Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Golli
Margrét Gylfadóttir,
Sigurveig Káradóttir
og Sigurrós Páls-
dóttir hittust í há-
degi einu í vikunni á
heimili Sigurveigar.
12.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
900 g tómatar
400 g gúrka
300 g rauð paprika
1-2 hvítlauksrif
30-50 ml sérríedik/
hvítvínsedik
150 ml góð ólífuolía
100 g dagsgamalt brauð
án skorpu
sjávarsalt
svartur pipar
hvítur pipar
Byrjið á því að skræla gúrk-
urnar og passið vel að brauð-
ið sé þurrt og skorpulaust.
Ef það er ekki dagsgamalt,
má stinga því í volgan ofn í
smástund til að gera það hart.
Það er best að skera allt
saman í litla bita – bæði græn-
meti og brauð, setja saman í
skál og blanda vel. Hellið hluta
af ólífuolíunni saman við
ásamt dálitlu ediki og örlitlu
salti.
Leyfið þessu að blandast vel
saman þar til brauðið er orðið
mjúkt og bíðið þar til allt hef-
ur náð stofuhita.
Maukað í litlum skömmtum
og passað að allt maukist vel
saman.
Súpuna þarf að kæla vel áð-
ur en hún er borin fram.
Ef vill, má skera gúrkur,
tómata eða papriku mjög
smátt og bera fram í skálum
með súpunni.
Eins eru brauðteningar góð
viðbót. Svo getur hver og einn
bætt því við sem hann vill.
Gazpacho
HUNANGSSÍRÓP:
200 g hunang
2 appelsínur, safi og smátt rifinn
börkur
6-7 heilar kardimommur
1 vanillustöng
Hunang, appelsínusafi og börkur er
sett saman í pott ásamt kardimomm-
um og vanillu.
Kardimommurnar eru opnaðar
aðeins til að fræin nái að komast úr
þeim og gefa bragð, en hafðar heilar
að öðru leyti. Vanillustöngin skorin
þversum, fræin skafin úr henni og sett
í pottinn ásamt vanillustönginni sjálfri.
Rétt hitað þannig að allt samlagist vel.
Melónur eru formaðar í kúlur með
smjörkúlara eða ískúlara og settar í
skál ásamt granateplafræjunum. Skeið
virkar ekki en þá má líka skera mel-
ónuna í ferninga.
Allur sá safi sem kemur af mel-
ónunum við þetta er jafnframt settur
í skálina með melónukúlunum. Loks
er hunangssírópinu hellt yfir, en þó
ekki fyrr en það er orðið kalt.
Frískandi
melónusalat