Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 17

Morgunblaðið - 09.04.2014, Side 17
svæða. Tækifærin til þessa liggi einkum í endurbættum tengslum við höfnina og endurskipulagningu gamla hafnarsvæðisins. Íbúðarbyggð í Elliðaárvogi Í Elliðaárvogi á að byggja 3.200 íbúðir á skipulagstímabilinu. Eftir það er síðan gert ráð fyrir 100 þús- und fermetra aukningu atvinnu- húsnæðis. Búist er við að í nýju húsunum muni um 7.400 manns búa og í hverfinu verði um 1.500 störf. Í tengslum við þessi áform ætla borgaryfirvöld að finna iðnfyrir- tækjum á svæðinu nýjan stað. Sagt er að mikilvægasti áfanginn sé að flytja brott starfsemi Björgunar sem hafi valdið neikvæðum um- hverfisáhrifum á aðliggjandi byggð og við voginn. Björgun á að flytja brott ekki síðar en árið 2016, starf- semi Ísaga ekki seinna en 2023, og steypustöðvar og malbikunar- stöðvar á árunum 2018-2022. „Ný vistvæn tenging yfir Elliða- árósa (strætó, hjól, gangandi veg- farendur) er lykilforsenda fyrir þróun vistrænnar og þéttrar byggðar á svæðinu og er mikilvægt að hún verði að veruleika strax í öðrum áfanga uppbyggingr á svæð- inu,“ segir í greinargerðinni. Við framkvæmdirnar verður byggt á rammaskipulagi sem VSÓ-ráðgjöf og Kanon arkitektar unnu fyrir borgaryfirvöld. Flugvallarsvæðið Á flugvallarsvæðinu í Vatnsmýri er gert ráð fyrir 1.300 þúsund fer- metra byggingarmagni í heild. Þar eiga að vera þegar fram líða stund- ir 6.900 íbúðir og 600 þúsund fer- metrar atvinnuhúsnæðis. Í nýju húsunum munu íbúar verða um fimmtán þúsund og í hverfinu eiga að skapast um tólf þúsund störf. Á skipulagstímabilinu fram til 2030 er þó ekki gert ráð fyrir svo miklum framkvæmdum. Miðað er við að byggðar verði 3.600 íbúðir og at- vinnuhúsnæði á 230 þúsund fer- metrum. Framkvæmdirnar taka mið af vinningstillögu arkitekta- stofunnar Graeme Massie í hug- myndasamkeppni sem efnt var til árið 2007. Talsverð óvissa ríkir um Vatns- mýrarsvæðið vegna þeirrar hörðu andstöðu sem flutningur Reykja- víkurflugvallar hefur mætt. Sam- kvæmt könnun frá því í september í fyrra vilja 73% Reykvíkinga hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Tæplega 70 þúsund manns, alls staðar að af landinu, skrifuðu undir áskorun til borgaryfirvalda um að hætta við að leggja völlinn af. Búist hafði verið við því að flugvallar- málið yrði eitt helsta umræðuefnið í kosningabaráttunni í vor, en dreg- ið hefur úr líkum á því eftir að borgaryfirvöld og innanríkisráðu- neyti gerðu með sér samning í lok október sem frestar flutningi flug- vallarins til ársins 2022. Á tíma- bilinu á að leita að öðrum kostum fyrir framtíðarstaðsetningu flug- vallar á höfuðborgarsvæðinu. Ljósmynd/Graeme Massie 2012 Nýbyggingar Hugmynd að þróun byggðar á svæði gömlu hafnarinnar í Reykjavík, frá Grandagarði um Miðbakka að Hörpu, samkvæmt nýju aðal- skipulagi Reykjavíkur. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Við bjóðum góða þjónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000 Birting viðauka við grunnlýsingu sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka hf. Útgefandi: Íslandsbanki hf., kennitala 491008-0160, Kirkjusandi 2, 105 Reykjavík Íslandsbanki hefur birt viðauka við grunnlýsingu sértryggðra skuldabréfa sem skráð eru á skipulegan verðbréfamarkað, NASDAQ OMX Iceland hf. Grunnlýsingin, dagsett 2. október 2013 og viðaukar við grunnlýsingu, dagsettir 18. október 2013, 4. mars 2014 og 8. apríl 2014 eru gefin út á ensku og birt á vefsíðu bankans: www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarmognun/sertryggd-skuldabref Skjölin