framhaldsskólaferðalaginu fyrir að koma í Land-
mannalaugar og vill hún heimila landeigendum að
rukka við Dettifoss og Seljalandsfoss?
Og þegar á annað borð verður byrjað að krefj-
ast aðgangseyris að sköpunarverkinu, hvar endar
sú gjaldtaka? Loftslagskvótar, með markaðs-
væðingu andrúmsloftsins, eru kannski vísbending
um það sem koma skal. Mun einhver „eignast“
leyfi til að rukka okkur fyrir að draga andann?
Rukkað fyrir að draga andann?
*Hrikaleg dæmi fyrir-finnast erlendis umskrumskælingu á náttúruperl-
um og sögulegum minjum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Nokkrar þekktar
teiknimynda-
persónur fá aðeins
að hylja efri hluta
líkamans, sem
myndi þykja und-
arlegt í raunveruleikanum. Bragi
Valdimar Skúlason, þáttastjórn-
andi og Baggalútur, veltir fyrir sér:
„Flokkast náungar eins og Andrés
önd og Bangsímon sem núdistar
eða einhvers konar klæðafíklar?“
Ekki stóð á svörum.
Stefán Páls-
son sagnfræðingur
varð vitni að sér-
stöku skjalli á dög-
unum. „Varð vitni
að því að manni
væri líkt við „nasista-Elvis“. Og það
var meint sem hrós.“ Björn Bragi
Arnarsson sjónvarpsmaður steig
fram og viðurkenndi að hann væri
umræddur nasista-Elvis. „Jú mikið
rétt, ég var kallaður nasista-Elvis
fyrr í dag. Á einhvern undarlegan
hátt leið mér vel með það.“
Hjörtur Hjartarson, knatt-
spyrnukappi og fréttamaður á Stöð
2, tilkynnti að hann myndi ljúka sín-
um ferli á Akranesi með uppeldis-
félaginu sínu, ÍA. „Þá er það frá-
gengið! Endastöðin á frábæru
fótboltaferðalagi verður hjá mínu
ástkæra félagi uppi á Skaga. Mun
leggja mitt af mörkum til að ÍA
staldri ósköp stutt við í 1. deildinni.
Töluverð rómantík í því að loka
hringnum á Akranesi þar sem þetta
byrjaði nú allt saman. Ekki verra að
Gulli minn Jónsson stýri mér síð-
ustu metrana.“ Margir óska Hirti til
hamingju með félagaskiptin, meðal
annars Bogi Ágústsson, KR-ingur
og fréttamaður á RÚV. „Mér finnst
ekki nein almennileg efsta deild
þegar Skaginn er fjarri.“
Karen Kjart-
ansdóttir, fyrr-
verandi frétta-
maður og nú
upplýsingafulltrúi
LÍÚ, deildi með
sínum fésbókarvinum hugleiðingum
um frumlegan kvöldverð í vikunni:
„Mér er núna fyrirmunað að skilja
hvers vegna mér fannst góð hug-
mynd að fá mér tvær dósir af sard-
ínum og dós af kókosjógúrt í kvöld-
verð.“
AF NETINU
Kvikmynda- og sjónvarpsveitan Netflix undirbýr
nú sjónvarpsþáttaröð sem kallast Sense 8. Þætt-
irnir verða 10 talsins og munu þeir segja sögu
átta einstaklinga. Einn þátturinn mun fjalla um
íslenska partístelpu í Chicago. Einnig verða
sagðar sögur af afrískum rútubílstjóra, kóreskri
viðskiptakonu og fimm öðrum. Sögur þeirra
munu svo tengjast í lokaþættinum. Mikil leynd er
yfir þáttunum sem verða gerðir af
Wachowskis-systkinunum, Lönu og Andy, en
þau slógu í gegn með Matrix-þríleiknum.
Netflix gerði þáttaröðina vinsælu House of
Cards eða Spilaborg með Kevin Spacey en önnur
þáttaröð verður frumsýnd á árinu.
Íslensk sögu-
hetja í Netflix-
þáttum
Eftirvænting ríkir jafnan þegar Andy og Lana
Wachowski senda frá sér nýtt efni.
AFP
Vettvangur