Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Áætlað er að ferðir um 4.000 farþega
hafi raskast þegar allir félagsmenn
Félags flugmálastarfsmanna ríkisins,
SFR og Landssambands slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna sem starfa
hjá Isavia lögðu niður störf á flug-
völlum landsins á milli klukkan fjögur
og níu í gærmorgun. Um var að ræða
fyrsta lið í verkfallsaðgerðum í kjara-
deilum starfsmanna við Isavia. Þeir
munu einnig leggja niður störf á sama
tíma 23. og 25. apríl semjist ekki fyrir
þann tíma en 30. apríl verður allsherj-
arverkfall ef staðan er enn óbreytt.
Langar biðraðir tóku að myndast
við innritunarborð í flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar á milli klukkan sjö og átta í
gærmorgun. Vel gekk að vinna úr
röðinni þegar innritun hófst klukkan
níu. Guðni Sigurðsson, talsmaður
Isavia, sagði í samtali við mbl.is að
farþegar hefðu tekið biðinni með ró.
Seinkun var á nánast öllu flugi í gær,
mest fyrir hádegi en síðdegis fór að
draga úr henni.
Tekið með jafnaðargeði
Guðjón Arngrímsson, talsmaður
Icelandair, sagði síðdegis í gær að
nokkuð vel hefði gengið að greiða úr
þeirri flækju sem verkfallið skapaði.
„Það voru þriggja til fjögurra klukku-
stunda tafir í morgun, um tveir tímar
síðdegis og væntanlega verður allt
flug komið nokkurn veginn í samt lag
í fyrramálið [í morgun],“ sagði Guð-
jón í gær.
Spurður út í tjónið af verkfallinu
sagði Guðjón að ekki hefðu verið sett-
ar neinar tölur á skaða flugfélagsins
en í fyrsta lagi væri um að ræða
óþægindi fyrir farþegana. Guðjón
segir félaginu ekki hafa borist kvart-
anir vegna tafanna, flestir hafi tekið
verkfallinu með jafnaðargeði og allt
hafi verið gert til að reyna að greiða
úr þeim flækjum sem upp komu.
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air, segir að það
hafi gengið vonum framar að vinna úr
töfunum. Vélar WOW air til London
og Kaupmannahafnar hafi verið
komnar af stað klukkan hálfellefu í
gærmorgun, vél til London hafi verið
á réttum tíma seinnipartinn, en vél
sem fór til Berlínar hafi farið í loftið
um kl. hálfsjö í staðinn fyrir hálffjög-
ur. Eftir það hafi þau náð að rétta allt
flug af og ferðir WOW air eigi að vera
á áætlun í dag. Svanhvít segir að þau
hafi náð að láta langflesta farþega
sína vita af töfunum með tölvupósti
og smáskilaboðum, engar kvartanir
hafi borist.
Verkfall flugvallarstarfsmanna
Isavia hafði áhrif á um 350 farþega í
innanlandsflugi. Árni Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Flugfélags Ís-
lands, segir að fimm brottförum hafi
seinkað í gærmorgun en allt flug hafi
verið komið á réttan tíma eftir há-
degi.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
lýst yfir miklum áhyggjum vegna yf-
irstandandi verkfallsaðgerða, ferða-
þjónustan sé sérstaklega viðkvæm
fyrir slíkum truflunum. „Það þarf oft
ekki annað en orðróm um verkfall til
að ferðamenn hætti við heimsókn til
landsins,“ segir í tilkynningu SAF.
Vel gekk að vinna úr töfunum
Flug raskaðist í gærmorgun vegna
verkfalls flugvallarstarfsmanna
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Innritun Flugfarþegar tóku verkfallinu með jafnaðargeði og biðu rólegir.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Viðtökurnar hafa verið mjög góð-
ar og töluvert margir hafa náð í for-
ritið,“ segir Þórir Ingvarsson rann-
sóknarlögreglumaður, en í síðasta
mánuði gaf lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu út snjallsímaforritið
Lögregluþjóninn, sem virkar bæði í
iPhone og Android-snjallsíma og er
ókeypis. Þórir segir tilganginn
þann að hafa á einum stað alla þá
þjónustu sem lögreglan veitir í
gegnum samfélagsmiðla. „Flestir
þekkja fésbókarsíðuna og það sem
við erum að gera þar, en það vita
kannski færri að við erum líka með
Twitter, setjum inn myndbönd á
YouTube og ljósmyndir á Flickr,“
segir Þórir.
