Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.01.2014, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.1. 2014
Græjur og tækni
Huawei hefur náð árangri með því að bjóða upp á ódýra síma
og nýtur einnig ört vaxandi heimamarkaðar, en LG hefur aftur á
móti lagt meiri áherslu á tæknilegri síma, vandaðri og, eðlilega,
dýrari.
LG G2 er gott dæmi um það, þó hann sé
ekki dýrari hér á landi en sambærilegir símar;
32 GB G2 kostar 99.990 kr. hjá Nova til að
mynda og það sama hjá Símanum. Það er
ekki hátt verð þegar maður skoðar innvolsið,
fjögurra kjarna 2,2 GHz örgjörvi, 1080 x 1920
díla skjár með ríflega 424 ppi og 13 MP
myndavél með hristivörn svo fátt eitt sé talið.
Síminn fer vel í hendi, heldur þykkari en til
að mynda Samsung Galaxy S4, og virkar
traustbyggður þó hann sé úr plasti. Óvenjulegt
er að hafa hnappa til að kveikja á símanum og
til að hækka og lækka á baki hans, neðan við
myndavélarlinsuna, en þá minnka líkurnar á að
maður reki sig í þá þegar talað er í símann
eða leikir spilaðir.
Stýrikerfið á símanum er Android 4.2.2 Jelly
Bean með LG Optimus notendaskilum, sem
eru prýðileg sem slík.
Slagurinn um besta farsímann er ekki búinn,sem sannast á LG-símanum G2, sem er hraðvirkastiog um leið besti farsími á markaði í dag. Að
mínu mati skákar hann Galaxy S4 og iPhone
nokkuð örugglega, en fer vitanlega nokkuð eft-
ir smekk, þ.e. hvort fólk
kunni frekar að meta
viðmót og hugbúnað
sem iPhone býður upp á
eða það sem fá má í
Android-heimum.
Sjálfsagt þekkja allir
þá sögu að Samsung er
orðinn stærsti snjall-
símaframleiðandi heims
með þriðjungs markaðs-
hlutdeild, umtasvert
meira en Apple. Minna er talað um þá sem
koma þar á eftir, en það bar til tíðinda um
mitt síðasta ár að kínverska fyrirtækið Huawei
náði að skjótast í þriðja sætið um tíma og
skáka þannig kóreska fyrirtækinu LG, sem sótti
svo aftur í sig veðrið undir lok ársins.
BESTI SÍMINN ÚR ÓVÆNTRI ÁTT
LG ER LITLA SYSTIR SAMANBORIÐ VIÐ RISANA APPLE OG SAMSUNG, EN STÁTAR ÞÓ AF ÞVÍ AÐ EIGA
HRAÐVIRKASTA OG BESTA SNJALLSÍMANN Á MARKAÐNUM SEM STENDUR.
Græja
vikunnar
* Eins og getið er þá ermyndavélin 13 Mdíla, en 2,1
Mdíla að framan. Hún er með
hristivörn, sem svínvirkar og
eykur notagildið umtalsvert, en
svo getur hún líka tekið 1080 p
myndskeið með 60 römmum á
sekúndu, sem er vel í látið.
* Eitt smálegt sem ég kannað meta er að hægt er að stilla
G2-símann sérstaklega fyrir gesti,
þ.e. maður getur rétt ein-
hverjum símann, til að mynda
barni eða barnabarni, og leyft
því að leika án þess að óttast að
síminn verði straujaður.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Örgjörvinn er 2,26 GHzfjögurra kjarna Krait 400 og ör-
gjörvasettið Snapdragon 800
með Adreno 330 grafíkörgjörva.
Vinnsluminni er 2 GB en síminn
er annars með 32 GB minni.
Skjárinn er afbragð, 5,2" HD-
IPS+ með upplausnina 1080 x
1920 díla, um 424 ppi.
Þ
að liggur beint við að spyrja
fyrst hvort umhverfi
sprotafyrirtækja á Íslandi
hafi breyst til hins betra
eða hins verra frá stofnun Data-
market 2008? „Hvort tveggja,“ svar-
ar Hjálmar. „Það sem hefur batnað
er að það er heldur meira framboð
af fólki. Bæði er heldur rýmra á
markaðnum meðal reynds tækni-
fólks og ásókn í slíkt nám hefur líka
aukist,“ segir hann. Þá telur hann
að lög um endurgreiðslu á hluta
rannsóknar- og þróunarkostnaðar
sem tóku gildi árið 2010 séu líklega
þýðingarmesta skref sem stjórnvöld
hafi tekið til að ýta undir nýsköp-
unarstarf á Íslandi. „Það er aðeins
að myndast skilningur, bæði meðal
almennings og stjórnvalda, á að ný-
sköpunarstarf er raunverulega eitt-
hvað meira en orðin tóm,“ segir
Hjálmar og bendir á að Ragnheiður
Elín Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, hafi til dæmis verið
dugleg við að kynna sér hvað ís-
lensk sprotafyrirtæki séu að fást við
frá því hún tók við ráðuneytinu og
hvað sé á færi stjórnvalda að gera
til að greiða götu þeirra. „Það sem
hefur versnað er hins vegar aðgengi
að fjármagni og flækjustigið sem
fylgir gjaldeyrishöftum.“
