Morgunblaðið - 09.04.2014, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Þétting byggðar vestan Elliðaár er
lykilstefna í nýju aðalskipulagi
Reykjavíkur sem nær til ársins
2030. Ekki er deilt um ágæti þess
að þétta byggð þar sem við á, en
talsverður ágreiningur hefur orðið
um útfærslu einstakra hugmynda
aðalskipulagsins, samspil þéttingar
við umferðarstefnuna og afleiðing-
arnar fyrir uppbyggingu í öðrum
borgarhlutum. Sumir segja að rétt-
ara sé að lýsa stefnu borgaryf-
irvalda sem þrengingu byggðar
fremur en þéttingu því þrengt sé
að íbúum í vesturhluta borgarinnar
og lífsgæði þeirra skert í sumum
tilvikum.
Ný byggð verður blönduð
Áætlað er að íbúum höfuðborg-
arinnar fjölgi um 25 þúsund á
skipulagstímabilinu. Í gamla skipu-
laginu var gert ráð fyrir að ný-
byggða hverfið í Úlfarsárdal tæki
við þessum mannfjölda, en hætt
hefur verið við þau áform og nán-
ast alla frekari uppbyggingu sem
þar var fyrirhuguð.
Þrjú svæði gegna lykilhlutverki í
nýju þéttingarstefnunni: Vatns-
mýri, Elliðaárvogur og svæðið við
gömlu höfnina í miðborginni. Þessi
svæði hafa öll náin tengsl við sjáv-
arsíðuna og eykur það „samspil
borgarinnar við náttúrulegar að-
stæður og styrkir ímynd hennar
sem borgarinnar við Sundið“, segir
í greinargerð með skipulaginu.
Þétting er þó fyrirhuguð miklu víð-
ar í grónum hverfum í borginni, en
engar nýbyggingar verða í úthverf-
unum í austurhlutanum ef undan
eru skildar lítilsháttar fram-
kvæmdir í Úlfarsárdal og í Grund-
arhverfi á Kjalarnesi.
Nýta betur fjárfestingar
Í greinargerð borgaryfirvalda
segir að markmið þeirra sé að
skapa heildstæðari og þéttari borg-
arbyggð og nýta þar með betur
land og fjárfestingar í gatna- og
veitukerfum og þjónustustofn-
unum. „Með þéttari byggð dregur
almennt úr vegalengdum, sam-
göngukostnaði og umhverfisáhrif-
um samgangna,“ segir ennfremur.
Hugmyndin er að á nýju upp-
byggingarsvæðunum skapist blönd-
uð byggð, þar sem samtvinnast
íbúðir, skrifstofur, verslun og þjón-
usta innan sömu götureita. Mark-
miðið sé að auka fjölbreytni og
blöndun innan núverandi mið-
kjarna, og auka almennt nálægð
íbúða og vinnustaða eins og
framast sé unnt.
Efling miðborgarinnar
Á gamla hafnarsvæðinu í mið-
borg Reykjavíkur á að byggja 2.200
íbúðir og að auki er gert ráð fyrir
160 þúsund fermetra rými undir
nýtt atvinnuhúsnæði. Talið er að í
nýju húsunum muni um fimm þús-
und manns búa og um sjö þúsund
störf tengist atvinnuhúsnæðinu.
Við framkvæmdirnar verður stuðst
við vinningstillögu arkitektastof-
unnar Graeme Massie frá 2010.
Yfirlitsmyndin hér á síðunni gef-
ur hugmynd um hvernig byggðin
mun líta út.
Fram kemur að það hafi verið
leiðarljós við alla stefnumörkun
Reykjavíkurborgar undanfarin ár
að efla miðborgina, auka aðdrátt-
arafl hennar, viðhalda fjölbreyttri
starfsemi og mannlífi, auka gæði
byggðarinnar og stuðla að
endurskipulagningu vannýttra
Byggðin
þétt í stað
útþenslu
Mikil uppbygging í Vatnsmýri,
Elliðaárvogi og við gömlu höfnina
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
SKIPULAGSMÁL
ÞÉTTING BYGGÐAR Í REYKJAVÍK
Útfærsla borgaryfirvalda á fyrir-
hugaðri þéttingu eða þrengingu
byggðar í grónum hverfum hefur
sums staðar mætt andstöðu íbúa
sem telja að hún feli í sér of mikla
röskun og rýri lífsgæði þeirra. Ætla
má að deilur um slík atriði magnist
enn frekar þegar nær dregur fram-
kvæmdum.
Þeirri spurningu hefur ekki verið
svarað á raunhæfan hátt hvernig
leysa eigi umferðarvandann sem
óhjákvæmilega skapast við hina
miklu fjölgun íbúa miðsvæðis í borg-
inni.
Ennfremur er nefnt að þéttingar-
stefnan eigi mestan stuðning ungs
fólks sem vill njóta kosta miðborg-
arlífsins, en síður sé tekið mið af
hagsmunum barnafjölskyldna sem
henti frekar stærra rými og græn
svæði sem lífið í úthverfunum bjóði
upp á.
Meðal þeirra sem mótmælt hafa
eru íbúasamtökin í Skerjafirði. Þau
eru ósátt við það hvernig ný byggð
austan núverandi hverfis á að líta út
þegar NA/SV-flugbraut Reykjavík-
urflugvallar verður lokað. Samtökin
gagnrýna meðal annars að ímynd
hverfisins sem sveit í borg verði fyr-
ir bí og lýsa áhyggjum af auknum
umferðarþunga sem fylgi stærri
byggð. Þannig benda þau á að aðeins
sé ein akleið út úr hverfinu.
Fyrirhugaðar byggingar við
gömlu höfnina hafa mætt andstöðu.
Telja gagnrýnendur að útlit og hæð
sumra bygginganna sé ekki í neinu
samræmi við það sem eðlilegt sé í
þessum borgarhluta.
Miðbærinn ekki allra
Þá hafa fyrirhugaðar fram-
kvæmdir í Rauðarárholti einnig orð-
ið deiluefni. Hafa margir íbúar og
verslunareigendur lýst áhyggjum
yfir því að bílastæðaskortur verði á
svæðinu vegna stúdentagarða í
Brautarholti sem ráðgerðir eru með
Þrenging byggð-
ar sögð rýra lífs-
gæði borgarbúa
Íbúar víða ósáttir við nýbyggingar
í grónum hverfum Reykjavíkur