Það sem lögreglan er þó stoltust
af núna er Pinterest-vefur lögregl-
unnar þar sem óskilamunir eru birt-
ir. „Það er svo gleðilegt að óskila-
munadeildin okkar hefur náð að
skila munum, sem var ekkert skilað
áður.“ Þá sé sérstaklega verið að
tala um litla hluti eins og húslykla
og alls kyns smáhluti, sem áður var
erfitt að finna réttan eiganda að.
Þórir segir að Lögregluþjónninn
sé þannig uppsettur að hægt sé að
bæta við hann. Verði þá vonandi síð-
ar bætt við útgefnu efni eins og árs-
skýrslum og tölfræðilegum sam-
antektum. Þá sé einnig vonast til
þess að hægt verði að nýta hann í að
taka á móti skilaboðum frá almenn-
ingi, eins og til dæmis ljósmyndum
úr snjallsímum. „Það gleymist
stundum að lögreglan er þekking-
arfyrirtæki, og það skiptir okkur
miklu máli að vera í miklum og góð-
um samskiptum við fólk,“ segir Þór-
ir og bætir við að samskiptamiðl-
arnir hafi þar sannað gildi sitt.
Biggi lögga Lögreglan hefur verið
dugleg á samfélagsmiðlum.
Lögreglu-
þjóninum
vel tekið
Skil aukist á óskila-
munum á Pinterest
Ósamáfur (Larus cachinnans) fannst í fyrsta
skipti hér á landi í fyrradag. Fuglinn sást í Ós-
landi á Höfn í Hornafirði.
Brynjúlfur Brynjólfsson, fuglaáhugamaður á
Höfn, fann máfinn. Björn G. Arnarson, safnvörð-
ur og fuglaáhugamaður, tók myndir af honum.
Þær má sjá á vefnum www.fuglar.is. Um er að
ræða fugl á fyrsta ári. Ungir máfar eru ekki auð-
greindir, en hvað vakti athyglina á þessum fugli?
„Þessi hvíti haus og svart langt nef,“ sagði
Björn. Brynjúlfur tegundargreindi svo nýjasta
gestinn í fuglafánu Íslands. gudni@mbl.is
Ljósmynd/Björn Arnarson
Ósamáfur sást í fyrsta sinn í Óslandi
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps
hvetur landeigendur Reykjahlíðar til
að fresta gjaldtöku á ferðamanna-
stöðum og bíða þess að niðurstaða
komi í vinnu stjórnvalda varðandi
gjaldtöku. Sveitarstjórnin sam-
þykkti einróma ályktun í þessa veru
á fundi sínum nýlega, að sögn Dag-
bjartar S. Bjarnadóttur oddvita.
Sveitarstjórnin vitnaði m.a. til
ályktana frá Markaðsstofu Norður-
lands og eins frá stjórn Mývatns-
stofu og var mjög samróma þeim.
Mývatnsstofa harmaði fyrirhug-
aða gjaldtöku og taldi hana ekki vera
réttu leiðina til að byggja upp á ferð-
mannastöðum, í ályktun sem send
var sveitarstjórninni. Hún hvatti
sveitarstjórn til þess að beita sér fyr-
ir frestun gjaldtökunnar.
Markaðsstofa Norðurlands lýsti
yfir miklum áhyggjum vegna fyrir-
hugaðra aðgerða landeigenda í
Reykjahlíð í Mývatnssveit varðandi
sölu passa sem gildi á þrjú svæði,
Dettifoss, Hveri og Leirhnjúk-
Kröflu. „Mikilvægt er að nú þegar
verði skoðað hvort og hvernig megi
koma í veg fyrir að aðgengi að land-
inu verði heft með þessum hætti,“
sagði Markaðsstofan. Hún segir að
óskipulögð gjaldtaka muni skaða
orðspor Íslands.
Landeigendur Reykjahlíðar í Mý-
vatnssveit hafa opnað heimasíðu,
natturugjald.is, þar sem seldir eru
passar að þremur náttúruperlum í
þeirra eigu. Passi inn á hvert svæði
um sig kostar 800 krónur en sé
keyptur passi inn á öll svæðin í einu
er veittur 25% afsláttur og verður
heildargjaldið 1.800 krónur. Innifalið
í náttúrugjaldinu er skoðun á Víti.
Á síðunni segir að svæðin séu
komin að hættumörkum vegna mik-
illar fjölgunar ferðamanna. Gjaldinu
verður varið til uppbyggingar á
svæðunum. gudni@mbl.is
Sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps vill fresta gjaldtöku
Landeigendur Reykjahlíðar hvattir til að bíða eftir niðurstöðu stjórnvalda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hverir Vinsæll viðkomustaður.