Árið 2008 hafði Hjálmar orð á því
í fjölmiðlum að mannekla hafi staðið
íslenskri sprotastarfsemi fyrir þrif-
um, einkum þar sem fjármálageir-
inn hafi sogað til sín margt fólk með
hæfileika og hugmyndir sem hafi
látið þær sitja á hakanum. Á und-
anförnum árum hefur fjöldi ís-
lenskra sprotafyrirtækja náð eft-
irtektarverðum árangri. Má þar
nefna fyrirtæki á borð við Datamar-
ket, Skema, Clara og kannski síðast
Plain Vanilla. Er velgengni þessara
fyrirtækja bein afleiðing af þessum
breytingum á vinnumarkaði í kjölfar
hrunsins? „Já. Slík fyrirtæki höfðu
nánast enga möguleika á að verða
til á bóluárunum, enda áttum við fá
umtalsverð nýsköpunar- og sprota-
fyrirtæki til að grípa þann mannafla
sem losnaði um í hruninu. Öll þessi
fyrirtæki sem hér eru nefnd verða
til rétt í kringum eða eftir hrun og
taka út sinn þroska á eftirhruns-
árunum.“
Tækifæri til staðar
Hjálmar segir að þó að við höfum
að einhverju leyti nýtt þau tækifæri
til nýsköpunnar sem fólust í
hruninu, þá hafi nýsköpunarstarf-
semi hér á landi einfaldlega staðið
verr en í nágrannalöndunum. „Ég
stend við það sem ég sagði áðan að
fyrirtæki eins og Clara, Datamar-
ket, Plain Vanilla, OZ og Meniga
hefðu ekki getað orðið til í því
ástandi sem ríkti á árunum 2004-
2007. Hins vegar er nýsköpunar-
geirinn ekkert orðinn neitt óskap-
lega stór eða áberandi ennþá – hann
er kannski rétt að nálgast þau um-
svif sem maður myndi búast við í
landi með það menntunar- og efna-
hagsstig sem er á Íslandi. Það er þó
erfitt að leggja mat á það hvar Ís-
land stendur samanborið við önnur
lönd. Tölfræði og rannsóknum á
þessu sviði er ábótavant,“ segir
Hjálmar. „Þetta er erfið spurning
og margir mismunandi mælikvarðar
sem hægt er að setja á þetta.
Reyndar er það svo að það virðast
alltaf myndast klasar í þessu þannig
að það má nánast segja að samfélög
séu með mjög áberandi nýsköp-
unarstarfsemi (Silicon Valley, Bost-
on, London, Dublin, Berlín, Tel
Aviv), eða ekki. Um daginn var ég
að bera tölfræði um áhættufjárfest-
ingar í Bandaríkjunum saman við
bestu ágiskanir mínar um slíkar
fjárfestingar á Íslandi og þar vorum
við á flestum sviðum tæpir hálf-
drættingar.“
Margt smátt gerir eitt stórt
Skömmu eftir stofnun Datamarket
árið 2008 hafði Hjálmar orð á því í
fjölmiðlum að íslenskt efnahagslíf
hefði einfaldlega ekki verið nægi-
lega fjölbreytt til að takast á við
áföll á borð við þau sem þau sem
höfðu þá riðið yfir. Núverandi rík-
isstjórn hefur á undanförnum mán-
uðum boðað endurnýjaða áherslu á
vikjunarframkvæmdir og stóriðju í
atvinnusköpun svo ég spyr Hjálmar
hvort hann telji það að einhverju
leyti afturhvarf til fyrri tíma? „Það
er ekkert út á stóriðju að setja í
sjálfu sér,“ segir Hjálmar. „Að
minnsta kosti ekki ef hún fer fram á
viðskiptalegum forsendum, að teknu
eðlilegu tilliti til náttúrunnar og án
sértækra afskipta hins opinbera.
Hins vegar verðum við að passa
okkur á fábreytninni. Nýsköpun og
sprotastarfsemi skapar fjölbreytni.
Margar þeirra þjóða sem best vegn-
ar í heiminum eru þær sem eiga
hvað erfiðast með að svara spurn-
ingunni: Hverjir eru ykkar helstu
atvinnuvegir? Íslendingar eiga ekki
erfitt með það: Ál, fiskur og túrismi.
Svo er það þetta „eitthvað annað“,
sem einhvernveginn hefur orðið að
Er 2014 ár íslenskrar nýsköpunar?
Morgunblaðið/Kristinn
HJÁLMAR GÍSLASON HEFUR UM LANGT SKEIÐ VERIÐ EINN AF
MEST ÁBERANDI FRUMKVÖÐLUM LANDSINS. ÁRIÐ 2008
STOFNAÐI HANN FYRIRTÆKIÐ DATAMARKET SEM SÉRHÆFIR
SIG Í MIÐLUN TÖLFRÆÐILEGRA GAGNA. ÞAR STARFA NÚ 15
MANNS BÆÐI Í REYKJAVÍK OG Í BOSTON. HJÁLMAR ER SJÁLF-
UR BÚSETTUR Í BOSTON ÞAR SEM HANN STJÓRNAR UPP-
BYGGINGU FYRIRTÆKISINS Í BANDARÍKJUNUM. HANN FÉLLST
Á AÐ SVARA NOKKRUM SPURNINGUM MORGUNBLAÐSINS,
ÞRÁTT FYRIR TÍMAMISMUNINN OG ANNASAMA DAGA.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
Hjálmar Gíslason segir að þó að við höf-
um að einhverju leyti nýtt þau tækifæri til
nýsköpunar sem fólust í hruninu, þá hafi
nýsköpunarstarfsemi hér á landi einfald-
lega staðið verr en í nágrannalöndunum.