má nálgast á pappírsformi hjá útgefanda, Íslandsbanka hf., Kirkjusandi 2, 105 Reykjavík næstu 12 mánuði frá 2. október 2013. Reykjavík, 9. apríl 2014  Vinstri meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur á árunum 1978 til 1982 ákvað að fylgja ekki aðalskipulags- tillögu sem borgarstjórn hafði sam- þykkt árið 1977, enda hafði hún ekki hlotið staðfestingu ráðherra fyrir kosningar. Meirihlutinn, sem sam- anstóð af átta borgarfulltrúum Al- þýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks, hafði efasemdir um margt í nýja skipulaginu og markaði þá stefnu að þétta skyldi byggðina í borginni. Áætlað var að byggja í Fossvogi í landi Borgarspít- alans, í kringum Öskjuhlíðarskóla, í Laugardal við Heimana, sunnan Suð- urlandsbrautar á móts við Vogana, í Laugarási og Ártúnsholti. Fram kemur í Sögu Reykjavíkur 1940 til 1990 eftir Eggert Þór Bern- harðsson að rökin hafði einkum ver- ið þau að þörf fyrir ný íbúðarhverfi væri ekki jafn knýjandi og áður vegna minni fólksfjölgunar. „Ekki spillti fyrir að hægt var að styrkja fjárhag borgarsjóðs í leiðinni en með nýja fyrirkomulaginu var talið að gera mætti talsvert margar lóðir byggingarhæfar fyrir lágmarks- kostnað eða brot af því sem ella kostar á ónumdu svæði. Þá var einn- ig kostnaðarsamt að halda við gatnakerfinu og standa að rekstri strætisvagna og með betri nýtingu borgarlandsins mátti reyna að auka hagkvæmni í rekstri borgarinnar enn frekar.“ Skipulagsmálin urðu helsta kosn- ingamálið í borgarstjórnarkosning- unum 1982. Segir í bókinni að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi snúist gegn ýmsum áformum meirihlutans um þéttingu byggðar og gagnrýnt nýja skipulagið harðlega. Meirihlutanum gekk illa að kynna hugmyndir sínar og verja þær og sjálfstæðismenn náðu meirihluta í borgarstjórn á ný. gudmundur@mbl.is Vinstri meirihlutinn vildi þétta byggðina en tókst það ekki Vildu þétta Forysta vinstri meirihlutans í borgarstjórn frá 1978 til 1982. F.v. Björgvin Guðmundsson, Sigurjón Pétursson og Kristján Benediktsson. Með nýju aðalskipulagi Reykjavíkur er útþensla borgarinnar stöðvuð og áhersla lögð á þéttingu byggðar miðsvæðis. Markmiðið er að skapa heildstæðari borgarbyggð. Þrjú svæði eru í lykil- hlutverki á næstu árum: Vatnsmýrin, Elliðaárvogur og svæðið við gömlu höfnina í miðborginni. Miklu víðar er þó stefnt að verulegri þéttingu byggðar. Hafa þau áform sums staðar orðið umdeild. Sumir kjósa að tala frekar um þrengingu byggðar í stað þéttingar því útfærsla borgaryfirvalda feli í sér of mikla röskun í grónum hverfum. SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR mun færri bílastæðum en óbreyttar reglur segja til um. Margir hafa mótmælt harðlega ákvörðuninni um að hætta uppbygg- ingu í nýja hverfinu í Úlfarsárdal. Meðal þeirra er Knattspyrnufélagið Fram sem hafði samið við borgar- yfirvöld um framtíðaraðstöðu í hverfinu, en allar forsendur þess hafa nú breyst. Í bréfi félagsins til borgaryfirvalda í fyrravor sagði: „Einhverra hluta vegna virðast skipulagsyfirvöld halda að allir vilji búa í gamla miðbæ Reykjavíkur. Slíkt er hins vegar fjarstæða þótt það kunni að vera að hátt hlutfall ungs fólks á ákveðnu tímabili lífs síns vilji gjarnan búa nálægt gamla miðbæ borgarinnar. Slíkt á hins veg- ar ekki almennt við um íbúa borg- arinnar og höfuðborgarsvæðisins.“ gudmundur@mbl.is Ljósmynd/Graeme Massie 2012 Óánægja Hugsanlegt fyrirkomulag uppbyggingar nýs hverfis í Skerjafirði þegar NA/SV-flugbrautin er farin. Íbúar hafa mótmælt áformunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.